Fréttablaðið - 23.04.2022, Side 44

Fréttablaðið - 23.04.2022, Side 44
Skóla- og frístundasvið Stjórnandi Skólahljómsveitar Austurbæjar Skóla- og frístundasvið auglýsir stöðu stjórnanda Skólahljómsveitar Austurbæjar lausa til umsóknar. Reykjavíkurborg rekur fjórar skólahljómsveitir sem starfa í Vesturbæ-Miðbæ, Austurbæ, Árbæ-Breiðholti og Grafarvogi og heyra þær undir skóla- og frístundasvið. Skólahljómsveitir Reykjavíkurborgar starfa á grundvelli menntastefnu borgarinnar auk aðalnámskrár tónlistarskóla og eru í viðamiklu samstarfi sín á milli. Meginmarkmið þeirra er að jafna tækifæri nemenda til tón- listarnáms og stuðla að hæfni þeirra til að flytja, skapa og njóta tónlistar. Á sjötta hundrað nemenda stunda nám í skólahljóm- sveitunum og koma þeir fram á tónleikum hljómsveitanna og við fjölmörg önnur tækifæri sem tengjast starfsstöðum sviðsins. Auk þess taka þær virkan þátt í viðburðum í hverfum og víðar. Í Skólahljómsveit Austurbæjar eru nemendur á grunnskólaaldri og aðsetur hljómsveitarinnar er í Laugarlækjarskóla. Starfið fer fram í þremur blásarasveitum og skiptast nemendur í þær eftir aldri og getu. Kennt er á málm- og tréblásturshljóðfæri sem leikið er á í hefðbundnum blásarasveitum, auk slagverks og rafbassa. Megináhersla er lögð á að undirbúa og styðja nemendur vegna þátttöku í hljómsveitarstarfi. Leitað er að einstaklingi sem hefur kunnáttu og metnað til að leiða starf hljómsveitarinnar, vilja til að taka virkan þátt í öflugu samstarfi skólahljómsveita, hefur sýnt árangur í störfum sínum, býr yfir leiðtogahæfileikum og hefur víðtæka þekkingu og reynslu á sviði tónlistarmenntunar barna. Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur Látum draumana rætast þar sem leiðar- ljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska. Nánari upplýsingar: www.menntastefna.is Umsókn fylgi greinargerð í stuttu máli um hugmyndir umsækjanda um gildi og framkvæmd skólahljómsveitarstarfs og möguleika á samstarfi við grenndarsamfélagið. Auk þess fylgi umsókn yfirlit yfir nám og fyrri störf, upplýsingar um framsækin verkefni sem umsækjandi hefur leitt og annað sem málið varðar. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2022 Umsóknarfrestur er til og með 7.maí 2022 Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is Nánari upplýsingar um starfið veitir Soffía Pálsdóttir í tölvupósti soffia.palsdottir@reykjavik.is Helstu verkefni og ábyrgð • Ábyrgð á listrænni stjórnun og framkvæmd stefnu skóla- hljómsveita. • Móta stefnu og áherslur skólahljómsveita í samvinnu við stjórnendur. • Stjórn og ábyrgð á rekstri, skipulagi og daglegri starfsemi hljómsveitarinnar. • Ábyrgð á starfsmannamálum s.s. ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun. • Ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins. • Virk þátttaka í sameiginlegum verkefnum á skóla- og frístundasviði. • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk. Hæfniskröfur • Lokapróf á blásturshljóðfæri eða önnur hljóðfæri sem kennt er á hjá skólahljómsveitum Reykjavíkurborgar. • Framhaldsmenntun æskileg. • Reynsla af stjórnun hljómsveita. • Reynsla af kennslu og vinnu með börnum og unglingum. • Frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða. • Reynsla og þekking af rekstri og fjármálum æskileg. • Góð tækni- og tölvukunnátta. • Lipurð og hæfni í samskiptum. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Náms- og starfsráðgjafi og sálfræðingur óskast til starfa hjá Skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu Starfssvið sálfræðings • Almenn ráðgjöf og leiðsögn um sértæk úrræði til starfsfólks skóla og foreldra. • Athuganir, greiningar og ráðgjöf vegna einstakra ne- menda. • Skipulögð fræðsla til starfsfólks skóla og foreldra. • Þverfaglegt samstarf við samstarfsfólk og aðrar stoðþ- jónustur. Starfssvið náms- og starfsráðgjafa • Náms- og starfsfræðsla í elstu bekkjum grunnskóla. • Fræðsla í bekkjum um námstækni, skipulag og mark- miðssetningu. • Fyrirlögn og úrvinnsla áhugasviðskannana. • Stuðningur og ráðgjöf um líðan og námsframvindu einstakra nemenda. • Ráðgjöf um markmið, námstækni og námsval til eins- takra nemenda. Menntunar- og hæfnikröfur má sjá á heimasíðu Skólaþ- jónustunnar; vefur.skolamal.is. Hvort stöðugildi fyrir sig er 100%. Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi viðkomandi stéttar- félags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2022. Umsóknum skal fylgja ferilskrá um menntun og fyrri störf ásamt rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir eiga að berast forstöðumanni á netfangið thorunnjona@skolamal.is. Áhugasamir eru hvattir til að skoða heimasíðu Skólaþ- jónustunnar eða hafa sambandi við Þórunni Jónu Hauks- dóttur, forstöðumann (s. 488-4231). Fasteignamarkaðurinn ehf., sem er ein elsta og rótgrónasta fasteignasala landsins, óskar eftir að ráða til starfa nema til löggildingar/aðstoðarmenn í fasteignasölu til að sinna sölu fasteigna. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf umsækjenda berist á netfangið: gtj@fastmark.is Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál. Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík Sími 570 4500 • fastmark@fastmark.is • www.fastmark.is Jón Guðmundsson lögg. fasteignasali Guðmundur Th. Jónsson lögg. fasteignasali Nemar til löggildingar fasteignasala/aðstoðarmenn fasteignasala óskast til starfa Sjálandsskóli • Umsjónarkennari á miðstigi Leikskólinn Akrar • Deildarstjóri • Leikskólasérkennari Leikskólinn Holtakot • Deildarstjóri • Leikskólakennari Fjölskyldusvið • Aðstoð fyrir unga konu • Stuðningur við ungan mann – sumarstarf Krókamýri – heimili fyrir fatlað fólk • Sumarstarfsmaður Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef Garðabæjar https://starf.gardabaer.is gardabaer.is STÖRF HJÁ GARÐABÆ Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is RÁÐNINGAR RÁÐGJÖF RANNSÓKNIR 12 ATVINNUBLAÐIÐ 23. apríl 2022 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.