Fréttablaðið - 23.04.2022, Side 22
Við Snorrabrautina er að
finna Bruggstofuna, nýjan
stað á gömlum grunni, þar
sem ætlunin er að vera með
ýmiss konar viðburði og er
riðið á vaðið með vínylplötu
markaði í dag í tilefni af
alþjóðlega hljómplötuversl
anadeginum.
bjork@frettabladid.is
Emmy Winks er umsjónar
maður Bruggstofunnar
en á þeim níu árum sem
hún hefur búið á landinu
hefur hún farið fyrir fjöl
mörgum börum, nú síðast BrewDog
og ætti því að kunna til verka.
Aðspurð hvað hafi dregið hana til
landsins stendur ekki á svari hjá
Emmy: „Heitu pottarnir og hita
veitan. Hvað get ég sagt? Ég er í
fiskamerkinu og elska vatn,“ segir
hún og hlær.
Eftir að hafa búið í Hlíðunum
um árabil rann henni blóðið til
skyldunnar þegar henni bauðst að
taka þátt í uppbyggingu fjölskyldu
væns staðar í hverfinu. „Þegar ég
bjó í Hlíðunum var ekki einu sinni
kaffihús þar, hvað þá bar, það var
enginn staður í hverfinu fyrir fólk
að sækja. Það er alveg hundleiðin
legt.“
Barn- og hundavænn staður
Emmy segir staðinn sérstaklega
hugsaðan fyrir íbúa Norðurmýrar
og Hlíða en bendir jafnframt á
nálægðina við miðborgina og Sund
höll Reykjavíkur, því sé tilvalið að
líta við eftir sundsprett. „Staðurinn
er bæði barn og hundavænn enda
höfum við fengið töluvert af heim
sóknum fólks á göngu með hundana
sína,“ segir Emmy og bendir á að
búið sé að koma upp bjórgarði við
staðinn þar sem sólin skíni allan
daginn á góðviðrisdögum.
Það var fyrir fjórum vikum að
staðnum Honkýtonk var breytt í
Bruggstofuna. „Þetta er svona alls
herjar hverfisstaður í dag,“ segir
Emmy. „Við erum með gott kaffi
innan um fallega hönnun. Hér
verður popup veitingastaður og
erum við þessa stundina í samstarfi
við ástralska fyrirtækið Arctic Pies
sem framleiðir bragðmiklar bökur í
bæði kjöt og vegan útgáfum."
Íslendingar elska tónlist
Í dag laugardag er alþjóðlegur
hljómplötuverslanadagur, Record
Store Day og segir Emmy þau hafa
viljað fagna því. „Við erum með
plötuspilara á barnum og elskum
tónlist. Okkur langaði að bjóða
fólki að taka þátt í vínylplötumark
aði og verðum með á bilinu 10 til
15 bása. Fólk er að selja það sem
gengur af í safni þeirra. Íslendingar
elska tónlist.“
Emmy segir alla tegund tónlistar
verða í boði á markaðnum. „Allt frá
teknói að gamalli íslenskri tónlist.“
Talið berst að auknum vinsældum
vínylplötunnar og nefnir Emmy
að kærasti hennar sé í pönkhljóm
sveit og tekið hafi sjö mánuði fyrir
bandið að fá vínylplötu, úr fram
leiðslu og til landsins. „Markað
urinn er orðinn svo stór. Í tilefni
plötuverslanadagsins er vanalega
pressað nýtt upplag af klassískum
plötum eins og til dæmis með Bítl
unum en vegna anna var það ill
mögulegt í ár.“
Pop-up brönsseðill
Emmy segir hlustunarstöðvar
verða á staðnum í dag og plötu
snúður, en einnig sé í bígerð
aðstaða fyrir lifandi tónlist. „Fyrstu
tónleikarnir verða 13. maí næst
komandi og svo er ætlunin að vera
reglulega með viðburði á staðnum.“
Í dag verður popup brönsseðill
á Bruggstofunni á milli klukkan 12
og 15. „Við ætlum að bjóða upp á
egg benedict með avókadó, huevos
ranchos og f leira. Það er því tilvalið
að fá sér í gogginn og kaupa sér svo
plötur. n
Vínylplötumarkaður
á nýjum hverfisstað
Emmy Winks hér ásamt Sigurði Snorrasyni, eiganda RVK Brewing Company, sem stendur að Bruggstofunni.
Fréttablaðið/Valli
Þegar ég bjó í Hlíð-
unum var ekki einu
sinni kaffihús þar, hvað
þá bar, það var enginn
staður í hverfinu fyrir
fólk að sækja. Það er
alveg hundleiðinlegt.
Skjálfta í bíó
Kvikmyndin Skjálfti sem byggð
er á sögu Auðar Jónsdóttur, Stóra
skjálfta, hefur slegið í gegn hérlendis
og erlendis. Ekki er að undra enda
um að ræða átakanlega fjölskyldu
sögu sem á erindi við alla og er hald
ið uppi af frábærum leikurum í fal
legum heildarramma. Upplifunin að
sjá slíkt verk í kvikmyndahúsi með
alvöru hljóðgæðum er auðvitað ein
stök og því um að gera að drífa sig í
bíó á meðan enn gefst færi á.
