Fréttablaðið - 23.04.2022, Side 36

Fréttablaðið - 23.04.2022, Side 36
hagvangur.is Með umsókn skal fylgja ferilskrá um fyrri störf og menntun, ásamt kynningarbréfi, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið, auk nafna tveggja umsagnaraðila. Nánari upplýsingar um starfið veita Gyða Kristjánsdóttir, ráðgjafi Hagvangs, gyda@hagvangur.is og Geirlaug Jóhannsdóttir, ráðgjafi Hagvangs, geirlaug@hagvangur.is. Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020 og lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðningu er lokið. Laun taka mið af starfsmati og kjarasamningum viðkomandi BSRB/ASÍ félaga við Samband íslenskra sveitarfélaga Umsóknarfrestur er til og með 9. maí 2022. Vestmannaeyjabær auglýsir stöðu forstöðumanns Íþróttamiðstöðvarinnar lausa til umsóknar. Starfið felur í sér stjórnun og rekstur íþróttahúss og sundlaugar sem og annarra íþróttamannvirkja s.s. Týsheimilis og knattspyrnuhúss. Um er að ræða fullt starf og er leitast eftir metnaðarfullum leiðtoga sem getur hafið störf fljótlega. Helstu verkefni: • Fagleg og fjárhagsleg ábyrgð á starfsemi Íþróttamiðstöðvarinnar • Rekstur og dagleg stjórnun s.s. starfsmannahald, skipulag vakta ofl. • Gerð starfs- og fjárhagsáætlana • Dagleg umsjón og eftirlit með framkvæmd viðhalds mannavirkja, tækja og búnaðar Íþróttamiðstöðvarinnar og annarra íþróttamannvirkja • Annast innkaup til daglegs rekstrar, búnaðar og tækja • Annast niðurröðun æfingatíma í íþróttasali og sundlaug, undirbúa kappleiki, útleigu og aðra viðburði í húsinu • Náið samstarf við almenning, skólasamfélagið, íþróttafélög, stjórnendur bæjarins og aðra Menntunar- og hæfniskröfur: • Menntun sem nýtist í starfi • Stjórnunarreynsla og þekking á rekstri • Haldgóð þekking á málaflokknum • Þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt frumkvæði í starfi og faglegum metnaði • Góð tölvukunnátta • Góð kunnátta á íslensku máli í ræðu og riti • Þarf að standast hæfnispróf sundstaða, sundpróf og skyndihjálp • Hreint sakarvottorð Forstöðumaður - Íþróttamiðstöð Vestmannaeyjabæjar Sótt er um starfið á hagvangur.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.