Fréttablaðið - 28.05.2022, Síða 76
kylfingur.is
KPMG hefur endurnýjað styrktar-
samning við Ólafíu Þórunni Krist-
insdóttur atvinnukylfing. KPMG
hefur verið einn aðalstuðningsaðili
Ólafíu Þórunnar síðastliðin ár og
er það í takt við stefnu félagsins
á alþjóðavettvangi að styðja við
afrekskylfinga í golfi.
Ólafía Þórunn hefur verið við
æfingar í Þýskalandi og dvelur þar
ásamt eiginmanni og syni. Hún
mun ferðast þaðan til að taka þátt
í mótum í Evrópu. Nú um helgina,
27. til 29. maí, leikur hún á Mithra
Ladies Open sem fram fer á Nax-
helet-golfvellinum í Belgíu.
„Við hjá KPMG erum stolt af því
samstarfi sem við höfum átt með
Ólafíu Þórunni undanfarin fimm
ár. Nú er hún komin út á keppnis-
völlinn aftur eftir fæðingarorlof og
það verður spennandi að sjá hana
í keppnum sumarsins. Við óskum
henni góðs gengis í sumar,“ segir
Jón S. Helgason, framkvæmdastjóri
KPMG.
„Ég er þakklát KPMG fyrir að hafa
áframhaldandi trú á mér til að sýna
hvað í mér býr úti á golfvellinum.
Stuðningur KPMG gerir mér kleift
að halda áfram að keppa í golfi og
næstu misseri er það verkefnið – að
ferðast á golfmót með Maroni syni
mínum og Thomasi manni mínum.
Markmið mitt er alltaf að standa
mig vel, gera sjálfa mig og alla sem
standa mér nærri stolta,“ segir
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. n
KPMG endurnýjar samning sinn við Ólafíu Þórunni
Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir
Á Evrópumóti stúlkna-
landsliða etja kappi fremstu
áhugakylfingar Evrópu, 18
ára og yngri
kylfingur.is
„Við munum nota tækifærið til að
hvetja ungar stúlkur til golfiðk-
unar,“ segir Þorvaldur Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri Golfklúbbsins
Odds, en Evrópumót stúlknalands-
liða fer fram á Urriðavelli 5. til 9. júlí.
„Undirbúningur gengur vel og það er
í sjálfu sér allt að verða klárt. Þetta
gekk mjög vel síðast og við hlökkum
til að taka á móti stúlkunum í ár.
Það er mjög gaman að fá efnilegustu
kylfinga Evrópu hingað til okkar og
við lofum frábærri skemmtun.“
Á mótinu etja kappi fremstu
áhugakylfingar Evrópu, 18 ára og
yngri. Evrópska golfsambandið
(EGA) sér um framkvæmd mótsins
í góðu samstarfi við Golfsamband
Íslands (GSÍ) og auðvitað Golf-
klúbbinn Odd (GO). Þetta er í annað
sinn sem þessir aðilar taka höndum
saman um verkefni af þessari stærð-
argráðu en, eins og Þorvaldur vísar
í, fór Evrópumót kvenna fram á Urr-
iðavelli árið 2016.
EM stúlknalandsliða fór fyrst fram
árið 1991. Fyrst um sinn á tveggja ára
fresti en frá árinu 1999 hefur mótið
farið fram árlega. Mótið á Urriðavelli
verður það 27. í röðinni frá upphafi.
Það hlýtur að vera mikil viður-
kenning fyrir klúbbinn og völlinn
að EGA leiti aftur til GO.
„Jú, það er mikil viðurkenning
fyrir íslenskt golf og það öfluga starf
sem unnið hefur verið á Íslandi, að
okkur sé falið verkefni á borð við
þetta. Það er einnig mikil viður-
kenning fyrir Urriðavöll og okkar
starfsfólk sem hefur haldið gæðum
vallarins á háu stigi í mörg ár. Við
búum að góðri reynslu og þekkingu
til að takast á við þetta skemmtilega
og krefjandi verkefni.“
Hvað eigið þið von á mörgum
hingað til lands í tengslum við mótið?
