Fréttablaðið - 23.04.2022, Síða 8

Fréttablaðið - 23.04.2022, Síða 8
Rannsóknarhópur á vegum Háskóla Íslands og Land- spítala hefur rannsakað áhrif umhverfis, lífsstíls, svefns og heilsu á öndunarfæri þjóðar- innar í yfir þrjátíu ár. Nú hefst nýr áfangi rannsóknarinnar. birnadrofn@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL „Markmið þessar- ar rannsóknar er að finna þætti sem gera okkur áhættumat auðveldara þannig að það megi meðhöndla áhættu áður en hún er orðin að sjúkdómi,“ segir Þórarinn Gíslason, prófessor við Háskóla Íslands og fyrrverandi yfirlæknir lungna- og svefndeildar Landspítala. Þórarinn fer ásamt Bryndísi Bene- diktsdóttur, prófessor og heimilis- lækni, fyrir rannsóknarhópi fyrir hönd HÍ og Landspítala sem hefur rannsakað áhrif umhverfis, lífs- stíls, svefns og heilsu á öndunarfæri þjóðarinnar í yfir þrjátíu ár. Rannsóknin heitir Evrópurann- sóknin Lungu og heilsa (ECRHS) og að henni kemur stór hópur vís- indamanna víða um Evrópu og í Ástralíu. Rannsóknin hófst árið 1990 meðal fólks sem þá var á aldr- inum 20-44 ára, meðal annars sem viðbragð við fjölgun astmatilfella í heiminum, en vísbendingar voru um að umhverfisþættir ættu þar hlut að máli. Þátttakendur eru tugir þúsunda karla og kvenna. Þórarinn segir styrkinn í rann- sókn eins og Lungu og heilsu felast í því að með endurteknum rann- sóknum sé hægt að greina orsaka- sambönd og draga áreiðanlegri niðurstöður, frekar en í rannsókn- um sem framkvæmdar eru á einum tímapunkti. Unninn hefur verið fjöldi fræði- greina úr niðurstöðum rannsókn- arinnar. Segir Þórarinn þær meðal annars sýna að ekki sé hægt að draga ályktanir um hópa eins menn freistuðust meira til að gera áður. „Einstaklingsbreytileikinn er meiri en áður var talið,“ segir Þór- arinn. „Það er ekki lengur talað um karla á þessum aldri eða konur á þessum aldri, það er meiri munur á milli hvers og eins,“ bætir hann við. „Annað sem gerir rannsóknina áhugaverða er að afkomendur þátt- takenda hafa verið rannsakaðir á sama hátt og upplýsingum um for- eldra þeirra hefur verið safnað. Þannig getum við séð hvernig lífs- stíll og umhverfi foreldra hefur áhrif á heilsu næstu kynslóða,“ segir Þórarinn. Niðurstöður hafa til dæmis leitt í ljós að ef faðir reykir fyrir getnað barns, einkum ef hann byrjaði að reykja fyrir 15 ára aldur, eru afkomendur hans mun líklegri til að glíma við minnkaða lungnastarf- semi, astma og ofnæmi. Þetta gildir jafnvel þótt faðirinn hefði hætt að reykja fimm árum fyrir getnað. Einn af þeim þáttum sem íslenski hópurinn hefur skoðað er svefn. Þegar allir þátttakendur voru skim- aðir fyrir kæfisvefni í þriðja fasa rannsóknarinnar fyrir um tíu árum kom í ljós að hann reyndist mun algengari en áður var talið. Fimm- tán prósent reyndust vera með með kæfisvefn á meðal- eða háu stigi. Þórarinn segir að nú sé stórt tæki- færi í því að fylgja þátttakendum eftir. Niðurstöðurnar verði verð- mætar. „Þær gætu til dæmis hjálpað okkur að draga ályktun um það hvort að ástæða sé til