Fréttablaðið - 28.05.2022, Síða 10

Fréttablaðið - 28.05.2022, Síða 10
Reyndar var búið að spá því að fjölgunin yrði enn þá meiri svo þetta er minni hvellur en fólk átti von á. Sunna Kristín Símonardóttir, félagsfræðingur Heilsuleikskólinn Kór í Kópavogi er sex deilda leikskóli sem var opnaður árið 2006. Allir leikskólar innan vébanda Skóla ehf. starfa í anda heilsu- stefnunnar sem hverfist um heilsu og lífsgæði nemenda, starfsfólks og nærsamfélagsins. Leikurinn, hreyfingin, næringin og sköpunin er okkar Hjá okkur er lögð áhersla á öruggt og hlýlegt umhverfi fyrir leik og þroska þar sem öll börn fá að upplifa leikskólann á sama hátt óháð hreyfigetu. Skólar ehf. ætla sér að verða leiðandi á sviði heilsueflingar í leikskólastarfi á Íslandi þar sem heilsustefnan er höfð að leiðarljósi og viðmið fyrir faglegt starf og rekstur heilsuleikskóla. Á góðum vinnustað er líkamleg og andleg heilsa í fyrirrúmi Það er ekki nóg að börnin séu heilsuhraust, heilsa starfsfólksins sem annast þau þarf líka að vera í fyrirrúmi. Skólar hafa markvisst byggt upp heilsu- stefnu sína í samvinnu við starfsfólk og sérfræðinga. Til að vinna að betra heilsufari starfsfólks var unnin sérstök heilsufars- áætlun í samstarfi við Heilsuvernd. Viðverustefna umbunar starfsmönnum fyrir góða viðveru en styður þá sem eitthvað bjátar á hjá. HEILBRIGÐ SÁL Í HRAUSTUM LÍKAMA Sex deilda heilsuleikskóli, Kór í Kópavogi HEILSUEFLANDI UMHVERFI Taktu þátt í að byggja upp heilsueflandi leikskóla i Kópavogi Við leitum að öflugu starfsfólki í eftirfarandi störf: – Sérkennslustjóri – Deildarstjórar – Leikskólakennarar – Leiðbeinendur – Fagstjóri í sköpun Allar nánari upplýsingar um störfin eru á alfred.is og um starfsemi Skóla ehf. á skolar.is Fæðingarárgangurinn 2021 er sá fjórði fjölmennasti hér á landi hingað til, en einungis fæddust hér fleiri börn árin 2009, 2010 og 1960. Félags- fræðingur segir Covid lík- lega skýringu en að aukin fæðingartíðni sé ólíkleg til frambúðar. birnadrofn@frettabladid.is SAMFÉLAG Á síðasta ári fæddust 4.879 börn á Íslandi. Það er fjölgun miðað við árið á undan þegar 4.512 börn fæddust hér á landi. Fæðingarárgangurinn 2021 var sá fjórði fjölmennasti en einungis fæddust hér f leiri börn árin 2009, 2010 og 1960. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands. Árin 2009 og 2010 má segja að hafi verið um margt óvenjuleg á Íslandi vegna bankahrunsins árið áður og það sama má segja um árið 2021 vegna Covid-19 faraldursins. Sunna Kristín Símonardóttir félagsfræðingur segir aðspurð að líklega megi tengja aukinn fjölda fæðinga hér á landi á síðasta ári við faraldurinn. „Þetta er sérstaklega áhugavert af því að í mörgum löndunum í kring- um okkur hefur Covid í raun og veru orðið til þess að fæðingartíðni lækki enn þá meira, en á sumum stöðum eins og á Íslandi virðist þetta hafa þau áhrif að hún eykst,“ segir Sunna. Hún segir engar rannsóknir hafa verið gerðar á aukinni tíðni fæðinga í kjölfar Covid en uppi séu hinar ýmsu getgátur. „Það sem við vitum er að konur eru að eignast börn síðar en þær gerðu áður fyrr og kannski opnaðist þarna einhver gluggi til að eignast barn eða bæta við barni,“ segir Sunna. „Við vorum meira heima við og margir hófu að líta inn á við, dytta að heimilinu, við ferðuðumst minna og vorum ekki jafnupptekin í þessu daglega amstri og það að eignast barn gæti verið hluti af því og því að líta inn á við,“ bætir Sunna við. Árið 1960, er 4.916 börn fæddust hér á landi, var fjöldi lifandi fæddra barna á hverja konu 4,27 börn. Fæðingartíðni hefur undanfarin ár farið minnkandi og árið 2009 var hún 2,22 börn á hverja konu. Á síðasta ári var fæðingartíðnin 1,82 börn á hverja konu, sem var þó meira en árið áður þegar hún var 1,72 börn. Samkvæmt Hagstofunni er yfirleitt miðað við að frjósemi þurfi að vera um 2,1 barn til að við- halda mannfjölda til lengri tíma. Sunna segist telja að þrátt fyrir að fæðingum hafi fjölgað á síðasta ári sé fæðingartíðni líklega ekki að aukast til frambúðar. „Reyndar var búið að spá því að fjölgunin yrði enn þá meiri svo þetta er minni hvellur en fólk átti von á,“ segir hún. Spáð hafði verið að yfir fimm þús- und börn myndu fæðast á síðasta ári. Hún segir að undanfarin ár hafi borið meira á því að konur taki meðvitaða ákvörðun um að eignast færri eða engin börn, þá séu konur einnig að verða eldri þegar þær eignist börn. Spurð að því hvernig hægt sé að auka fæðingartíðni að nýju til að viðhalda mannfjölda, segir Sunna réttu leiðina ekki þá að grípa til aðferða sem skerði frelsi kvenna eða að tala konur inn á það að eignast fleiri börn. „Þetta snýr frekar að jafnrétti og því að horfa á þau samfélagslegu kerfi sem við höfum skapað til að hjálpa foreldrum að sinna hlut- verkinu. Skólakerfið, leikskóla og fæðingarorlof, svo dæmi séu tekin,“ segir Sunna Kristín Símonardóttir. ■ Aðeins þrisvar fæðst fleiri á Íslandi en í fyrra Á síðasta ári fæddust 4.879 börn á Íslandi. Fleiri börn fæddust árin 1960, 2009 og 2010. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 10 Fréttir 28. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.