„Það má búast má við vel á annað
hundrað kylfingum ásamt þjálfara-
liðum og fylgdarliði frá 20 ríkjum
í álfunni. Þannig þurfum við ansi
marga sjálf boðaliða en sem betur
fer erum við í Oddi mjög lánsöm
með okkar félagsmenn. Félags-
andinn kom berlega í ljós árið 2016
þegar fleiri tugir félagsmanna lögðu
okkur lið. Ég er sannfærður um að
þeir taki einnig með stolti á móti
þessum frábæru kylfingum í sumar
og muni aftur fylkja liði til að gera
umgjörðina eins veglega og hægt
er. Þá munum við nota tækifærið, í
góðu samstarfi við GSÍ, til að hvetja
ungar stúlkur til golfiðkunar. Á
annan í hvítasunnu, 6. júní, verðum
við með kynningardag hér á svæð-
inu – Stelpugolf. Þá verður kynning
á golfi fyrir stúlkur 6-18 ára milli 11
og 14. Boðið verður upp á SNAG-golf
og pútt fyrir 6-11 ára og grunnat-
riði kennd stúlkum, 12 ára og eldri.
PGA-kennarar og PGA-nemar munu
sjá um kennsluna, að sjálfsögðu að
kostnaðarlausu. Þá verður stúlkna-
landslið Íslands á svæðinu, öllum til
hvatningar og þær munu sýna okkur
hvernig á að leika golf.“
Á sjálfan kvenréttindadaginn,
sunnudaginn 19. júní, verður lauf-
létt mæðgnamót á Par 3 vellinum,
Ljúflingi. Um er að ræða skemmti-
mót þar sem mæður og dætur eða
ömmur og ömmustelpur leika
saman í liði með Texas Scramble
fyrirkomulagi. „Með þessu viljum
við leggja okkar af mörkum við að
auka veg stúlkna í golfi á Íslandi.
Golfklúbburinn Oddur hafði síðast
þegar ég vissi hæsta hlutfall kvenna
meðal félagsmanna golf klúbba
á Íslandi, eða um 43 prósent, svo
kvennastarf er okkur hugleikið,“
segir Þorvaldur.
Kylfingi lék forvitni á að vita hvað
veldur þessum áhuga kvenna á starf-
inu í Urriðavatnsdölum.
„Já, það er fyrst og fremst kvenna-
nefndin okkar sem hefur verið
mjög öflug mjög lengi. Þær eru með
púttmótaröð yfir vetrartímann og
fjöldann allan af viðburðum yfir
sumartímann. Við erum mjög hepp-
in með okkar konur.“ Þorvaldur
segir því miður langan biðlista eftir
fullri félagsaðild eins og víða annars
staðar á höfuðborgarsvæðinu en
enginn biðlisti er eftir svokallaðri
Ljúflingsaðild.
„Ljúflingsaðild veitir fullt aðgengi
að Ljúf lingi en afslátt af f latar-
gjöldum á Urriðavöll. Margir hafa
nýtt sér þessa aðild, sumir hverjir á
meðan þeir eru á biðlista eftir fullri
félagsaðild en aðrir vilja eingöngu
Ljúflingsaðildina. Það eru um 200
að jafnaði á biðlista og alla jafna
tveggja ára bið.“
Þorvaldur segir félagsstarfið í
klúbbnum vera gott og að hann finni
fyrir auknum áhuga á starfinu með
uppbyggingu í Urriðaholtshverfi.
„Við búum við ákveðið aðstöðu-
leysi þar sem engin æfingaaðstaða
er á okkar svæði yfir vetrartímann.
Það hefur verið í deiglunni í mörg ár
hjá okkur að byggja upp vetraræf-
ingaaðstöðu en okkur hefur enn
ekki tekist að koma því verkefni
af stað. Þannig er okkar barna- og
unglingastarf minna í sniðum en
víða annars staðar. Við erum í góðu
samstarfi við GKG en okkar krakkar
eru með æfingatíma yfir veturinn í
íþróttamiðstöð þeirra. Í staðinn fá
nágrannar okkar að nota glæsilegt
æfingasvæðið hér á svæðinu, básana
sem við köllum Lærling.“ n
Efnilegustu kylfingar
Evrópu keppa á Urriðavelli
Evrópumót stúlknalandsliða fer fram á Urriðavelli í júlí og undirbúningur gengur vel. MYND/AÐSEND
kylfingur.is
Mikil spenna var á lokahring B59
Hotel-mótsins í k vennaf lokki
en leikið var á Garðavelli á Akra-
nesi 20. til 22. maí. Heiðrún Anna
Hlynsdóttir úr Golfklúbbi Selfoss
sigraði á fimm höggum yfir pari
Garðavallar, fimm höggum betur
en Kristín Sól Guðmundsdóttir úr
GM. Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir úr
GR hafnaði í þriðja sæti, einu höggi
á eftir Kristínu Sól.