þess að skima fyrir kæfisvefni,“ segir hann. „Í sannleika sagt eru ekki margir aðrir staðir í heiminum sem ná að fylgja svona rannsóknum þetta vel eftir, Íslendingar eru áhugasamir að leggja þessu lið og við fáum sérstak- lega góða svörun,“ segir Þórarinn. n Afkomendur þátttak- enda hafa verið rann- sakaðir á sama hátt og upplýsingum um foreldra þeirra hefur verið safnað. Þórarinn Gíslason, prófessor Auglýsing um framlagningu kjörskrár vegna kosningar til kirkjuþings Kosning til kirkjuþings fer fram frá kl. 12:00 hinn 12. maí 2022 til kl. 12:00 hinn 17. maí s.á. Kosningin verður rafræn. Á kirkjuþingi eiga sæti 29 þjóðkirkjumenn kjörnir til fjögurra ára í senn. Eru 12 þeirra úr hópi vígðra manna, þ.e. presta og djákna og 17 leikmenn. Kjörstjórn hefur, á grundvelli 9. gr. starfsreglna nr. 8/2021 um kjör til kirkjuþings, samþykkt kjörskrá vegna kosnin- ganna. Á kjörskrá eru þeir sem uppfylltu skilyrði kosningarrét- tar hinn 1. apríl 2022, sbr. 3.-6. gr. starfsreglnanna. Kjósandi getur kannað á þar til gerðu vefsetri kirkjan.is/kirk- juþing/kjörskrá hvort nafn hans sé á kjörskrá. Við aðgang að vefsetrinu er notuð almenn innskráningarþjónusta, s.s. rafræn skilríki eða Íslykill. Kjörskrá liggur enn fremur frammi á pappír, kjósendum til sýnis, á Biskupsstofu og skrifstofum prófasta, sbr. 4. og 5. mgr. 9. gr. starfsreglnanna. Athugasemdir vegna kjörskrár skulu berast kjörstjórn eigi síðar en þremur sólarhringum áður en kosning hefst. Athugasemdir skulu sendar á netfangið kirkjan@kirkjan.is Reykjavík, 20. apríl 2022 f.h. kjörstjórnar þjóðkirkjunnar Anna M. Karlsdóttir, formaður. Fríar forskoðanir fyrir laseraðgerðir út apríl Tímapantanir 414 7000 /Augljos Það sem þátttakendur uppskera: • Aukið sjálfstraust, sterkari sjálfsmynd og trú á eigin getu • Hugrekki til að segja sína skoðun óháð áliti annarra • Kjark til að tala um eigin líðan og annarra • Leiðir til að eignast vini, bæta samskipti og styrkja sambönd • Þor til að koma hugmyndum sínum á framfæri • Betra skipulag og skýrari markmið • Jákvætt viðhorf og kvíða/streitustjórnun • Kveikja eldmóð og sýna seiglu Námskeið hefjast: 9 til 12 ára Leiðtogabúðir 20. júní 8.45-17.00 4 dagar í röð 10 til 12 ára 13. júní 9.00-13.00 átta virka dagar í röð 13 til 15 ára 13. júní 13.30-17.00 átta virka dagar í röð 16 til 19 ára 3. ágúst 18.00-22.00 tvisvar í viku, 9 skipti 20 til 25 ára 30. maí 18.00-22.00 tvisvar í viku, 9 skipti Komum sterk inn í sumarið Skráning á dale.is eða 555 7080 Ókeypis kynningartími dale.is/ungtfolk *Hægt er að nota frístundastyrki bæjarfélaga sem greiðslu - Youth_Ad_040722 Einstaklingsbreytileikinn meiri en áður var talið Að rannsókninni kemur stór hópur vísindamanna víða um Evrópu og í Ástralíu. Rannsóknin hófst árið 1990 meðal fólks sem þá var á aldrinum 20-44 ára. Þátttakendur eru tugir þúsunda karla og kvenna. Fréttablaðið/Getty FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut 8 Fréttir 23. apríl 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.