Fréttablaðið - 23.04.2022, Síða 41

Fréttablaðið - 23.04.2022, Síða 41
Deildarforseti félagsvísindadeildar Háskólinn á Bifröst auglýsir lausa til umsóknar stöðu deildarforseta félagsvísindadeildar háskólans Deildarforseti leiðir akademískt starf og stefnumótun deildarinnar, hefur umsjón með námi innan hennar og situr í framkvæmdastjórn skólans. Við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst er fjölbreytt námsframboð og námsbrautir í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði; menningarstjórnun; miðlun og almannatengslum; opinberri stjórnsýslu; skapandi greinum; og áfallastjórnun. Við leitum að einstaklingi með faglegan styrk, forystu í rannsóknum, reynslu af skólamálum á háskólastigi og metnað og áhuga á að taka virkan þátt í starfsemi og uppbyggingu öflugs og framsækins háskólastarfs. Háskólinn á Bifröst leggur áherslu á samþættingu fræða og framkvæmdar og er leiðandi í uppbyggingu hagnýts fjarnáms á háskólastigi hér á landi. Helstu verkefni og ábyrgð: •Stýring, skipulag og ábyrgð á faglegum störfum á sviði kennslu og rannsókna og inntöku nemenda. •Leiðir þróunar- og gæðastarf deildar og ber ábyrgð á starfsmannamálum. •Fjárhagsleg ábyrgð innan ramma fjárhagsáætlunar deildar. •Tekur þátt í nefndarstarfi utan og innan skólans eftir atvikum. •Kemur að kennslu og rannsóknum samkvæmt samkomulagi við rektor. •Samstarf við stoðsvið. •Samskipti við nemendur um akademísk málefni. Menntunar- og hæfniskröfur: •Doktorspróf tengt fræðasviðum deildarinnar. •Haldgóð leiðtoga- og stjórnunarreynsla. •Þekking og reynsla af stjórnun og/eða kennslu á háskólastigi er mikilvæg. •Þekking og reynsla úr atvinnulífinu er kostur. •Skipulags-, samskipta- og samráðsfærni. •Mjög góð færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti. Með umsókn skulu fylgja skrár og staðfestingar yfir nám, starfsferil og rannsóknir og kynningarbréf þar sem kemur fram m.a. lýsing á hugmyndum umsækjanda um uppbyggingu og þróun náms í félagsvísindum við Háskólann á Bifröst. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Starfsaðstaða er á Bifröst og á skrifstofum skólans í Reykjavík Nánari upplýsingar veita Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor, á rektor@bifrost.is eða Hulda Dóra Styrmisdóttir, mannauðsstjóri, á mannaudsstjori@bifrost.is. Tekið er við umsóknum á atvinnumiðlunarvefnum Alfreð á alfred.is Háskólinn á Bifröst vinnur samkvæmt jafnréttisáætlun háskólans og hvetur alla óháð kyni til að sækja um. Umsóknarfrestur er til og með 12. maí 2022. bifrost.is bifrost.is Verkís er öflugt og framsækið ráðgjafarfyrirtæki sem býður fyrsta flokks þjónustu á öllum sviðum verkfræði. Yfir 330 manns starfa hjá fyrirtækinu að fjölbreyttum verkefnum á Íslandi og erlendis. Verkís er með útibú í öllum landshlutum og er það metnaður stofunnar að veita staðbundna þjónustu sem víðast á landinu með stuðningi annarra sérfræðinga Verkís. VIÐ BYGGJUM UPP SAMFÉLÖG Akureyri – byggingar, veitur, vega- og gatnagerð Húsavík – byggingar Egilsstaðir – byggingar Selfoss – byggingar, veitur Reykjavík Akranes – rafkerfi Borgarnes – byggingar Blönduós – byggingar Sauðárkrókur Hvammstangi Reyðarfjörður – byggingar Reykjanesbær – byggingar TÆKNISTÖRF Á LANDS- BYGGÐINNI Vegna aukinna verkefna viljum við bæta við okkur öflugu starfsfólki í útibúin okkar á landsbyggðinni. Við höfum áhuga á jákvæðum einstaklingum sem hafa metnað, sýna frumkvæði og sjálfstæði í starfi og eiga auðvelt með að vinna með öðrum. Störfin fela í sér að sinna hönnunarverkefnum á breiðu sviði innan mannvirkjagerðar, fjölbreyttri alhliða ráðgjöf ásamt eftirliti með verkframkvæmdum. Menntunar- og hæfniskröfur – Verkfræðingur / tæknifræðingur / byggingafræðingur – Reynsla af hönnun og ráðgjöf – Kunnátta í teikniforritum t.d. AutoCad, Revit eða Civil 3D Nánari upplýsingar veita Elín Greta Stefánsdóttir mannauðsstjóri, egs@verkis.is og Ari Guðmundsson sviðsstjóri starfsstöðvasviðs, arg@verkis.is Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2022. Sótt er um á www.verkis.is Ísafjörður – byggingar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.