Fréttablaðið - 23.04.2022, Qupperneq 58
Hótel Borg hefur ávallt haft
yfir sér ákveðinn glæsileika
og þar hafa mörg fyrir-
mennin gist í gegnum árin.
Eftir nokkur döpur ár í sögu
hússins hefur nú verið tekið
til hendinni og húsið aftur
orðið að þeim sjarmastað
sem áður þekktist.
elin@frettabladid.is
Jóhannes Jósefsson, þekktur
glímukappi, lét byggja Hótel Borg
árið 1930. Æ síðan hefur Borgin
verið eitt af kennileitum Reykja-
víkur. Hótel Borg við Austurvöll
teiknaði Guðjón Samúelsson á
sínum tíma. Sálin sem einkennir
þessa fallega byggingu hefur nú
aftur yfir sér þann tignarbrag sem
áður var.
Um næstu mánaðamót verður
opnaður glæsilegur veitingastaður
á Hótel Borg. Einvalalið fagfólks
stendur að breytingunum og
má þar til dæmis nefna Hákon
Örvarsson matreiðslumann, sem
hefur lagt eldhúsinu til krafta
sína. Hákon vann til bronsverð-
launa í sterkustu einstaklings-
matreiðslukeppni heims, Bocuse
d’Or, í Frakklandi árið 2001.
Til að tryggja gestum góða upp-
lifun hafa hjónin Jóhann Gunnar
Arnarsson og Kristín Ólafsdóttir
komið að breytingunum. Jóhann
segir að þau hjónin beri mikla
virðingu fyrir veitingasögu húss-
ins og vilja endurspegla hana í
nýja veitingasalnum. Jóhann, sem
er fyrsti faglærði butler á Íslandi,
starfaði ásamt konu sinni lengi
fyrir forsetaembættið á Bessastöð-
um. Kristín er menntaður fram-
reiðslumeistari en hún hóf einmitt
nám sitt á Borginni. Undanfarin
fimm ár hafa þau rekið veiðihúsin
við Selá og Hofsá. Þá er Katrín Ósk,
dóttir þeirra, rekstrarstjóri veit-
ingastaðarins, en hún er lærður
framreiðslumeistari með margra
Gullöldin endurvakin á Hótel Borg
Hákon Örvarsson matreiðslumeistari mun sjá um eldhúsið á Hótel Borg.
Hann er hér með butlernum Jóhanni Gunnar Arnarssyni. MYND/SIGURJÓN
Salurinn hefur aftur fengið sitt glæsilega útlit.
Matseðillinn mun koma á óvart
þar sem verða klassískir réttir sem
Íslendingar þekkja.
Piparsteik eins og hún gerist flottust.
ára reynslu í faginu, fyrir utan það
að hafa lært öll trix foreldra sinna.
„Við ætlum að bera fram ljúf-
fenga, fallega og bragðgóða rétti
með hugsjón okkar að leiðarljósi,
ávallt í anda klassískrar matar-
gerðarlistar. Við berum mikla
virðingu fyrir veitingasögu
hússins, sem er gríðarlega mikil,
og ætlum að reyna að endurspegla
hana í daglegum störfum okkar
við matreiðslu og þjónustu,“ segir
Jóhann og bætir við: „Aðalmark-
miðið verður þó alltaf fyrst og
fremst að halda áfram að búa til
nýjar og góðar minningar fyrir
gestina okkar og starfsfólkið.
Gestir geta fengið sér rétti eins og
Tournedo Rossini, graflax, skelfisk
í smjördeigskænu (Vol-au-vent)
og margt f leira klassískt og gott,“
segir hann.
Unnið hefur verið að endur-
nýjun og uppfærslu salanna, með
það að leiðarljósi að gæta heildar-
myndar hússins og gera salina að
aðaldjásnum hússins. Þannig er
verið að mæta væntingum gest-
anna, sem hæfir þessu sögufræga
húsi. „Art Deco“-stíllinn svífur yfir
vötnum og Pálmasalurinn með
sínum tignarlegu gluggum út að
Austurvelli og Gyllti salurinn aftur
orðnir eins og þeir voru á gull-
aldarárum sínum,“ segir Jóhann.
Þrátt fyrir að veitingastaðurinn
á Hótel Borg verði færður aftur á
þann stall sem honum ber í þessum
glæsilegu, klassísku en samt sem
áður tímalausu húsakynnum, ætla
Jóhann og samstarfsfólk að stilla
verði þannig að hægt sé að gera
hann að samastað fyrir sem flesta,
ekki eingöngu þá efnameiri.
„Við verðum klassískt veitinga-
hús en um leið tímalaust og getum
boðið verð sem hentar öllum.
Staðurinn verður fyrir alla sem
vilja góðan, klassískan og heiðar-
legan mat. Matur í þessum anda
hentar fyrir alla aldurshópa og
alltaf verður notað fyrsta f lokks
íslenskt hráefni eftir því sem við
á,“ segir hann.
Saga Hótel Borgar var lengst af
samofin mikilli tónlist og margir
af frægustu tónlistarmönnum
Íslandssögunnar spiluðu þar. „Það
er okkur ljúft og skylt að halda
áfram þeirri sögu, þannig að tón-
list og dans verður enn á ný og
áfram hluti af veitingastaðnum
á Hótel Borg. Björgvin Sigvalda-
son fer fyrir þeirri vinnu en hann
er með reyndari hljóðmönnum
landsins. Vinna er í gangi að tengja
tónlistarflutning sögu hússins
frá tíma sveiflunnar. Tónlist
Ragnars Bjarnarsonar, Ellýjar og
hljómsveitar Svavars Gests verða
þar rauður þráður ásamt öðrum
nöfnum frá svipuðum tíma,“
segir Jóhann stoltur með þær
breytingar sem gerðar hafa verið á
Borginni. n
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460
Líttu við á
belladonna.is
Verslunin Belladonna
Erica tunikukjóll
Stærðir 38-56
Verð 13.980 kr
Lökke tunica
Stærðir 38-56
Verð 13.980 kr
Rosalia tunica
Stærðir 38-56
Verð 13.980 kr
100% náttúruleg
hvannarrót
60 HYLKI FÆÐUBÓTAREFNI
hvannarrót
Leyndarmál
hvannarrótar
Loft í maga?
Glímir þú við
meltingartruflanir?
Næturbrölt
Eru tíð þvaglát
að trufla þig?
Fæst í næsta apóteki, heilsuvöru-
verslun, Hagkaupum og Nettó.
6 kynningarblað A L LT 23. apríl 2022 LAUGARDAGUR