Fréttablaðið - 23.04.2022, Page 41
Deildarforseti
félagsvísindadeildar
Háskólinn á Bifröst auglýsir lausa til umsóknar stöðu
deildarforseta félagsvísindadeildar háskólans
Deildarforseti leiðir akademískt starf og stefnumótun deildarinnar, hefur umsjón með námi innan hennar og situr í
framkvæmdastjórn skólans.
Við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst er fjölbreytt námsframboð og námsbrautir í heimspeki, hagfræði og
stjórnmálafræði; menningarstjórnun; miðlun og almannatengslum; opinberri stjórnsýslu; skapandi greinum; og áfallastjórnun.
Við leitum að einstaklingi með faglegan styrk, forystu í rannsóknum, reynslu af skólamálum á háskólastigi og metnað og
áhuga á að taka virkan þátt í starfsemi og uppbyggingu öflugs og framsækins háskólastarfs.
Háskólinn á Bifröst leggur áherslu á samþættingu fræða og framkvæmdar og er leiðandi í uppbyggingu hagnýts fjarnáms
á háskólastigi hér á landi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
•Stýring, skipulag og ábyrgð á faglegum störfum á sviði kennslu og rannsókna og inntöku nemenda.
•Leiðir þróunar- og gæðastarf deildar og ber ábyrgð á starfsmannamálum.
•Fjárhagsleg ábyrgð innan ramma fjárhagsáætlunar deildar.
•Tekur þátt í nefndarstarfi utan og innan skólans eftir atvikum.
•Kemur að kennslu og rannsóknum samkvæmt samkomulagi við rektor.
•Samstarf við stoðsvið.
•Samskipti við nemendur um akademísk málefni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
•Doktorspróf tengt fræðasviðum deildarinnar.
•Haldgóð leiðtoga- og stjórnunarreynsla.
•Þekking og reynsla af stjórnun og/eða kennslu á háskólastigi er mikilvæg.
•Þekking og reynsla úr atvinnulífinu er kostur.
•Skipulags-, samskipta- og samráðsfærni.
•Mjög góð færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti.
Með umsókn skulu fylgja skrár og staðfestingar yfir nám, starfsferil og rannsóknir og kynningarbréf þar sem kemur
fram m.a. lýsing á hugmyndum umsækjanda um uppbyggingu og þróun náms í félagsvísindum við Háskólann á
Bifröst. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Starfsaðstaða er á Bifröst og á skrifstofum skólans í Reykjavík
Nánari upplýsingar veita Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor, á rektor@bifrost.is eða Hulda Dóra Styrmisdóttir,
mannauðsstjóri, á mannaudsstjori@bifrost.is. Tekið er við umsóknum á atvinnumiðlunarvefnum Alfreð á alfred.is
Háskólinn á Bifröst vinnur samkvæmt jafnréttisáætlun háskólans og hvetur alla óháð kyni til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 12. maí 2022. bifrost.is
bifrost.is
Verkís er öflugt og framsækið ráðgjafarfyrirtæki sem býður
fyrsta flokks þjónustu á öllum sviðum verkfræði.
Yfir 330 manns starfa hjá fyrirtækinu að fjölbreyttum verkefnum
á Íslandi og erlendis.
Verkís er með útibú í öllum landshlutum og er það metnaður
stofunnar að veita staðbundna þjónustu sem víðast á landinu
með stuðningi annarra sérfræðinga Verkís.
VIÐ BYGGJUM UPP SAMFÉLÖG
Akureyri
– byggingar,
veitur, vega-
og gatnagerð
Húsavík
– byggingar
Egilsstaðir
– byggingar
Selfoss – byggingar, veitur
Reykjavík
Akranes – rafkerfi
Borgarnes – byggingar
Blönduós
– byggingar
Sauðárkrókur
Hvammstangi
Reyðarfjörður
– byggingar
Reykjanesbær
– byggingar
TÆKNISTÖRF
Á LANDS-
BYGGÐINNI
Vegna aukinna verkefna viljum við bæta við okkur öflugu
starfsfólki í útibúin okkar á landsbyggðinni.
Við höfum áhuga á jákvæðum einstaklingum sem hafa
metnað, sýna frumkvæði og sjálfstæði í starfi og eiga
auðvelt með að vinna með öðrum.
Störfin fela í sér að sinna hönnunarverkefnum á breiðu sviði
innan mannvirkjagerðar, fjölbreyttri alhliða ráðgjöf ásamt
eftirliti með verkframkvæmdum.
Menntunar- og hæfniskröfur
– Verkfræðingur / tæknifræðingur / byggingafræðingur
– Reynsla af hönnun og ráðgjöf
– Kunnátta í teikniforritum t.d. AutoCad, Revit eða Civil 3D
Nánari upplýsingar veita Elín Greta Stefánsdóttir
mannauðsstjóri, egs@verkis.is og Ari Guðmundsson
sviðsstjóri starfsstöðvasviðs, arg@verkis.is
Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2022.
Sótt er um á www.verkis.is
Ísafjörður
– byggingar