Fréttablaðið - 28.05.2022, Page 34

Fréttablaðið - 28.05.2022, Page 34
Gæða- og umhverfisstjóri ORF Líftækni, Víkurhvarf 7 Kópavogi I orfgenetics.com Menntun og hæfniskröfur Háskólamenntun sem nýtist í starfi Yfirgripsmikil þekking og reynsla í uppsetningu, innleiðingu og þróun gæðakerfis fyrir framleiðslu Þekking á lífsferilsgreiningu (e. life cycle assessment) og áhugi á umhverfismálum Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli Frumkvæði, fagmennska og metnaður til að ná árangri Skrifstofur, rannsóknarstofa og framleiðsla ORF Líftækni eru í Kópavogi auk þess sem félagið rekur eigið gróðurhús í Grindavík. Vegna nýrra og spennandi verkefna auglýsir ORF Líftækni hf. eftir gæða- og umhverfisstjóra. ORF Líftækni er sérhæft fyrirtæki á sviði plöntulíftækni, með áherslu á þróun og framleiðslu sérvirkra prótína (frumuvaka). Nýjasta vörulína ORF Líftækni er MESOkine, ný tegund dýrafrumuvaka fyrir framleiðslu á stofnfrumuræktuðu kjöti – vistkjöti. Framundan er hönnun og innleiðing á stórskalaframleiðslu dýrafrumuvaka og gæðakerfi í tengslum við hana, sem fellur að þeim kröfum sem bæði viðskiptavinir ORF gera, og lög og reglugerðir segja til um. Nýr umhverfis- og gæðastjóri kemur til með að stýra þessari vinnu. Þessi vinna mun m.a. byggja á þeirri gæðavottun sem ORF fékk árið 2014 fyrir framleiðslu á BIOEFFECT húðvörum. Umsóknarfrestur er til og með 12. júní - umsókninni skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni. Sótt er um á alfred.is. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað. Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarna- dóttir (audur@vinnvinn.is) og Garðar Óli Ágústsson (gardar@vinnvinn.is). VR er stærsta stéttarfélag landsins með um 37.000 félaga. Skrifstofur félagsins eru á Akranesi, Suðurnesjum, Selfossi, Egilsstöðum, í Reykjavík og Vestmannaeyjum. Hefur þú einlægan áhuga á að taka vel á móti fólki, aðstoða, upplýsa og leiðbeina, svo ekki sé talað um leysa úr krefjandi verkefnum? Ertu með jákvætt viðmót, nýtur þess að veita góða þjónustu, ert lausnamiðaður einstaklingur með góða tölvufærni og fær í útreikningum? VR óskar eftir að ráða einstakling í starf sérfræðings á kjaramálasviði félagsins í Reykjavík. Helstu verkefni: • Svara fyrirspurnum og sinna erindum félagsfólks er varða launa- og réttindamál. • Reikna út launakröfur. • Samskipti við félagsfólk og atvinnurekendur. • Vinna að innheimtumálum með lögmönnum félagsins. • Móttaka umsókna og ýmissa gagna, skráning upplýsinga og koma þeim í réttan farveg. • Fræðsla og kynningar. Hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. • Haldgóð reynsla af vinnumarkaði. • Góð færni í útreikningum og Excel. • Þekking og hæfni til að setja sig inn í kjaramál og kjarasamninga. • Jákvætt viðmót og einlægur áhugi á að vinna með fólki og fyrir fólk. • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í rituðu og töluðu máli. • Lausnamiðuð hugsun, frumkvæði og góð samskiptafærni. Umsóknarfrestur er til og með 6. júní nk. Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningar- bréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Sérfræðingur í kjaramálum 2 ATVINNUBLAÐIÐ 28. maí 2022 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.