Fréttablaðið - 28.05.2022, Blaðsíða 6
Þessi skýrsla dregur
skýrt fram að við
höfum ekki lagt nægi-
lega áherslu á þennan
málaflokk alltof lengi.
Willum Þór Þórsson,
heilbrigðisráðherra
AKRANES
ÞAÐ ER
STUTT Í
GLEÐINA
Heilbrigðisráðherra er
ánægður með nýja skýrslu
Ríkisendurskoðunar um geð-
heilbrigðismál. Betri yfirsýn
þurfi um fjárveitingar og
stjórnvöld geti bætt sig í mála-
flokknum.
adalheidur@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Ný skýrsla Ríkis-
endurskoðunar um stöðu geðheil-
brigðismála dregur skýrt fram að
ekki hafi verið lögð nægileg áhersla
á geðheilbrigðismál, segir Willum
Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
„Þessi skýrsla dregur skýrt fram
að við höfum ekki lagt nægilega
áherslu á þennan málaflokk alltof
lengi. Það er blessunarlega í betra
horfi og ég vísa þá í stefnu í geðheil-
brigðismálum og aðgerðaáætlun.
Nú erum við að fara aðra umferð í
því og getum bætt okkur að þessu
leyti.“
Ein af helstu niðurstöðum skýrslu
Ríkisendurskoðunar er skortur á
yfirsýn yfir málaflokkinn.
Upplýsingar um tíðni og þróun
geðsjúkdóma liggja ekki fyrir, ekki
er haldin miðlæg skrá um biðlista
og ekki hefur farið fram greining
á þjónustu og mannaflaþörf Land-
spítala. Þá liggja ekki fyrir upplýs-
ingar um fjárþörf og raunkostnað
þjónustunnar. Tölur um óvænt eða
alvarleg atvik við veitingu geðheil-
brigðisþjónustu eru ekki nægilega
aðgengilegar né upplýsingar um
fjölda kvartana til Embættis land-
læknis. Engin skráning á beitingu
þvingunarúrræða er fyrir hendi.
Ríkisendurskoðun varð sjálf
fyrir barðinu á þessari óreglu en í
skýrslunni er gagnrýnt hve erfið-
lega gekk að fá svör og upplýsingar
frá heilbrigðisráðuneytinu vegna
úttektarinnar: „Mátti Ríkisendur-
skoðun bíða mánuðum saman eftir
svörum við tilteknum spurningum,
þrátt fyrir ítrekanir. Ríkisendur-
skoðun telur jafnframt sum svör
ráðuneytisins hafa verið óskýr og
illa rökstudd þegar þau loks bárust,“
segir í skýrslunni.
Ráðherra segir verkefni geðheil-
brigðismála skarast milli ráðu-
neyta og ekki sé dregið skýrt fram
það umfang fjármagns innan heil-
brigðisráðuneytisins sem fari í geð-
heilbrigðismál. Það falli vissulega
undir skort á yfirsýn á málaflokk-
inn.
„Þetta er mjög víðfeðmur mála-
f lokkur og undir hatti nokkurra
ráðuneyta, það er þar sem við
verðum að bæta okkur í þessari
vinnu með geðheilbrigðismál,“ segir
Willum Þór, spurður hvort geðheil-
brigðismál hafi verið afgangsstærð
innan heilbrigðiskerfisins. Hann
segir geðheilbrigði þó lykilþátt í
lýðheilsu. „Ég held að við höfum
raunverulega bara sinnt því með svo
afmörkuðum hætti,“ segir ráðherra.
Í síðustu viku greindi Frétta-
blaðið frá því að Sjúkratryggingar
samþykktu að greiða fyrir meðferð
í Hollandi fyrir ungan íslenskan
dreng í sjálfsvígshættu. Hann hafði
verið á biðlista eftir að komast á
barna- og unglingageðdeild síðan
í fyrra og á þeim forsendum sam-
þykktu Sjúkratryggingar að greiða
fyrir meðferðina ytra.
Ráðherra segir þetta eðlilegt: „Við
erum þó þannig verklega, að þar
sem er ráðlagt að fara utan í ein-
hverjum tilvikum, þá reynum við
auðvitað að greiða leið fyrir þeirri
þjónustu í gegnum Sjúkratrygg-
ingar. Það er eðlilegt.“
Spurður hvort ekki væri skyn-
samlegra að fullfjármagna geðheil-
brigðisþjónustu segir Willum enda-
laust hægt að auka fjárveitingar.
