Fréttablaðið - 28.05.2022, Qupperneq 34
Gæða- og
umhverfisstjóri
ORF Líftækni, Víkurhvarf 7 Kópavogi I orfgenetics.com
Menntun og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Yfirgripsmikil þekking og reynsla í uppsetningu, innleiðingu og þróun
gæðakerfis fyrir framleiðslu
Þekking á lífsferilsgreiningu (e. life cycle assessment) og áhugi á umhverfismálum
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
Frumkvæði, fagmennska og metnaður til að ná árangri
Skrifstofur, rannsóknarstofa og framleiðsla ORF Líftækni eru í Kópavogi auk
þess sem félagið rekur eigið gróðurhús í Grindavík.
Vegna nýrra og spennandi verkefna auglýsir
ORF Líftækni hf. eftir gæða- og umhverfisstjóra.
ORF Líftækni er sérhæft fyrirtæki á sviði plöntulíftækni, með áherslu
á þróun og framleiðslu sérvirkra prótína (frumuvaka). Nýjasta vörulína
ORF Líftækni er MESOkine, ný tegund dýrafrumuvaka fyrir framleiðslu
á stofnfrumuræktuðu kjöti – vistkjöti.
Framundan er hönnun og innleiðing á stórskalaframleiðslu dýrafrumuvaka
og gæðakerfi í tengslum við hana, sem fellur að þeim kröfum sem bæði
viðskiptavinir ORF gera, og lög og reglugerðir segja til um. Nýr umhverfis-
og gæðastjóri kemur til með að stýra þessari vinnu.
Þessi vinna mun m.a. byggja á þeirri gæðavottun sem ORF fékk árið 2014
fyrir framleiðslu á BIOEFFECT húðvörum.
Umsóknarfrestur er til og með 12. júní - umsókninni skal fylgja ferilskrá
og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur um færni. Sótt er um á alfred.is. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað.
Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarna-
dóttir (audur@vinnvinn.is) og Garðar Óli
Ágústsson (gardar@vinnvinn.is).
VR er stærsta stéttarfélag landsins með
um 37.000 félaga. Skrifstofur félagsins
eru á Akranesi, Suðurnesjum, Selfossi,
Egilsstöðum, í Reykjavík og Vestmannaeyjum.
Hefur þú einlægan áhuga á að taka vel á móti fólki, aðstoða, upplýsa og leiðbeina, svo ekki
sé talað um leysa úr krefjandi verkefnum? Ertu með jákvætt viðmót, nýtur þess að veita
góða þjónustu, ert lausnamiðaður einstaklingur með góða tölvufærni og fær í útreikningum?
VR óskar eftir að ráða einstakling í starf sérfræðings á kjaramálasviði félagsins í Reykjavík.
Helstu verkefni:
• Svara fyrirspurnum og sinna erindum félagsfólks er varða launa- og réttindamál.
• Reikna út launakröfur.
• Samskipti við félagsfólk og atvinnurekendur.
• Vinna að innheimtumálum með lögmönnum félagsins.
• Móttaka umsókna og ýmissa gagna, skráning upplýsinga og koma þeim í réttan farveg.
• Fræðsla og kynningar.
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Haldgóð reynsla af vinnumarkaði.
• Góð færni í útreikningum og Excel.
• Þekking og hæfni til að setja sig inn í kjaramál og kjarasamninga.
• Jákvætt viðmót og einlægur áhugi á að vinna með fólki og fyrir fólk.
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í rituðu og töluðu máli.
• Lausnamiðuð hugsun, frumkvæði og góð samskiptafærni.
Umsóknarfrestur er til og með 6. júní nk.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningar-
bréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur um hæfni
viðkomandi til að gegna starfinu.
Sérfræðingur í kjaramálum
2 ATVINNUBLAÐIÐ 28. maí 2022 LAUGARDAGUR