Fréttablaðið - 23.04.2022, Blaðsíða 44
Skóla- og frístundasvið
Stjórnandi Skólahljómsveitar Austurbæjar
Skóla- og frístundasvið auglýsir stöðu stjórnanda Skólahljómsveitar Austurbæjar lausa til umsóknar.
Reykjavíkurborg rekur fjórar skólahljómsveitir sem starfa í Vesturbæ-Miðbæ, Austurbæ, Árbæ-Breiðholti og Grafarvogi og
heyra þær undir skóla- og frístundasvið. Skólahljómsveitir Reykjavíkurborgar starfa á grundvelli menntastefnu borgarinnar auk
aðalnámskrár tónlistarskóla og eru í viðamiklu samstarfi sín á milli. Meginmarkmið þeirra er að jafna tækifæri nemenda til tón-
listarnáms og stuðla að hæfni þeirra til að flytja, skapa og njóta tónlistar. Á sjötta hundrað nemenda stunda nám í skólahljóm-
sveitunum og koma þeir fram á tónleikum hljómsveitanna og við fjölmörg önnur tækifæri sem tengjast starfsstöðum sviðsins.
Auk þess taka þær virkan þátt í viðburðum í hverfum og víðar.
Í Skólahljómsveit Austurbæjar eru nemendur á grunnskólaaldri og aðsetur hljómsveitarinnar er í Laugarlækjarskóla.
Starfið fer fram í þremur blásarasveitum og skiptast nemendur í þær eftir aldri og getu. Kennt er á málm- og tréblásturshljóðfæri
sem leikið er á í hefðbundnum blásarasveitum, auk slagverks og rafbassa. Megináhersla er lögð á að undirbúa og styðja
nemendur vegna þátttöku í hljómsveitarstarfi.
Leitað er að einstaklingi sem hefur kunnáttu og metnað til að leiða starf hljómsveitarinnar, vilja til að taka virkan þátt í öflugu
samstarfi skólahljómsveita, hefur sýnt árangur í störfum sínum, býr yfir leiðtogahæfileikum og hefur víðtæka þekkingu og
reynslu á sviði tónlistarmenntunar barna.
Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur Látum draumana rætast þar sem leiðar-
ljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska. Nánari upplýsingar: www.menntastefna.is
Umsókn fylgi greinargerð í stuttu máli um hugmyndir umsækjanda um gildi og framkvæmd skólahljómsveitarstarfs og möguleika
á samstarfi við grenndarsamfélagið. Auk þess fylgi umsókn yfirlit yfir nám og fyrri störf, upplýsingar um framsækin verkefni sem
umsækjandi hefur leitt og annað sem málið varðar. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2022
Umsóknarfrestur er til og með 7.maí 2022
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Soffía Pálsdóttir í tölvupósti soffia.palsdottir@reykjavik.is
Helstu verkefni og ábyrgð
• Ábyrgð á listrænni stjórnun og framkvæmd stefnu skóla-
hljómsveita.
• Móta stefnu og áherslur skólahljómsveita í samvinnu við
stjórnendur.
• Stjórn og ábyrgð á rekstri, skipulagi og daglegri starfsemi
hljómsveitarinnar.
• Ábyrgð á starfsmannamálum s.s. ráðningum, vinnutilhögun
og starfsþróun.
• Ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins.
• Virk þátttaka í sameiginlegum verkefnum á skóla- og
frístundasviði.
• Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og
fagfólk.
Hæfniskröfur
• Lokapróf á blásturshljóðfæri eða önnur hljóðfæri sem
kennt er á hjá skólahljómsveitum Reykjavíkurborgar.
• Framhaldsmenntun æskileg.
• Reynsla af stjórnun hljómsveita.
• Reynsla af kennslu og vinnu með börnum og unglingum.
• Frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar og vilji til að leita
nýrra leiða.
• Reynsla og þekking af rekstri og fjármálum æskileg.
• Góð tækni- og tölvukunnátta.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Náms- og starfsráðgjafi
og sálfræðingur
óskast til starfa hjá Skólaþjónustu Rangárvalla-
og Vestur-Skaftafellssýslu
Starfssvið sálfræðings
• Almenn ráðgjöf og leiðsögn um sértæk úrræði til
starfsfólks skóla og foreldra.
• Athuganir, greiningar og ráðgjöf vegna einstakra ne-
menda.
• Skipulögð fræðsla til starfsfólks skóla og foreldra.
• Þverfaglegt samstarf við samstarfsfólk og aðrar stoðþ-
jónustur.
Starfssvið náms- og starfsráðgjafa
• Náms- og starfsfræðsla í elstu bekkjum grunnskóla.
• Fræðsla í bekkjum um námstækni, skipulag og mark-
miðssetningu.
• Fyrirlögn og úrvinnsla áhugasviðskannana.
• Stuðningur og ráðgjöf um líðan og námsframvindu
einstakra nemenda.
• Ráðgjöf um markmið, námstækni og námsval til eins-
takra nemenda.
Menntunar- og hæfnikröfur má sjá á heimasíðu Skólaþ-
jónustunnar; vefur.skolamal.is.
Hvort stöðugildi fyrir sig er 100%. Laun og starfskjör eru
samkvæmt gildandi kjarasamningi viðkomandi stéttar-
félags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2022.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá um menntun og fyrri störf
ásamt rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknir eiga að berast forstöðumanni
á netfangið thorunnjona@skolamal.is.
Áhugasamir eru hvattir til að skoða heimasíðu Skólaþ-
jónustunnar eða hafa sambandi við Þórunni Jónu Hauks-
dóttur, forstöðumann (s. 488-4231).
Fasteignamarkaðurinn ehf., sem er ein elsta og rótgrónasta fasteignasala landsins,
óskar eftir að ráða til starfa nema til löggildingar/aðstoðarmenn í fasteignasölu
til að sinna sölu fasteigna.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf umsækjenda
berist á netfangið: gtj@fastmark.is
Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
Sími 570 4500 • fastmark@fastmark.is • www.fastmark.is
Jón Guðmundsson lögg. fasteignasali
Guðmundur Th. Jónsson lögg. fasteignasali
Nemar til löggildingar
fasteignasala/aðstoðarmenn
fasteignasala óskast til starfa
Sjálandsskóli
• Umsjónarkennari á miðstigi
Leikskólinn Akrar
• Deildarstjóri
• Leikskólasérkennari
Leikskólinn Holtakot
• Deildarstjóri
• Leikskólakennari
Fjölskyldusvið
• Aðstoð fyrir unga konu
• Stuðningur við ungan mann –
sumarstarf
Krókamýri – heimili fyrir fatlað fólk
• Sumarstarfsmaður
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef
Garðabæjar https://starf.gardabaer.is
gardabaer.is
STÖRF HJÁ
GARÐABÆ
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR
12 ATVINNUBLAÐIÐ 23. apríl 2022 LAUGARDAGUR