„Við getum alltaf notað meira
fjármagn, sérstaklega í heilbrigðis-
þjónustunni og félagslegu þjónust-
unni.“ n
Ekki næg áhersla verið lögð
á geðheilbrigðismálin hér
Willum Þór
Þórsson heil-
brigðisráðherra
segir geðheil-
brigðismál
skarast milli
margra ráðu-
neyta. Það komi
niður á yfirsýn
um málaflokk-
inn.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
thorgrimur@frettabladid.is
SPÁNN Neðri málstofa spænska
þingsins samþykkti í á fimmtudag
frumvarp sem setur samþykki í
forgrunn skilgreiningar á nauðgun.
Með frumvarpinu, sem gengur
undir gælunafninu „Aðeins já þýðir
já“, er gerð sú breyting að þolendur
kynferðisofbeldis verða ekki lengur
að sanna að ofbeldi eða hótun hafi
verið beitt gegn þeim. Nauðgun er
skilgreind sem kynlíf án samþykkis.
„Frá og með deginum í dag er
Spánn frjálsara og öruggara land
fyrir allar konur,“ sagði spænski
jafnréttisráðherrann Irene Mont-
ero. „Við munum skipta út of beldi
fyrir frelsi og við munum skipta út
ótta fyrir löngun.“
Ríkisstjórn Pedro Sánchez og
Sósíalistaflokksins hefur talað fyrir
frumvarpinu frá árinu 2018. Nauðg-
unarlög Spánar urðu þá mjög umtöl-
uð eftir að myndband fór í dreifingu
af fimm karlmönnum nauðga 18 ára
gamalli stúlku í Pamplona.
Dómarar töldu ekki um nauðgun
að ræða þar sem konan hefði þagað
og ekki veitt mótspyrnu. Hæstirétt-
ur dæmdi mennina hins vegar fyrir
nauðgun. Efri deild spænska þings-
ins á eftir að kjósa um frumvarpið.
Þjóðarflokkurinn og hægripopúl-
istaflokkurinn Vox hafa mælt gegn
því að það verði að lögum. n
Ný nauðgunarlög eru
nú í farvatninu á Spáni
Irene Montero, jafnréttisráðherra Spánar, fagnar lögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
bth@frettabladid.is
AKUREYRI Oddvitar stjórnmála-
f lokka á Akureyri lýsa áhyggjum
af því að þeir sem minna megi sín á
Akureyri muni ekki fá málstað hjá
nýjum meirihluta.
L-listinn, sem vann kosningasigur
og er með þrjá menn, Sjálfstæðis-
f lokkur og Miðflokkur hafa gefið
út yfirlýsingu um að þeir muni ná
saman um að skipa meirihluta.
„Það er morgunljóst að á Akureyri
verður ekki hugað að neinni félags-
hyggju næstu fjögur árin,“ segir
Hrafndís Bára Einarsdóttir, oddviti
Pírata.
Hrafndís Bára segir að L-listinn
klifi alltaf á því fyrir kosningar að
þeir þurfi ekki að hlíta „boðvaldi að
sunnan“ af því að um sérakureyrskt
framboð sé að ræða. En nú sýni L-
listinn að hann sé bara fyrir útval-
inn hóp af Akureyringum. „Og þar
eru þeir sem verr standa ekki með á
kortinu,“ segir Hrafndís Bára.
Hilda Jana Gísladóttir, oddviti
Samfylkingarinnar, tekur undir
með að hægri áherslur kunni að
verða ráðandi. Hún segist óttast að
velferðarmál, umhverfis- og skipu-
lagsmál verði ekki sem skyldi.
„Mér þykir líklegt að mjög mikil
áhersla verði á íþróttir og of mikil
áhersla miðað við önnur mál,“
segir Hilda Jana. „Ég hef mestar
áhyggjur af því að þeir hópar sem
minna mega sín muni ekki hafa
málsvara.“ n
Óttast hægri áherslur
útvalinna á Akureyri
Hilda Jana
Gísladóttir, odd-
viti Samfylking-
ar á Akureyri
6 Fréttir 28. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