Fréttablaðið - 19.03.2022, Síða 57

Fréttablaðið - 19.03.2022, Síða 57
Á tímum sem þessum er sterkt ónæmiskerfi lykilatriði. Þættir eins og hreyfing, góður svefn, hollt matar­ æði og góð melting eru undirstaðan að öflugu ónæmiskerfi. Nýjustu rannsóknir stað- festa alltaf betur og betur hversu mikilvægt það er að hafa meltingarfærin í lagi fyrir líðan okkar. Hún spilar stórt hlutverk í að viðhalda öflugu ónæmiskerfi. Við þurfum að geta brotið fæðuna vel niður til að næring arefnin frá- sogist, til þess að það gerist þarf þarmaflóran að vera í jafnvægi. Meltingarfærin eru það fyrsta sem við þurfum að huga að til að geta nærst vel. Um leið og upptakan er góð og við skilum frá okkur eðlilegum hægðum kemst betra jafnvægi á og höfum við stigið stórt skref í átt að heilbrigðara lífi. Það má líkja þessu við að við séum að byggja hús og við byrjum á grunn inum. Því traustari og betur gerður sem grunnurinn er, þeim mun auðveldara verður að byggja ofan á þannig að allt haldi vel. Góður og grænn á morgnana Grænn þeytingur eða smoothie eins og sjá má í meðfylgjandi upp- skrift er fullur af næringar efnum og trefjum sem eru bæði nauð- synleg og góð fyrir meltinguna. Vel samsettir þeytingar hafa líka jákvæð áhrif á blóðsykurinn og geta hjálpað í baráttunni við sykur púkann. Það þarf ekki að vera f lókið að skella í góðan drykk og tekur varla meira en 2-3 mínútur. Grænn og vænn 1 lúka blönduð græn blöð, spínat eða grænkál ½-1 banani (má vera frosinn) 1 bolli frosið mangó eða t.d. ananas 1-2 cm engifer Smá sítrónusafi 1,5 bolli vatn eða t.d. möndlu- eða haframjólk Góð melting getur skipt sköpum Vel samsettir þeytingar hafa jákvæð áhrif á blóðsykurinn og geta hjálpað í baráttunni við sykur púkann. Meltingarensímin frá Enzymedica eru mest seldu ensímin á markaðinum. Bio-Kult Candéa er háþróuð góðgerlablanda sem hentar fyrir alla. MYNDIR/AÐSENDAR Ýmislegt má svo nota til að „poppa“ drykkinn aðeins upp en það getur verið smá kanill, túrm erik, ein matskeið hörfræ eða chia fræ, smá epladjús eða tvær döðlur til að sæta aðeins. Berja drykkir eru líka einstaklega næringaríkir og um að gera að finna hvað hentar. Þreyta eftir máltíðir Ensím eru nauðsynleg í öllum efna skiptum í líkamanum en í hráu fæði eru ensím sem verða óvirk við eldun. Þegar við borðum eldaðan og unninn mat notar líkaminn orkuna í að finna og flytja ensím til meltingarvegarins, en hver hefur ekki fundið fyrir þreytu eftir stórar máltíðir? Með hækkandi aldri gerist það líka að framleiðsla ensíma í líkamanum minnkar en ensímskortur getur lýst sér í eftirfarandi: n Brjóstsviði n Vindverkir n Uppþemba n Ónot í maga og ógleði n Bólur n Nefrennsli n Krampar í þörmum n Ófullnægt hungur n Skapsveiflur n Eymsli í liðum n Húðkláði n Húðroði n Svefnleysi Það er mikilvægt að borða „lifandi fæðu“ eins og grænmeti og ávexti með elduðum mat. Fjöl margir hafa einnig fundið lausn í að taka inn meltingarensím til að auð- velda líkamanum verkið og nýta fæðuna betur. Þetta er grund- vallaratriði í átt að heilbrigðari lífs stíl. Meltingarensímin frá Enzyme dica eru tekin inn með mat og hafa losað fólk við ótrú- legustu óþægindi og aukið orku til muna. Aðferð við vinnslu á Enzymedica ensímunum kallast Thera-Blend og er það einkaleyfis- varin aðferð sem gerir þeim kleift að vinna á mismunandi pH- gildum í líkamanum sem gerir þau margfalt öflugri en önnur meltingarensím. Öflugasta viðbótin Fyrir utan D-vítamín og ómega-3 fitusýrur sem er okkur lífsnauð- synlegar, eigum við að taka inn öfluga mjólkursýrugerla. Oft er sagt að heilsan búi í þörmunum og mikið er til í því. Stöðugt álag er á meltingunni, atriði eins og streita, lyf, áfengi, sykur og koffín valda því að þarmaf lóran er ekki í nógu góðu jafnvægi. Bio-Kult eru öflugir góðgerlar sem styrkja meltinguna. Bio-Kult Candéa er háþróuð og fjölvirk örverublanda sem inniheldur 7 frostþurrkaða og sýruþolna gerlastofna ásamt hvítlauk og GSE (Grapefruit Seed Extract) sem getur haft góð áhrif á meltinguna. Bio-Kult Candéa er öruggt og hentar vel fyrir alla, einnig barnshafandi konur, mjólkandi mæður og börn. n ALLT kynningarblað 5LAUGARDAGUR 19. mars 2022
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.