Fréttablaðið - 19.03.2022, Side 66
Svo mætir
hann með
ofbeldis
manninum
á barna
verndar
fund þar
sem hann
reynir að
sannfæra
fulltrúann
um að
hann sé
ekki
ofbeldis
maður.
Ég trigger
aðist þegar
Frosti
sendi út
afsökunar
beiðni þar
sem hann
segist hafa
verið að
vinna í
sínum
málum og
ekki vera
þessi sama
manneskja
í dag, en
hann
klárlega
braut á
mér með
framferði
sínu árið
2020.
Erla Gunnarsdóttir er ein
þriggja kvenna sem lagt hafa
fram kæru vegna ofbeldis á
hendur sama manni. Hinar
tvær stigu fram í viðtali við
helgarblað Fréttablaðsins
fyrir tæpu ári. Erla tók þátt
í því spjalli en treysti sér
þá ekki til að stíga fram en
atburðir vikunnar breyttu
þeirri afstöðu.
Það var umfjöllun Stund-
arinnar og hlaðvarps-
þáttarins Eigin konur þar
sem Edda Pétursdóttur
sagði frá sambandi sínu
við þekktan fjölmiðlamann sem
fékk Erlu til að vilja segja frá reynslu
sinni.
Edda nafngreindi téðan fjöl-
miðlamann ekki en segir hann
hafa áreitt sig með stöðugum tölvu-
póstssendingum, smáskilaboðum
og hótunum um að birta af henni
viðkvæmar myndir.
Stuttu eftir viðtalið birti Frosti
Logason, dagskrárgerðar- og sjón-
varpsmaður á Stöð 2, færslu á
Facebook þar sem hann gekkst við
að vera umræddur maður, hann
baðst afsökunar á framferði sínu og
sagðist með hjálp sálfræðings og 12
spora samtaka hafa hafið bataferli.
Sagði hann meðal annars:
„Ég var á vondum stað á þess-
um tíma. Ég tók sambandsslit
okkar mjög nærri mér og í
kjölfar þeirra kom hryllilegt
tímabil þar sem ég var haldinn
þráhyggju og sagði og gerði
hluti sem ég sé mikið eftir.“
Fyrir helgi var tilkynnt að Frosti
væri kominn í ótímabundið leyfi
frá störfum sínum fyrir Sýn og
framkvæmdastjórn SÁÁ auk þess
sem hann hefur sagt sig úr stjórn
Blaðamannafélags Íslands.
Afsökunarbeiðnin stakk
Það er afsökunarbeiðni Frosta og
frásagnir hans af sjálfsvinnu og
bataferli sem komu illa við Erlu.
„Mér finnst ekki rétt að hann stígi
fram og segist vera búinn að vinna í
sínum málum miðað við það hvern-
ig hann kom fram í mínu máli.“
Erla á þá við að frá 2019 til 2020
var hjá sýslumanni rekið umgengn-
Triggeraðist við
afsökunarbeiðnina
Erla lagði fram
kæru á hendur
barnsföður
sínum vegna
ofbeldis og er
ósátt við karakt-
ervitni sem
Frosti Logason
gaf honum í
bréfi til sýslu-
manns. MYND/
AÐSEND
ismál milli hennar og barnsföður
hennar, sem hún hafði lagt fram
kæru gegn vegna meints of beldis
og var til umfjöllunar í téðu viðtali
Fréttablaðsins 2021. Erla hafði farið
fram á að umgengni hans við barn
þeirra væri undir eftirliti og segist
hafa haft ríka ástæðu fyrir þeirri
kröfu.
Frosti, sem var trúnaðarmaður
mannsins í AA-samtökunum, tók
að sér að vitna um karakter hans í
því umgengnismáli, sat fundi hjá
barnaverndarnefnd með mannin-
um og skrifaði bréf til sýslumanns.
Í bréfinu segir meðal annars orðrétt:
„xxx er ekki of beldismaður og
hefur aldrei verið.“
Þess skal getið að bréfið er ritað
þann 10. desember árið 2020 og þar
tekur Frosti fram að hann hafi fyrst
hitt xxx þegar hann kom úr með-
ferð þann 19. júlí árið 2019. Það var
því aðeins rúmt ár liðið frá þeirra
fyrsta fundi þegar hann vitnar
um hegðun hans í nútíð og fortíð.
En hann hafði ekki þekkt hann á
meðan á samböndum hans við kon-
urnar þrjár sem lögðu fram kærur á
hendur honum vegna ofbeldis stóð,
árin á undan.
