Fréttablaðið - 23.04.2022, Page 80
Rúrí heldur myndlistarsýn-
ingu á Hlöðuloftinu, Korpúlfs-
stöðum. Yfirskrift sýningar-
innar er tilvitnun úr Völuspá,
Vituð þér enn – eða hvað?
Sýningarstjóri er Pari Stave.
kolbrunb@frettabladid.is
„Kveikjan að þessari sýningu er
innrásin í Úkraínu. Ég hef í verkum
mínum fjallað talsvert mikið um
af leiðingar stríðsátaka og kjarn-
orkuógnina sem mín kynslóð upp-
lifði og sá fyrir sér í æsku. Upplifun
æskunnar lifir oft lengi með manni,“
segir Rúrí.
Erfiðasta ferðin
Á sýningunni eru tvö eldri verk
hennar, Elegy frá árinu 2000 og
Safn frá árinu 1987. „Verkið Safn eða
Museum er innsetning sem fjallar
um hugsanlega framtíð. Það saman-
stendur af hlutum sem ég safnaði og
eru menningarleifar eða manngerðir
hlutir. Ég kom þeim fyrir í fimmtán
kistum sem eru númeraðar og lægsta
númerið er 105. Hugsunin er sú að
þessir hlutir séu það eina sem er eftir
af miklu stærra safni og það eina sem
gefi til kynna að mannkynið hafi
einhvern tíma verið hér. Hvers konar
sögu myndu verur sem kæmu síðar
að þeim lesa úr því?“ segir Rúrí.
Hitt verkið er myndbandsverk sem
hún gerði í kjölfar Bosníu stríðsins.
„Ég fór til Bosníu, Serbíu og Króatíu
í lok stríðsins, í ársbyrjun 1998. Páll
Steingrímsson, heitinn, maðurinn
minn, var með mér og tók upp fyrir
mig vídeó og ég ljósmyndaði. Úr því
efni gerði ég þetta myndbandsverk,
Elegy, sem Hilmar Örn Hilmarsson
samdi tónlist við. Þetta er harm-
ljóð um það sem maður sér við lok
styrjaldar.“
Spurð hvernig tilfinning það hafi
verið að koma á svæði þar sem stríði
er nýlokið segir Rúrí: „Þetta er erf-
iðasta ferð sem ég hef farið, ég horfði
á örbirgð, vonleysi og eyðileggingu.
Það var ekkert annað að sjá. En samt
var mér sýnd ótrúleg gestrisni af
fólki sem átti minna en ekki neitt. –
Mennskan lifir.“
Aftur í miðaldir
Um stríðið í Úkraínu sem er kveikja
sýningarinnar segir hún: „Við vitum
mætavel hvað hefur gerst í sögunni
og að of beldi skilar aldrei góðum
árangri. Það að hefja svona stríð í dag
er eins og að hverfa aftur í miðaldir
í aðferðafræði. Það er sorglegt að
horfa á okkur falla til baka á þennan
hátt sem mannkyn og vera ekki enn
búin að læra að rökræða og semja í
stað þess að fara fram með ofbeldi.
Ég gat ekki annað en gert athuga-
semdir við það sem er að gerast og
geri það best með sýningu.“
Sýningarstjórinn Pari Stave er
nýráðinn forstöðumaður Skaftfells,
myndlistarmiðstöðvar Austurlands
á Seyðisfirði. Hún var áður yfirmað-
ur nútíma- og samtímalistadeildar
Metropolitan Museum of Art í New
York.
Sýningin er opin frá 23. apríl til 15.
maí. Sýningaropnun er í dag, laugar-
daginn 23. apríl frá 14.00-18.00. Sýn-
ingin er síðan opin á laugardögum
og sunnudögum frá 13.00-18.00.
Laugardaginn 14. maí er hún opin
frá 15.00-18.00. n
Mennskan lifir
Kveikjan að sýningunni er innrásin í Úkraínu. Fréttablaðið/Valli
kolbrunb@frettabladid.is
Í tilefni af 120 ára afmæli Halldórs
Laxness, í dag 23. apríl, hefur verið
opnaður nýr vefur um skáldið og
verk hans og nefnist hann Skálda-
tími. Höfundur alls efnis á vefnum
er Pétur Már Ólafsson bókmennta-
fræðingur og útgefandi hjá Bjarti &
Veröld.
Á vefnum eru hátt í þrjátíu greinar,
pistlar, fyrirlestrar og kynningar
á verkum skáldsins en einnig for-
málar að sjö skáldsögum Halldórs
sem ættu að greiða lesendum leið
að þessum fjársjóði, ekki síst þeim
yngri, sem þekkja kannski síður til
verka hans.
Á upphafssíðu vefjarins skalda-
timi.is segir að þegar Pétur Már
Ólafsson hóf störf hjá bókaforlaginu
Vöku-Helgafelli árið 1991 hafi hann
fljótt séð að næst hjarta útgefandans,
Ólafs Ragnarssonar, stóðu verk Nób-
elsskáldsins og framgangur þeirra.
Pétur Már tók saman efni fyrir
fjölmiðla um Laxness fyrir níræð-
isafmæli skáldsins í apríl árið 1992.
Næsta áratug eða svo þróaðist þetta
síðan út í rannsóknir á verkum Hall-
dórs og að miðla fróðleik um verkin,
meðal annars með því að skrifa
formála að skáld-
verkum sem gefin
voru út í kilju og
halda fyrirlestra
og erindi heima
og erlendis.