Heiðrún Anna var með fimm
högga forskot á Jóhönnu Leu og sex
högga forskot á Kristínu Sól fyrir
lokahringinn en tapaði sex höggum
á fyrstu sex brautunum. Þannig
voru þær allar efstar og jafnar á sjö
höggum yfir pari þegar þær stigu
upp á 7. teig.
Kristín Sól tók forystuna þegar
hún fékk fugl á 10. braut á meðan
Jóhanna Lea fékk par og Heiðrún
Anna skolla. Heiðrún Anna fékk
fugl á 11. braut en hinar fengu
par. Heiðrún Anna setti í f luggír á
lokakaflanum og fékk þrjá fugla á
síðustu sex holunum og tryggði sér
sigur.
„Ég byrjaði lokahringinn ekki
vel og setti mikla spennu í þetta en
mér gekk vel á seinni níu svo þetta
bjargaðist,“ segir Heiðrún Anna en
hún stundar nám við Arlington-
háskólann í Texas og leikur golf
með skólaliðinu.
Hvernig kann hún við sig í Banda-
ríkjunum og hvernig finnst henni að
vera komin heim?
„Ég er mjög ánægð. Ég er að klára
þriðja árið og golfið hefur að mestu
gengið vel. Ég lenti í 2. sæti á Sun
Belt Conference mótinu í apríl og
var einu höggi frá efsta sætinu. En
það er líka mjög gaman að koma
heim og leika á mótaröðinni. Ég tók
mér smá frí á meðan ég var í prófum
úti og svo í einhverja daga eftir að ég
kom heim en síðan hef ég verið að
æfa á fullu og ætla að keppa stíft á
mótaröðinni í sumar.“ n
Fuglafjör tryggði
Heiðrúnu sigurinn
Heiðrún Anna
Hlynsdóttir
kylfingur.is
Sigurður Arnar Garðarsson úr
GKG sigraði á fyrsta móti GSÍ-
mótaraðarinnar, B59 Hotel-mótinu
á Akranesi sem fram fór 20. til 22.
maí. Sigurður Arnar lék samtals á
207 höggum (67-72-68) eða á níu
höggum undir pari Garðavallar,
þremur höggum betur en Axel
Bóasson úr GK.
Ingi Þór Ólafson úr GM hafnaði
í þriðja sæti, tveimur höggum á
eftir Axel. Aron Snær Júlíusson úr
GKG, sem deildi öðru sætinu með
Sigurði Arnari fyrir lokahringinn,
hafnaði í 4. sæti á þremur höggum
undir pari.
GSÍ-mótaröðin samanstendur af
sex mótum í sumar en þar á meðal
eru Íslandsmótið í holukeppni og
Íslandsmótið í golfi sem fram fer
í Vestmannaeyjum í ágúst. Stiga-
meistari GSÍ verður krýndur 20.
ágúst að loknum Korpubikarnum.
Í stuttu spjalli við Kylfing að
móti loknu sagði Sigurður Arnar
að hann hefði unnið mótið á f löt-
unum. „Ég var að pútta mjög vel.
Völlurinn er í mjög góðu standi og
nokkrar f latir eru virkilega f lottar.
Mót vinnast á stutta spilinu,“ sagði
Sigurður Arnar.
Sigurður hefur verið að reyna
fyrir sér á Ecco-mótaröðinni (Nor-
dic Golf Tour) í vor en hann segist
ætla að spila hér á landi í sumar. „Ég
tek sumarið hérna heima og fer svo
aftur á Ecco-mótaröðina í ágúst og
september reikna ég með. Ég stefni
svo á úrtökumót fyrir Evrópumóta-
röðina síðar í haust.“
Sigurður Arnar er nýorðinn tví-
tugur en hann er með skýr mark-
mið.
„Ég er með þriggja ára áætlun um
að komast inn á Áskorendamótaröð
Evrópu. Ég vil feta í fótspor Axels og
f leiri stráka sem hafa komist inn á
Áskorendamótaröðina. Það hefur
verið mjög gaman að ferðast og
spila með bæði Axel og Aroni Snæ
félaga mínum úr GKG. Þeir eru
toppgæjar sem ég lít upp til og get
lært mikið af,“ segir hinn efnilegi
Sigurður Arnar Garðarsson. n
Sigurður Arnar sigraði
á fyrsta móti ársins
Sigurður Arnar Garðarsson, kylfingur
Þorvaldur Þor-
steinsson, fram-
kvæmdastjóri
Golfklúbbsins
Odds
GOLF kylfingur.is FRÉTTABLAÐIÐ 28. maí 2022 LAUGARDAGUR