Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2021, Page 9

Náttúrufræðingurinn - 2021, Page 9
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 101 Ritrýnd grein / Peer reviewed 0 10 0 0 20 0 0 30 0 0 40 0 0 50 0 0 1960 1970 1980 1990 2000 2010 2020 F jö ld i v ei d d ra d ýr a / T o ta l k ill ed f o xe s Ár / Year Grendýr / Denners Hlaupadýr / Runners Yrðlingar / Cubs Fullorðin dýr / Total adults 3. mynd. Veidd grendýr (rauðir punktar), hlaupadýr (svartir punktar) og yrðlingar (bláir punktar) árin 1958–2019. Línurnar sýna þriggja ára hlaupandi meðaltal. Alls voru á tímabilinu skráð 203.452 veidd dýr, þar af 114.221 fullorðin (gráir punktar og línur) og 89.231 yrðlingur. – Number of denning foxes (red dots), non-breeding foxes (black dots), and cubs (blue dots) that were killed in Iceland in the period 1958–2019. Lines show 3-year running average. In this period, a total of 203,452 foxes were killed, thereof 114,221 adults (grey dots and lines) and 89,231 cubs. Gögn/Data: Umhverfisstofnun / The Environment Agency of Iceland. og skráðum yrðlingum fækkaði ekki fyrr en eftir 2010 (3. mynd). Þess ber að geta að hlaupadýr eru veidd allan ársins hring og við mismunandi aðstæður. Þar af leiðandi er eðlilegt að sjá sveiflur í aflatölum um hlaupadýr og þarf það ekki að endurspegla breytingar á stofnstærð. Þótt greni séu friðuð með lögum (sjá 1. innskotsgrein, bls. 104) á það ekki við um veiðar grendýra því grenjavinnsla fer fram með þeim hætti að fylgst er með sömu þekktu grenjunum ár eftir ár og nýrra er leitað þegar ástæða þykir til. Af þeim sökum ættu tölur um veidd gren- dýr að vera nokkuð stöðugar í saman- burði við tölur um veidd hlaupadýr. Stærð refastofnsins Stofnmat fyrir árin 1979–2007 vann Páll Hersteinsson og hafði íslenski refastofninn þá verið í samfelldum vexti í rúm þrjátíu ár. Samkvæmt útreikn- ingum Páls var stofninn í sögulegu lág- marki, innan við 1.300 dýr, í upphafi stofnmælinganna en yfir 11 þúsund refir haustið 2007.10 Árið 2014 var birt stofn- mat sem náði fram til ársins 2010. Sam- kvæmt því hafði refum fækkað um 30% á árunum 2008–2010.23 Var þetta í fyrsta skipti síðan mælingar hófust árið 1979 að fækkun mældist í íslenska refastofn- inum. Í janúar 2018 var aftur birt mat á stærð refastofnsins. Það náði til ársins 2015 og staðfesti fyrri niðurstöður en gaf jafnframt til kynna að stofninn hefði haldið áfram að minnka og náð lág- marki árið 2012, en vaxið eftir það og verið stöðugur í kringum 7 þúsund dýr til ársins 2015.24 Í stofnmati sem birt var í maí 2021 kom fram að stofninn hefði rétt úr kútnum og að haustið 2018 hefði refastofninn verið um 8.700 dýr (8.668, CL= +/- 2.052 refir; 4. mynd).13 Í þessu stofnmati er gott samræmi við áður birta stofnútreikninga allt til ársins 2006, en ekki eftir það.10,13,23,24 Svo virðist sem áður birt stofnstærð fyrir árin 2007–2008 hafi verið ofmat, að lík- indum vegna þess að ekki lágu fyrir næg gögn til að nýta sem forsendur öruggs mats á þeim tíma. Því er fall stofnsins eftir 2008 heldur minna en áður hafði verið talið. Að því sögðu er síðasta árið (2018) líklega einnig ofmetið en þess ber að geta að öryggismörkin eru víð vegna óvissu í gögnunum. Refir í friðlöndum Af augljósum ástæðum er ekki hægt að beita sömu aðferðum, þ.e. mælingum og aldursgreiningu á hræjum veiddra dýra, við vöktun refa á svæðum þar sem veiðibann gildir. Annars staðar á Norðurlöndum hefur tófan verið á válista sem tegund − í bráðri hættu (CR) − um áratugaskeið, þótt tegundin hafi rétt talsvert úr kútnum á undan- förnum árum.25 Í finnska tófustofninum eru aðeins nokkur hlaupadýr og engin tímgun hefur verið staðfest þar síðan 1996.26 Innan landamæra Svíþjóðar voru skráð 36 pör með yrðlinga árið 2020 en ekki lagt mat á heildarfjölda.27 Í Noregi er talið að árið 2020 hafi verið um 300 dýr af tegundinni og hafði þá fjölgað fjórfalt í stofninum frá 2008.28 Mikill samgangur er milli melrakka í Noregi og Svíþjóð og til að leggja mat á og vakta skandinavíska tófustofninn er notast við blöndu nokkurra aðferða. Þekkt greni hafa verið kortlögð og eru þau heimsótt árlega til að leggja mat á ábúðarhlut- fall (fjöldi grenja í ábúð / fjöldi talinna grenja). Þar sem ábúð er til staðar er fjöldi yrðlinga skráður til að fá upp- lýsingar um gotstærð. Saur og feldi er safnað til erfðagreiningar og að auki sett reglulega senditæki á nokkur dýr til að fylgjast með ferðum þeirra. Í Noregi eru uppeldisstöðvar þar sem villt dýr eru höfð í haldi, þau pöruð og afkvæmum þeirra síðan sleppt (eyrnamerktum) á valda staði þar sem vitað er um laus greni og dýrunum er tryggð fæða.28 Á Svalbarða fer vöktun tófunnar einnig fram með því að heimsækja þekkt greni

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.