Fréttablaðið - 23.04.2022, Qupperneq 78
BMW hefur frumsýnt
i7 rafbílinn með allt
að 625 km drægi. Ekki
er von á tengiltvinn
útgáfum nýrrar 7línu
fyrr en á næsta ári.
njall@frettabladid.is
Ný kynslóð 7-línu í rafútgáfu er
byggð á CLAR-undirvagni BMW en
hann getur notast við allar gerðir
mótora. Ekki er um miklar breyt-
ingar að ræða frá útliti 7-línunnar
sem fékk andlitslyftingu nýlega.
Baklýst grillið er það sama, og bíll-
inn er með sama ljósabúnaði og
sást fyrst á honum. Fyrsta útgáfa
rafbílsins verður xDrive60 með tvo
rafmótora sem skila samtals 536
hestöflum og 745 Nm togi. Öflugri
M70 útgáfa mun koma á næsta ári
með 651 hestafl til að spila úr. Fyrsta
útgáfa bílsins verður samt f ljót af
stað en hröðun hans í hundraðið er
4,7 sekúndur og hámarkshraðinn
240 km á klst.
Rafhlaðan verður 101.7 kWst og er
aðeins 110 mm á þykkt. Hámarks-
hraðhleðsla verður 195 kW sem
þýðir að hægt er að hlaða 160 km
drægi á aðeins 10 mínútum. Alvöru
fjöðrun verður undir bílnum með
tvöföldum klöfum að framan og
fjölarma fjöðrun að aftan. Loft-
púðar verða staðalbúnaður og
hægt verður að lækka fjöðrunina í
sportútfærslu. Loks verður bíllinn
með fjórhjólastýringu sem beygir
afturhjól um allt að 3,5 gráður til
að auka grip í beygjum á meiri
hraða. Mælaborðið er svipað og
í iX en aftursætisfarþegar geta
fengið niðurfelldan úr loftinu 31,3
tommu há skerpuskjá. Hægt verður
að sérpanta bílinn með 2.000 watta
Bowers & Wilkins hljóðkerfi. n
BMW frumsýnir i7 rafbílinn
Sama upp-
setning er á
mælaborði og í
iX jepplingnum
með tveimur
bogadregnum
skjám.
BMW 7-línan fékk andlitslyftingu nýlega og er rafbíllinn með útlitið þaðan.
njall@frettabladid.is
Mercedes hefur frumsýnt EQS raf-
bílinn í sjö sæta jepplingsútgáfu og
eins og búist var við er hann ekkert
breyttur frá þeim myndum sem
þegar var búið að leka af bílnum.
Hann mun fara í sölu seinna á þessu
ári og þá fyrst með afturhjóladrif en
einnig er von á fjórhjóladrifsútgáfu
og svo Maybach lúxusútgáfu á seinni
stigum.
Bíllinn er á sama EVA2 undirvagni
og EQS bíllinn og á margt sameigin-
legt með þeim bíl, eins og rafhlöðu,
rafmótora og annan rafbúnað. Aft-
urhjóladrifsútgáfan verður með 355
hestafla rafmótor sem skilar 568 Nm
togi og er drægi hans í þeirri útgáfu
660 km. Fjórhjóladrifsútgáfan
verður einnig 355 hestöfl en togið
fer í 800 Nm, en drægið niður 610
km. EQS SUV verður fáanlegur með
allt að 22kW, þriggja fasa hleðslu-
getu sem hleður bílinn frá 0-100% á
5,5 klukkustund. Hraðhleðslugeta
bílsins verður 200kW sem þýðir að
hægt verður að ná 300 km drægi á
aðeins 15 mínútum og hlaða bílinn
10-80% á u.þ.b. 30 mínútum. n
Jepplingsútgáfa EQS
fær 660 km drægi
Líkt og EQS fólksbíllinn hefur hann sama langa hjólhafið.
njall@frettabladid.is
Lexus hefur frumsýnt fyrsta raf-
bíl merkisins sem byggður er sem
slíkur frá grunni. Bíllinn heitir RZ
450e og er á milli NX og RX í stærð
en með innanrými RX bílsins.
Lexus RZ 450e kemur á sama
undirvagni og Toyota bZ4X og er
með sama hjólhaf og hann. Bíllinn
kemur aðeins sem fjórhjóladrifsbíll
og þá með sérstöku aksturskerfi sem
Lexus kallar Direct4. Er það notað
til að dreifa afli milli hjóla og auka
þannig grip í beygjum. Sjá skynjarar
víða um bílinn um að senda upplýs-
ingar til kerfisins um hraða bílsins,
miðflóttaafl, hversu mikið er lagt
á stýri og svo framvegis. Að sögn
Lexus er kerfið mun hraðvirkara
en áður hefur sést. Bíllinn verður
fáanlegur með stýri sem kallast
One Motion Grip, sem einnig verður
fáanlegt í Toyota bZ4X í framtíðinni.
Er það tölvustýrt stýri sem breytir
átaki stýrisins eftir hraða og á mjög
litlum hraða er hreyfing þess enda á
milli aðeins 150 gráður, svo að ekki
þarf að sækja aftur stýrið heldur er
nóg að snúa því einu sinni. Stýrið
er þess vegna með öðru lagi en
hefðbundið kringlótt stýri. Bíllinn
kemur með 308 hestöfl til að spila úr
en 201 hestafl er frá framdrifi og 107
að aftan. Togið er 435 Nm og upp-
takið 5,6 sekúndur í hundraðið. Eins
og í bZ4X er rafhlaðan 71,4 kWst en
drægið verður rúmir 400 km. n
Lexus RZ 450e
rafbíllinn frumsýndur
Eins og sjá má er stýrið hannað til að
þurfa ekki marga snúninga eins og
hefðbundin stýri.
Lexus RZ 450e kemur aðeins í fjórhjóladrifsútgáfu.
Bíllinn verður fáan
legur með stýri sem
kallast One Motion
Grip sem einnig verður
fáanlegt í Toyota bZ4X.
Hringvegur (1)
frá Bæjarhálsi að Hólmsá:
Mat á umhverfisáhrifum
fyrirhugaðrar framkvæmdar
Vegagerðin, í samvinnu við Reykjavíkurborg og
Mosfellsbæ, áformar að tvöfalda Suðurlandsveg
frá vegamótum við Bæjarháls að Hólmsá ofan
Reykjavíkur. Vegagerðin hefur lagt fram
frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum
framkvæmdarinnar. Ráðgjafi Vegagerðarinnar við
umhverfismatið er verkfræðistofan EFLA.
Haldinn verður opinn kynningarfundur í
Norðlingaskóla, miðvikudaginn 27. apríl
kl. 17-19 þar sem niðurstöður umhverfismatsins
verða kynntar.
Fundurinn verður einnig í beinu streymi á
Facebook-síðu Vegagerðarinnar og
Facebook-síðu Reykjavíkurborgar.
Bílar FRéttaBLaðið 23. apríl 2022 laUGarDaGUr