Á vefnum segir
Pétur Már: „Það
var alla tíð mark-
mið okkar Ólafs
heitins Ragnarssonar að gera skáld-
skap Halldórs Laxness sem aðgengi-
legastan fyrir nýjar kynslóðir og
ber efnið á skaldatimi.is vonandi
þess merki. Á undanförnum árum
hefur mér fundist sem ungt fólk hafi
fjarlægst sagnaheim Halldórs. Ég
ákvað því í tilefni af 120 ára afmæli
hans árið 2022 að safna þessu efni
mínu saman um hann og senda út
í kosmosið í von um að það opni
einhverjum dyr að verkum Nóbels-
skáldsins og dýpki kannski skilning
annarra á þeim.“ n
Nýr vefur um Halldór Laxness
Pétur Már Ólafsson bókmennta-
fræðingur. Fréttablaðið/anton brink
Halldór Laxness
Verkið Safn samanstendur af
hlutum sem Rúrí safnaði.
Sunnudaginn 1. maí 2022 er boðað til
aðalsafnaðarfundar Hallgrímssafnaðar
í Hallgrímskirkju að messu lokinni.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Sóknarnefnd Hallgrímskirkju
Aðalfundur Hallgrímssafnaðar
Aðalfundur Hundaræktarfélags Íslands verður
haldinn miðvikudaginn 25. maí 2022 í Verslunar-
skóla Íslands, rauða sal og hefst kl. 20:00.
Dagskrá:
1. Skipan fundarstjóra, fundarritara og lögmæti fundarins kannað
2. Skýrsla stjórnar HRFÍ
3. Ársreikningar félagsins ásamt skýrslum löggilts endurskoðanda og félag-
skjörinna skoðunarmanna fyrir síðastliðið ár, lagðir fram til staðfestingar
4. Skýrsla um starfsemi siðanefndar
5. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar samþykkt fyrir næsta starfstímabil
6. Lagabreytingar
7. Formaður kjörstjórnar kynnir niðurstöður rafrænna kosninga til stjórnar-
manna kosnum skv. 10.gr
8. Kosning tveggja félagskjörinna skoðunarmanna og tveggja til vara
9. Kosning siðanefndar
10. Önnur mál
Kosningar 2. stjórnarmanna og 1. varamanns fara fram með rafrænum hætti og standa
frá kl. 18:00 miðvikudaginn 18. maí 2022 til kl. 18:00 miðvikudaginn 25. maí 2022, sbr. 10.
gr. laga HRFÍ. Til að greiða atkvæði skal farið inn á heimasíðu HRFÍ (www.hrfi.is) og finna
þar tengill fyrir kosningar 2022. Kosningin fer fram í gegnum Valmund, kosningakerfi
Advania hf. Til þess að kjósa með rafrænum hætti þarf félagsmaður að hafa nettengdan
snjallsíma eða tölvu og rafræn skilríki eða íslykil. Jafnframt þarf félagsmaður að vera
á kjörskrá, sbr. 5. gr. laga HRFÍ. Til að kjósa fer félagsmaður inn á heimasíðu HRFÍ og
smellir þar á tengil fyrir kosningar þar sem hann auðkennir sig með rafrænum skilríkjum
eða íslykli. Eftir auðkenningu birtast kjörseðlar. Við atkvæðagreiðslu til stjórnar skal kjó-
sa að hámarki tvo einstaklinga, en mögulegt er að kjósa einn einstakling eða taka ekki
afstöðu. Við atkvæðagreiðslu varamanns skal kjósa einn einstakling, en mögulegt er að
taka ekki afstöðu. Mögulegt er að endurtaka atkvæðagreiðslu en ný atkvæðagreiðsla
ógildir þá fyrri þannig að einungis síðast framkvæmda atkvæðagreiðsla gildir. Nánari
upplýsingar um framkvæmd kosninganna og reglur sem um þær gilda eru á heimasíðu
HRFÍ (www.hrfi.is).
Stjórn Hundaræktarfélags Íslands
AðAlfundur
Landssambands sumarhúsaeigenda.
Verður haldinn, fimmtudaginn 28. apríl í húsnæði Eignaumsjónar,
Suðurlandsbraut 30, Reykjavík (jarðhæð) kl. 18:00
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Á fundinum verður erindi frá Dóru Hjálmarsdóttur, verkfræðingi
vegna gróðurelda.
Stjórnin.
kolbrunb@frettabladid.is
Sumarsýning Safnahúss Borgar-
fjarðar nefnist Hennar voru spor.
Sýningarstjóri er Katrín Jóhannes-
dóttir, textílkennari við Hússtjórn-
arskólann í Reykjavík. Sýningin er
úr safnkosti Byggðasafns Borgar-
fjarðar, Listasafni Borgarness og
Héraðsskjalasafni Borgarfjarðar.
Um sýninguna segir Katrín:
„Hugsunin með sýningunni er því
að setja fram í dagsljósið fallega
muni, vandaða og oft með áhrifa-
ríka sögu að baki – í fögru umhverfi
sem gestir sýningarinnar taka á
einhvern hátt þátt í og ekki síður
að þetta sé sýning sem gestir finni
þörf hjá sér fyrir að skoða aftur og
sjái þá jafnvel eitthvað nýtt í hvert
skipti.“
Sýningin stendur til 19. ágúst. n
Alltaf eitthvað nýtt
Sumarsýning Safnahúss Borgar-
fjarðar er hafin. Mynd/aðsend
48 Menning 23. apríl 2022 LAUGARDAGURFréttAbLAðiðmenninG FréttAbLAðið 23. apríl 2022 LAUGARDAGUR