Góðum sólgleraugum
Nú þegar sumarið er gengið í garð
og sólin að hækka á lofti mælum við
sérstaklega með því að allir séu með
góð sólgleraugu. Sólarljós getur haft
skaðleg áhrif á augun líkt og húðina
og því er mikilvægt að velja sólgler
augun vel og að hafa í þeim góða
vörn gegn UVútfjólubláum geislum.
Hægt er að fá hjálp við valið í gler
augnaverslunum en lággæða sól
gleraugu geta jafnvel valdið meiri
skaða en það að ganga ekki með sól
gleraugu. n
Við mælum með
Ekki sér fyrir endann á klúðrinu í
kringum Íslandsbankaútboðið.
Forysta ríkisstjórnarinnar reynir
nú allt hvað af tekur að firra sig
ábyrgð á klúðrinu. Um páskana lágu
þau undir feldi og leituðu í ofboði að
bakara til að hengja fyrir smið.
Í ljós hefur komið að bakarinn er
Bankasýsla ríkisins. Hún skal bera
ábyrgðina og verður lögð niður.
Formenn ríkisstjórnarflokkanna
geta hins vegar ekki vikist undan
því að ábyrgðin er þeirra.
Áður en endalok Bankasýslunnar
voru tilkynnt var henni ætlað að
ljúka sölu á öllum hlut ríkisins í
Íslandsbanka fyrir árslok 2023.
Mark visst þarf að draga úr
umsvifum ríkisins á íslenskum fjár
málamarkaði. Nú hefur sleifarlag
stefnt því markmiði í voða.
Aðeins 1 prósent stuðnings
manna Vinstri grænna og 5 prósent
stuðningsmanna Framsóknar
flokksins eru ánægð með söluna.
Næstum helmingur Sjálfstæðis
manna er óánægður með söluna og
innan við 1/3 þeirra er ánægður!
Bankasala fjármálaráðherra fær
þannig falleinkunn í hans eigin
flokki.
Fjórir af hverjum fimm Íslending
um vilja sérstaka rannsóknarnefnd
Alþingis til að rannsaka banka
söluna. Nær 40 prósent Sjálfstæðis
manna vilja rannsóknarnefnd.
Þessu hafnar ríkisstjórnin.
Ljóst að traust almennings á
framkvæmd bankasölunnar er ekki
Þjóðþrifamáli klúðrað með sleifarlagi
n Í vikulokin
til staðar. Einnig er ljóst að yfirklór
ríkisstjórnarinnar mun ekki endur
reisa það traust sem til þarf.
Fjármálaráðherra og ríkisstjórnin
njóta ekki trausts til að selja eignir
ríkisins.
Fyrir vikið lítur út fyrir að umsvif
íslenska ríkisins á fjármálamarkaði
verði áfram þau mestu á Vestur
löndum á versta tíma. Reynslan
sýnir að hönd ríkisins er nábleik er
hún kemur nálægt rekstri fjármála
fyrirtækja, eða kannski náblá? n
Ólafur
Arnarson
Bakar-
inn er
Banka-
sýsla
ríkisins.
Guðmund-
ur segir
fullorðna
fólkið ekki
hafa þekkt
heiminn
sem hann
og vinir
hans lifðu
og hrærð-
ust í á
sínum
tíma.
bjork@Frettabladid.is
Unglingsárin hafa verið Guðmundi
Arnari Guðmundssyni yrkisefni í
tveimur kvikmyndum, fyrst Hjarta
steini og nú Berdreymi. Í skrifum
sínum sækir Guðmundur í ungl
ingsár sín og fjallar um tímabilið út frá sjónar
hóli unglinganna, ekki eins og við fullorðna
fólkið sjáum þau.
Guðmundur segir fullorðna fólkið ekki hafa
þekkt heiminn sem hann og vinir hans lifðu og
hrærðust í á sínum tíma. Heim sem einkennd
ist bæði af ofbeldi og einelti en einnig ríkri
samstöðu og hollustukerfi innan hópsins.
Það er gangur lífsins að börn þroskist frá for
eldrum sínum og sennilega myndu einhverjar
viðvörunarbjöllur fara af stað ef fréttist af ungl
ingi sem þætti foreldrar sínir alltaf toppurinn.
En á tímum umbreytinga og umróts, freistinga
og aukins frelsis, er mikilvægara en nokkurn
tíma að fylgjast með lífi barnsins sem er að
berjast við að vera ekki lengur barn.
Ekki bara spyrja hvað unglingurinn er að gera
eða klukkan hvað hann kemur heim, heldur
aðallega hvernig líður honum – í alvörunni. n
Hinn huldi heimur
22 Helgin 23. apríl 2022 LAUGARDAGURFréttablaðiðHeLGin Fréttablaðið 23. apríl 2022 LAUGARDAGUR