Fréttablaðið - 19.03.2022, Page 58
Ég elska KOLLAGEN húð-
vörurnar frá Colway. Þær
eru það besta sem ég hef
notað á húðina mína. Hera
Björk Þórhallsdóttir, söng-
kona og fasteignasali, mælir
heils hugar með KOLLAGEN
húðvörunum frá Colway og
segir þær hafa gert krafta-
verk fyrir húð hennar.
Hera Björk kynntist KOLLAGEN
húðvörunum frá Colway fyrir 10
árum og hefur notað vörurnar
síðan þá. „Þegar Colway húð vöru
línan kom á markað hér á landi
stökk ég hæð mína af gleði enda
elska ég hana í ræmur. Þetta eru
bestu húðvörur sem ég hef notað
og það er kollagenið sem gerir
gæfumuninn,“ segir Hera Björk.
„Elín Reynisdóttir förðunar
meistari, sem farðar mig alltaf
þegar mikið stendur til, hefur mjög
oft orð á því hversu góða húð ég
hef og ég þakka það KOLLAGEN
húðvörunum meðal annars. Góð
heilsa og heilbrigt útlit skiptir
mig miklu máli. Ég legg því mikla
áherslu á að nota hreinar, hágæða
vörur sem virka vel á húðina mína.
Og það gera KOLLAGEN húðvör
urnar frá Colway svo sannarlega,“
segir Hera Björk.
Hágæða húðvörur frá Colway
sem allar innihalda KOLLAGEN
„Allar húðvörurnar frá Colway eru
unnar úr hágæða hráefni, einka
leyfisvarðar og hannaðar af líf
efnafræðingum eftir margra ára
rannsóknir og tilraunir. Þær inni
halda vatnsbundið kollagen sem
er náttúrulegt prótein og unnið
úr roði fersks fisks. Allt kolla
genið í vörunum þeirra er vatns
bundið, því aðeins þannig er hægt
að tryggja virkni þess niður í öll
þrjú lög húðarinnar,“ segir Sigrún
Kjartansdóttir heilsuráðgjafi hjá
heilsanheim.is.
Berðu kollagenið beint á húðina
„Með því að bera kollagenið beint
á húðina og á þá staði sem okkur
finnast vera farnir að láta á sjá,
náum við að vinna gegn þessari
náttúrulegu öldrun húðarinnar
sem fylgir aldrinum og minnk
andi framleiðslu kollagens í
líkamanum. Kollagenið hægir á
öldrun húðarinnar, gerir húðina
stinnari og teygjanlegri og vinnur
gegn fínum línum og hrukkum.
Það gefur húðinni góðan raka og
mikla næringu og húðin verður
stinnari og fallegri. Rannsóknir
sýna að hægt er að bæta sér upp
minnkandi kollagenframleiðslu
líkamans með því að bera kolla
genið beint á húðina,“ greinir
Sigrún frá.
100% hreint KOLLAGEN
fyrir andlitið
Platinum KOLLAGEN andlits
gelið er 100% hreint kollagen
og eitt það besta sem hægt er að
setja á andlitið á sér. Það og Blue
Diamond KOLLAGEN andlits
kremið eru vinsælustu og mest
seldu vörurnar í húðvörulínunni
en allar húðvörurnar innihalda
kollagen. ■
Sölustaðir: heilsanheim.is, Apótek
Garðabæjar, Apótekarinn í Mjódd,
Heilsuver, Lyfjaver, Lyf og heilsa
og Lyfsalinn Glæsibæ.
Vinnur gegn öldrun húðarinnar
Þetta eru bestu
húðvörur sem
ég hef notað og
það er kolla
genið sem gerir
gæfumuninn,”
segir Hera Björk.
Blue Diamond KOLLAGEN andlits
kremið er ein vinsælasta varan hjá
Colway.
Platinum KOLLAGEN andlitsgelið er
100% hreint kollagen.
Hera Björk mælir heils hugar með KOLLAGEN húðvörunum frá Colway.
MYND/ÓLÖF ERLA, SVARTDESIGN
6 kynningarblað A L LT 19. mars 2022 LAUGARDAGUR