Fréttablaðið - 23.04.2022, Page 88
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild auglysingar@frettabladid.is
PRentun Torg ehf.
dReifing Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Óttars
Guðmundssonar
n Bakþankar
Guðmundur góði Arason Hóla-
biskup sendi vini sínum Þórði
Sturlusyni kveðju skömmu fyrir
andlát sitt. Þórður skellti skolla-
eyrum við þessum skilaboðum
sem hann reyndar skildi ekki.
Nokkru síðar þegar Þórður sjálfur
var dáinn áttuðu menn sig á inni-
haldi þessarar kveðju.
Mér datt þetta í hug fyrir
nokkru þegar gamall vinnufélagi
minn og vinur hringdi nokkuð
óvænt. Eiginlega átti hann ekkert
erindi annað en að þakka mér
fyrir samvinnuna á liðnum árum.
Ég lét mér fátt um finnast og sleit
samtalinu kurteislega eftir stutta
stund.
Skömmu síðar dó þessi maður.
Í jarðarförinni ræddi ég við
prestinn sem sagði að maðurinn
hefði hringt til sín þennan
umrædda dag til að skipuleggja
jarðarförina sína. „Hann skynjaði
feigðina,“ sagði klerkur. Ég sagði
honum þá frá símtalinu og hann
ályktaði að maðurinn hefði hringt
til að kveðja, „en þú máttir bara
ekki vera að því að tala við hann.
Hvernig heldurðu að honum hafi
liðið með það?“ Ég rifjaði upp
samtalið og harmaði að hafa ekki
hlustað betur.
Veikindi og nálægð dauðans
breyta öllum viðhorfum fólks
gagnvart umhverfi sínu. Á slíkum
stundum vilja margir fara á djúpið
og ræða tilfinningar sínar. Það
skiptir máli að viðmælandinn
skilji þetta og eyði ekki tímanum í
innihaldslaust hjal.
Þegar ég vann á Líknardeild
varð ég vitni að því hversu illa
síðustu dögum þessarar jarðvistar
er stundum varið. Margir skynja
ekki fyrr en viðkomandi er látinn
hversu margt var ósagt. Ég vildi
óska að ég hefði brugðist öðru-
vísi við þessu símtali míns gamla
vinar. Skyndilega var allt orðið
um seinan og f leiri orð ekki látin
falla. n
Síðasta spjallið
As
tri
d
Lin
dg
re
n
Kleppsvegi, Reykjavík
Suðurfell, Reykjavík
Dalvegi, Kópavogi
Suðurströnd, Seltjarnarnesi
Við tökum á móti plokki á
eftirfarandi Orkustöðvum:
PLOKK DAGURINN
ER 24. APRÍL
Nýtum orkuna í að plokka
STÓRI
UNDIR YFIRBORÐIÐ
MÁNUDAGA KL. 19.30
OG AFTUR KL. 21.30