Fréttablaðið - 23.04.2022, Page 48
Háskólinn í Reykjavík | Menntavegur 1 | 101 Reykjavík | S: 599 6200 | hr.is
Forseti iðn- og
tæknifræðideildar
Iðn- og tæknifræðideild býður upp á tækninám á háskólastigi sem skilar nemendum vel undirbúnum út í atvinnulífið. Deildin er fjórða stærsta
deild Háskólans í Reykjavík. Boðið er upp á nám á 9 námsbrautum; þrjár í tæknifræði, þrjár í iðnfræði (byggingar, rafmagns og orku- og véla)
og byggingafræði sem og styttra diplómanám í rekstrarfræði og upplýsingatækni í mannvirkjagerð. Skipulag og uppbygging námsins byggir á
nánu samstarfi við atvinnulífið þar sem megin markmiðið er að láta hugvit og verkvit mætast.
Nánari upplýsingar veita Hera Grímsdóttir, forseti iðn- og tæknifræðideildar (hera@ru.is), Gísli Hjálmtýsson, sviðsforseti
tæknisviðs (gisli@ru.is) eða Ester Gústavsdóttir, mannauðsstjóri HR (esterg@ru.is). Umsóknum skal skilað á ráðningarvef
Háskólans í Reykjavík, jobs.50skills.com/ru/is, eigi síðar en 8. maí 2022 ásamt ferilsskrá og kynningarbréfi. Fyrirspurnir og
umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Háskólinn í Reykjavík leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starf forseta iðn- og
tæknifræðideildar. Deildarforseti fer með faglega stjórn deildarinnar og skal eiga
frumkvæði að stefnumótun innan hennar í samræmi við stefnu háskólans. Viðkomandi
ber einnig ábyrgð á rekstri og fjárhag deildarinnar. Deildarforseti heyrir undir sviðsforseta
tæknisviðs og situr í framkvæmdaráði Háskólans í Reykjavík.
LEITAÐ ER AÐ EINSTAKLINGI SEM HEFUR:
– Hæfni til að vinna að stefnumótun og uppbyggingu liðsheildar
– Lokið framhaldsnámi sem nýtist í starfi
– Reynslu af stjórnun, rekstri og mannaforráðum
– Reynslu af kennslu
– Góð tengsl og reynslu úr atvinnulífinu
– Áhuga á þróun tæknináms á Íslandi
HELSTU VERKEFNI:
– Ábyrgð á stjórnskipulagi deildarinnar samkvæmt
stefnu háskólans og að tryggja þátt starfsfólks og
nemenda í stjórnun hennar
– Gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlunar í samráði við sviðsforseta
– Stjórnun deildarinnar og upplýsingagjöf til starfsfólks
og nemenda
– Ráðning starfsfólks við deildina í samráði við
sviðsforseta og mönnun námskeiða
– Tryggja að skipulag námsbrauta sé áfram í samræmi við
viðmið um æðri menntun og prófgráður
– Uppfærsla og regluleg endurskoðun námsbrauta með hliðsjón
af þörfum atvinnulífs og þróun sambærilegs náms erlendis
– Stuðla að nýsköpun og hagnýtum verkefnum í góðu
samstarfi við atvinnulífið
– Ábyrgð á árlegu innra gæðamati deildarinnar ásamt
skipulagi og þátttöku deildarinnar í ytra mati í samræmi
við viðmið gæðaráðs háskólanna
– Mótun framtíðarsýnar og stefnu deildar, í takt við
stefnu háskólans og annarra deilda
2022 - 2025
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is
16 ATVINNUBLAÐIÐ 23. apríl 2022 LAUGARDAGUR