Í bréfinu segir jafnframt:
„Það eru því miður ekki allir
sem ná jafn góðum árangri og
xxx en hann er eitt af þessum
tilfellum þar sem menn upp-
skera eins og þeir sá, því xxx
hefur eins og áður segir lagt
sig allan fram í að leggja rækt
við sína edrúmennsku. Það er
að mínu mati þess vegna sem
xxx hefur ekki stigið feilspor á
þessari vegferð.“
Á öðrum stað segir:
„Hann hefur stundað mikla
sjálfsrannsókn og hafa við-
brögð hans við hreinskilinni
leiðsögn minni einkennst af
miklum þroska og vilja til að
bæta eigið líf. Xxx er þrátt
fyrir allt á mjög góðum stað en
framkoma barnsmóður hans
gagnvart honum og fjölskyldu
hans væri í mörgum tilfellum
nóg til að æra óstöðugan.“
Með mikið stærra platform
Linda Gunnarsdóttir steig eins og
fyrr segir fram í viðtali við Frétta-
blaðið í maí 2021 undir yfirkriftinni
„Svona menn þarf að stoppa“.
Linda sagði farir sínar ekki sléttar
af því þegar kom að úrvinnslu lög-
reglu á ofbeldiskæru sem hún lagði
fram gegn fyrrverandi sambýlis-
manni, sama manni og Erla stóð í
umgengnismáli við. Kærunni var
vísað frá á þeim grundvelli að um
væri að ræða orð gegn orði, þrátt
fyrir að áverkavottorð sýndi átta
áverka og árásin væri f lokkuð sem
alvarleg.
Sara Regal kom einnig fram í
umfjöllun helgarblaðsins á sínum
tíma. Sara var í sambandi við
umræddan mann og lagði einnig
fram kæru til lögreglu vegna ofbeld-
is. Sara treysti sér ekki til að segja
sögu sína í viðtali við helgarblaðið
en steig þó fram til að styðja við
sögu Lindu og standa með öðrum
konum sem hún sagði hafa lent í
sama manni.
Í viðtalinu nefndi Linda að
umræddur maður væri með trún-
aðarmann í AA-samtökunum sem
hefði varið hann út á við og sagt
sögur af obeldi vera lygar.
„Hann er með fjölmiðlamann á
sínum snærum. Sá er með mikið
stærra platform en við og vill meina
að hann sé góður strákur,“ segir
Linda í viðtali við Fréttablaðið í
maí 2021.
Í kjölfar viðtalsins við Lindu til-
kynnti Ríkissaksóknari að mál
hennar yrði tekið til rannsóknar á
ný, eins segir Erla að fleiri konur hafi
haft samband við þær með svipaðar
ofbeldissögur af téðum manni. Í dag
séu konurnar sjö en þrjár þeirra
hafi lagt fram kærur sem enn eru til
rannsóknar.
Hann þekkti hann ekkert
Erla er verulega ósátt við afskipti
Frosta Logasonar sem trúnaðar-
manns hjá AA-samtökunum af
umgengnismálinu og telur hann
með því hafa farið langt út fyrir
verkahring sinn.
„Hann tók á móti barnsföður
mínum og geranda sem nýliða í
AA-samtökunum. Hann þekkti
hann ekkert fyrir, né samband hans
við mig eða neina af þeim konum
sem hafa kært hann fyrir of beldi í
nánu sambandi, en við erum þrjár
sem erum búnar að kæra hann og
sú fjórða gaf skýrslu um of beldi
en það er ágætt að taka fram að
hún var í sambandi við manninn
þegar hann var orðinn edrú. Þegar
við stigum fram þá tók Frosti upp
hanskann fyrir hann út á við og ég
veit að hann hefur sakað okkur um
lygar og nornaveiðar. Þetta er maður
með risastórt platform.
Svo mætir hann með of beldis-
manninum á barnaverndarfund þar
sem hann reynir að sannfæra full-
trúann um að hann sé ekki ofbeld-
ismaður. Hann hefur samband við
náinn vin minn og reynir að telja
honum trú um að ég sé of beldis-
manneskjan.“
Ver veikan nýliða
Umgengnismálinu var vísað frá en
aðspurð hvers vegna hún ákveði nú
að stíga fram segir Erla:
„Ég triggeraðist þegar Frosti sendi
út afsökunarbeiðni þar sem hann
segist hafa verið að vinna í sínum
málum og ekki vera þessi sama
manneskja í dag, en hann klárlega
braut á mér með framferði sínu árið
2020.
Þetta er fjölmiðlamaður sem á
að vera með gagnrýna hugsun, sem
tekur að sér veikan nýliða og stað-
hæfir að hann sé ekki ofbeldismaður
án þess að þekkja hann neitt, né mig.
Ég man eftir óttanum sem ég upp-
lifiði á þessu tímabili yfir því hvaða
áhrif hann gæti haft. Það er nógu erf-
itt að taka þetta skref, að stíga fram
og kæra, hvað þá þegar fjölmiðla-
maður með þetta platform stígur
inn í og aðstoðar gerandann.“ n
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
34 Helgin 19. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