Fréttablaðið - 28.05.2022, Page 78
Guðspjall
Maríu er
með
stærstu
verkum
sem ég hef
skrifað en
líka ansi
flókið verk-
efni.
kolbrunb@frettabladid.is
Einar Magnússon sýnir málverk í
Artak105 gallerí Skipholti 9. Sýn-
ingin verður opin til 31. maí. Í lands-
lagsverkum sínum rýnir Einar í sögu
Íslands. Myndlistarferill Einars hófst
árið 2011 eftir erfið veikindi. Þá byrj-
aði hann í fyrsta sinn á ævinni að
mála en hann hafði áður starfað sem
sjómaður og rekið eigin fiskverslanir.
Fyrir nokkrum árum fluttist Einar
á hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð í
Kópavogi og hefur umbreytt her-
bergi sínu í stúdíó og málar þar. ■
Rýnir í sögu Íslands
Einar rýnir í sögu Íslands.
MYND/AÐSEND
Glæný óratoría eftir Huga
Guðmundsson, Guðspjall
Maríu, verður frumflutt á
Listahátíð í Reykjavík í sumar.
Hugi er eitt fremsta sam-
tímatónskáld þjóðarinnar
og hefur, auk þess að hljóta
fjölda viðurkenninga og verð-
launa, til að mynda tvívegis
verið tilnefndur til Tónlistar-
verðlauna Norðurlandaráðs.
„Verkið varð til að frumkvæði Harð-
ar Áskelssonar sem leitaði til mín og
bað mig um að gera stórt verk fyrir
Hallgrímskirkju þar sem hann starf-
aði þá. Ég ákvað að leita í hugmynd
sem ég hafði gengið með lengi, sem
var að semja tónlist við Guðspjall
Maríu, sem er rit frá fimmtu öld sem
segir frá nánu vináttusambandi
Maríu Magdalenu og Krists. Þar er
hún í raun einn af lærisveinum hans
en það er í mikilli mótsögn við skýr-
ingar margra guðfræðinga í gegnum
tíðina þar sem hún er frekar útmáluð
sem skækja eða vændiskona.
Ég uppgötvaði síðan að hand-
ritið er mjög illa farið og því erfitt
að nota það beint sem eina sam-
hangandi heild. Ég fékk því með
mér til halds og trausts konu sem
ég hef unnið mikið með sem heitir
Nila Parly og mann hennar, Niels
Brunse, sem er mikill bókmennta-
maður og Shakespeare-þýðandi og
fékk þau til að fylla upp í eyður. Ég
Óratoría um
Maríu Magdalenu
Verkið varð til
að frumkvæði
Harðar Áskels-
sonar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
kolbrunb@frettabladid.is
Sumarsýning í Nýp sýningarrými
2022, Nýp, Skarðsströnd, Dala-
byggð, verður opnuð í dag, laugar-
daginn 28. maí, og stendur til 15.
september. Brák Jónsdóttir mynd-
listarmaður hefur unnið verk sér-
staklega fyrir rýmið að Nýp. Sýn-
ingartexti er unninn af Joe Keys.
Með verkinu Sé, vefur Brák
Jónsdóttir saman þræði veru-
leika og ímyndunar við rannsókn
á umhverfi sínu. Vísanir verksins
í heim vísinda, safna, geymslu og
myndlistar varpa ljósi á dvöl lista-
mannsins að Nýp í aðdraganda að
vinnslu verksins, sem er unnið sér-
staklega fyrir Nýp sýningarrými.
Gler spilar stórt hlutverk í innsetn-
ingunni; horft er inn um það, út um
það, gegnum það.
Brák Jónsdóttir (f. 1996) lauk
námi við LHÍ vorið 2021 og er sjálf-
stætt starfandi myndlistarmaður.
Verkefni hennar fjalla gjarnan um
samband fólks og náttúru. Hún
vinnur með staði þar sem menn-
ing og náttúra mætast og valdið
sem þar birtist. ■
Veruleiki og ímyndun
Brák Jónsdóttir vann verkin sérstak-
lega fyrir sýningarrýmið.
MYND/SVEINN RAGNARSSON.
hafði ákveðna hugmynd um það
hvernig ég vildi byggja verkið upp
og þau unnu með mér í því og settu
síðan textann saman úr uppruna-
lega handritinu, öðrum forntextum
eftir kvenhöfunda og einnig sömdu
þau þrjú kórvers þar sem horft er á
atburðarásina utan frá. Einsöngvar-
inn í verkinu er María Magdalena
en kórinn bregður sér í f lest önnur
hlutverk, eins og lærisveina og guð-
spjallamanns.“
Mótunartími hjá Herði
Verkið verður f lutt í Hallgríms-
kirkju þann 6. júní sem hluti af
Listahátíð. Flytjendur eru Schola
Cantorum, Oslo Sinfonietta og
norska sópransöngkonan Berit Nor-
bakken. Hörður Áskelsson stjórnar.
Verkið verður f lutt í Kaupmanna-
höfn síðar í júní, þar sem það verður
einnig tekið upp til útgáfu og í Osló
í september.
„Ég er uppalinn hjá Herði í Mót-
ettukórnum, minn mótunartími
var þar að syngja ýmis stór tónverk
kirkjutónbókmenntanna. Ég tel
að það heyrist glöggt að Guðspjall
Maríu er skrifað úr þeirri hefð og
ætti því líka að höfða til þeirra sem
jafnan sækja slíka tónleika,“ segir
Hugi.
Einstök manneskja
Einn kafli verksins er tileinkaður
Hallfríði Ólafsdóttur flautuleikara
sem féll frá árið 2020. „Í verkinu eru
nokkur millispil þar sem blásturs-
hljóðfærin fá stuttan einleik, eins
konar hugleiðingar. Hugmyndin að
þeim köflum kviknaði um það leyti
sem Hallfríður féll frá og hún var
mér ofarlega í huga þegar ég skrifaði
flautusólóið. Ég var svo lánsamur að
hafa fengið að starfa töluvert með
henni og hún var einstakur flautu-
leikari og manneskja,“ segir Hugi.
Spurður hvað sé fram undan segir
hann: „Guðspjall Maríu er með
stærstu verkum sem ég hef skrifað
en líka ansi flókið verkefni að koma
á legg, því það er samstarf margra
aðila frá einum þremur löndum.
Það er því enn þá töluverð vinna í
því þótt tónlistin sé tilbúin fyrir
nokkru. Annars er ég að leggja loka-
hönd á nýja plötu með Kammersveit
Reykjavíkur með kammerverkum
eftir mig, en það er gríðarstórt verk-
efni sem hefur tekið langan tíma og
ég hlakka mikið til að komi út núna
í haust. Og svo er alltaf töluvert af
pöntunum sem bíða, bæði smáum
og stórum.“ ■
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
46 Menning 28. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 28. maí 2022 LAUGARDAGUR