Fréttablaðið - 23.04.2022, Page 64
Unga fólkið í verkefninu Margar hendur vinna létt verk
vill aðstoða ykkur í sumar.
Við hjá Landsvirkjun höfum árum saman starfrækt
sumarvinnuflokka sem sinna uppbyggingu og fegrun
starfsstöðva fyrirtækisins og nágrennis.
Jafnframt taka flokkarnir að sér ýmis samstarfsverkefni
með nágrönnum okkar vítt og breitt um landið.
Við bjóðum fram vinnu sumarvinnuhópa og
verkstjórn í verkefni sem lúta að ræktun, hreinsun,
viðhaldi og öðrum umhverfisbótum, ásamt ýmsum
samfélagsverkefnum.
Umsóknarfrestur er til og með 16. maí og má
nálgast umsókn og allar nánari upplýsingar á
landsvirkjun.is/margarhendur
Hafðu samband ef þú ert nágranni okkar og vilt fá
vinnuhóp í heimsókn í sumar.
SamfélagSverkefni
Viltu aðstoð frá
góðum granna?
Sigrún Helga Lund, töl fræðing ur hjá
Íslenskri erfðagrein ingu, og Arn dís
Anna K. Gunn ars dótt ir, þingmaður
Pírata, gengu í hjónaband með
sjálfum sér í fertugsafmælisveislu
sinni á liðnu ári.
Vinkonurnar, sem eru fæddar
sama dag, héldu upp á sameiginlegt
fertugsafmæli með pompi og prakt
og segir Sigrún að hugmyndin að
athöfninni, sem Kamilla Einars-
dóttir rithöfundur stjórnaði, hafi
komið á fyrsta skipulagsfundi.
„Á fyrsta fundi sagði Arndís að
hún ætlaði aldrei að gifta sig svo
engu þyrfti að spara til fyrir atburð
aldarinnar. Þar með var fræinu sáð.“
Peppaði upp stemninguna
Vinkonurnar höfðu báðar verið
einhleypar lengi þegar kom að
veislunni sem haldin var í upphafi
síðasta árs í einni Covid-glufunni.
„Endalaus leiðindi í allt of langan
tíma kölluðu á eitthvað extra. Allir
okkar gleðipinnar og ömmur þeirra
voru í þörfinni fyrir gott partí og
Babies-ball í vændum,“ segir Sigrún
og á þá auðvitað við hljómsveitina
Babies. „Hvað væri betri leið til að
peppa upp stemmningu fyrir besta
ball ársins? Gleðin er gjöf sem
gefur.“
Amma fékk áfall
Veislan fór fram í Iðnó þar sem fjöl-
menni var mætt til að fagna afmæli
vinkvennanna. „Brúðkaupslaginu
með Todmobile var blastað yfir allt
Iðnó og mannfjöldinn myndaði gjá
í gegnum dansgólfið eins og Móses
hefði klofið mannhafið. Metsölu-
höfundur sem minnti okkur á að
tilfinningar væru fyrir aumingja
lét okkur heita því að elska okkur
sjálfar og virða ævidagana á enda,“
segir Sigrún, þegar hún er beðin að
lýsa athöfninni.
„Eilífðarunglingurinn Sigrún
klæddist kórkjól sem ég notaði
sautján ára í Menntaskólakórnum
við Hamrahlíð. Arndís reddaði sér í
Gyllta kettinum þá um morguninn.“
Aðspurð um viðbrögðin svarar
Sigrún: „Amma hennar Arndísar
fékk taugaáfall. Restin trylltist úr
púkaskap og gleði.“ n
Í raun ekkert skrítið
Berglind Guðmundsdóttir matar-
bloggari með meiru giftist sjálfri sér
á eyjunni Salina á Ítalíu árið 2019.
Berglind fór ein til Sikileyjar árið
2019 og einn áfangastaðurinn var
eyjan Salina.
„Þetta er lágstemmd og falleg
eyja með dásamlegu fólki. Um leið
og ég steig á eyjuna hugsaði ég: „Hér
væri yndislegt að gifta sig!“ Það var
bara eitthvað við hana sem öskraði
á brúðkaup. Ég hafði gantast aðeins
við börnin mín fyrr um árið þegar
þau voru að spyrja hvort ég ætlaði
aldrei að giftast aftur, að kannski
myndi ég bara giftast sjálfri mér,“
segir Berglind í léttum tón og segist
hafa hugsað með sér að kannski
myndi hún bara láta verða af því
núna.
„En svo var það bara of skrítið til
að láta verða af því. Ég var þarna í
nokkra daga og missti af ferjunni
síðasta daginn og þá hugsaði ég
með mér: „Ég á ekki að fara héðan
fyrr en ég giftist sjálfri mér. Svo ég
bara kýldi á það.“
Fannst ég verða að gera þetta
Berglind segist hafa verið að vinna
í sjálfri sér frá skilnaði árið 2015 og
upplifði að hún væri að komast á
góðan stað. „Á stað þar sem maður
upplifir innri ró og er sáttur í sjálf-
um sér. Ég get nú ekki sagt að mig
hafi á þeim tímapunkti langað að
vera konan sem giftist sjálfri sér en
þetta var hugmynd sem kviknaði
og mér fannst ég bara verða að gera
þetta. Ég hef alltaf staðið með þess-
ari ákvörðun því það er í raun ekk-
ert skrítið við að giftast sjálfum sér.
Í því felst bara að þú lofir að hugsa
vel um þig, tala fallega til þín, elska
þig og standa með þér í gegnum súrt
og sætt. Ég held að daginn sem þú
ert tilbúinn að giftast sjálfum þér
þá sértu tilbúinn í hjónaband með
öðrum.“
Berglind tók þetta alla leið þó hún
bendi á að eina sem þurfi sé hugs-
unin um að maður elski sjálfan sig.
Kjóll og fimm evru hringur
„Ég fór og fann hvítan kjól, keypti
mér fimm evru hring og meira að
segja morgungjöf frá mér til mín,“
segir hún í léttum tón. „Svo ætlaði ég
að fara inn í fallegu kirkjuna þarna á
Salina en hún var lokuð. Ég settist þá
bara á torgið fyrir framan kirkjuna
og játaðist sjálfri mér. Það kom mér
á óvart hversu falleg stund þetta
var og svei mér þá ef það komu ekki
nokkur tár. Bara yndisleg stund. Svo
fagnaði ég með góðum mat og Pro-
secco. Daginn eftir fór ég svo með
ferjunni til Palermo – gift sjálfri
mér.“
Annarra álit skiptir engu
Fjölmargir fylgjendur Berglindar á
Instagram sendu henni hamingju-
óskir þegar hún tilkynnti um brúð-
kaupið.
„Vinkona mín spurði samt hissa
hvort það væri hægt að giftast
sjálfum sér, sem ég skil vel. Svo var
gert skemmtilegt grín að þessu í
áramótaskaupinu sem ég hafði mjög
gaman af. Auðvitað fannst fólki
þetta skrítið enda er allt skrítið sem
er öðruvísi en hið hefðbundna. Ég
fékk ein skilaboð sem voru eitthvað
á þá leið: „Ef þú ert svona frábær, af
hverju þarftu þá að giftast sjálfri
þér?“ En ég held að þetta hafi verið
það eina neikvæða sem ég heyrði
– og fannst það bara fyndið – því
ef maður elskar sig og er með báða
fætur á jörðinni þá skiptir álit ann-
arra engu máli. Ég fer mínar leiðir
burtséð frá því hvað öðrum finnst.
Það er besta leiðin til að lifa,“ segir
hún kát að lokum. n
Berglind Guðmundsdóttir matarbloggari með meiru giftist sjálfri sér á
eyjunni Salina á Ítalíu árið 2019. mynd/aðsend
Sigrún Helga Lund, töl fræðing ur hjá Íslenskri erfðagrein ingu, og Arn dís Anna
K. Gunn ars dótt ir, þingmaður Pírata, gengu í hjónaband með sjálfum sér í fer-
tugsafmælisveislu sinni á liðnu ári. mynd/aðsend
Markaðurinn tekur við sér
Þó svo að hinn risastóri brúð-
kaupsiðnaður sé ekki kominn
með klærnar í þessi sóló
brúðkaup eru þónokkur fyrir-
tæki víðs vegar um heiminn
farin að sjá markað í hug-
myndinni.
Lúxushótelið Rosewood
Mayakoba við Riviera Maya
ströndina í Mexíkó býður
upp á fjögurra daga pakka
sem kallast „Marry Oneself
Journey.“ Slík brúðkaupsveg-
ferð fer fram í Rosewood Spa
hluta hótelsins sem er stað-
sett á lítilli eyju þar sem njóta
má kyrrðar og allra mögu-
lega lúxus-spameðferða auk
heilunarserimónía, stjórnað
af shaman.
Í þessum pakka er
aðaláherslan heilun en sam-
kvæmt heimasíðu hótelsins
er markmiðið sjálfsskoðun
í beinni tengingu við grunn-
frumefnin vatn, vind, jörð og
eld. Lokahnykkur meðferðar-
innar er svo brúðkaupið sjálft
þar sem skilyrðislausri ást og
samþykki brúðarinnar á sjálfri
sér er fagnað undir hand-
leiðslu shamans.
Á vefsíðunni imarriedme.
com má finna ýmsan varning
fyrir þann sem er að skipu-
leggja brúðkaup með engum
öðrum en sjálfum sér. Þar má
til að mynda kaupa giftingar-
hringinn í sérmerktum kassa
og stuttermaboli með áletrun
í takti við stóra daginn.
Staðfesting á sjálfsást
Þó að sjálfsbrúðkaupin verði
vinsælli eru þau þó hvergi í
heiminum bindandi gagn-
vart lögum. Einfaldlega er um
táknræna athöfn að ræða og
oft er hún meira til gamans
gerð.
Ekki er þó alltaf um létt
grín að ræða því margar kon-
ur hafa lýst athöfninni sem
valdeflandi og sem ákveðinni
staðfestingu á sjálfsást og
tryggð. Þær lofa því þá að
svíkja ekki sjálfar sig og hefur
loforðið líklega ákveðna
merkingu í huga hverrar og
einnar.
Sjálfsbrúðkaupin eru frá-
brugðin hefðbundnum brúð-
kaupum þó oftar en ekki sé
um að ræða brúðarkjól, köku
og einhvers konar veislu. Hið
augljósa er að enginn er brúð-
guminn en eins þarf sá sem
stjórnar athöfninni engin rétt-
indi, enda brúðkaupið ekki
lagalega bindandi – það þýðir
jafnframt að halda má það
hvar sem er í heiminum. Þeir
sem giftast sjálfum sér þurfa
svo auðvitað ekkert að skilja
finni þeir sér annan maka.
Ég held að daginn sem
þú ert tilbúinn að
giftast sjálfum þér þá
sértu tilbúinn í hjóna-
band með öðrum.
Þeir sem giftast sjálf-
um sér þurfa svo auð-
vitað ekkert að skilja
finni þeir sér annan
maka.
Lokahnykkur með-
ferðarinnar er svo
brúðkaupið sjálft.
Hétu að elska sig sjálfar
32 Helgin 23. apríl 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið