Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2021, Qupperneq 15

Náttúrufræðingurinn - 2021, Qupperneq 15
Hin mórauðu (ríkjandi) og hvítu (víkjandi) litarafbrigði melrakkans finnast í þremur erfðasætum: A (Agouti), B (Black) og E (Extention). Erfðavís- ar (gen) í A-sæti tjá fjölbreytileg litamynstur sem einkennast af ljósum kvið og dökku baki, og A-genið erfist alltaf sem Aw í tófum. Erfðavísar í E-sæti geta verið Ed sem er ríkjandi eða E sem er víkjandi.5 Ríkjandi erfðavísirinn Ed hamlar tjáningu A og dýrið fær dökkan lit (áhrif frá B) sem dreifist jafnt um allan skrokkinn. Víkjandi erfðavísirinn E hefur engin áhrif á tjáningu gena í A-sæti.55 Því þarf bara eitt Ed (EdEd eða EdE) til Litaerfðir Litarfar Colour morph Arfgerð Genetics Afkvæmi (ef báðir foreldrar hafa sömu arfgerð) Offspring (if both parents have the same gene types) Arfhreint mórautt dýr / Homozygote blue AwAw BB EdEd Öll mórauð / All blue (Ed) Arfblendið mórautt dýr / Heterozygote blue AwAw B- EEd Mórauð / Blue (-Ed), hvít / white (EE), bleik /beige (bb) Arfhreint hvítt dýr / Homozygote white AwAw BB EE Öll hvít / All white (EE) Arfblendið hvítt dýr / Heterozygote white AwAw B- EE Hvít / White (EE), bleik / beige (bb) Bleikt dýr / Beige* AwAw bb E- Bleik / Beige (bb E-) – Þýðir að ekki skiptir máli hvort genið er á móti, afkvæmin verða með sömu litum og lýst er. – Does not matter which gene is paired with this one, the offspring will be as described. * Erfðavísirinn b er mjög sjaldgæfur og afar sjaldgæft að báðir foreldrar séu með erfðavísinn. * A rare ecotype as it is seldom that both parents carry it. Erfðafræði feldlitar hjá melrökkum. – Fur colour genetics in Arctic foxes.5 að dýrið verði mórautt (dökkt og jafnlitað) en tvö E (EE) þarf til að dýrið verði hvítt (sjá töflu). Erfðavísar í sæti B eru nær allir ríkjandi í melrökkum en þó finnst víkjandi gen b sem veldur því að dökki liturinn verður ljós og dýrið verður ljósbrúnt. Þessi litur tjáist því aðeins ef báðir foreldrar hafa víkjandi b. Það er afar sjaldgæft en slík dýr finnast þó á öllum útbreiðslu- svæðum tegundarinnar. Hérlendis kallast þessi litur bleikur og stundum „landrover“. Tófur sem eru arfhreinar af víkjandi geni í E-sæti verða tvílit- ar á sumrin og enn ljósari en bleiki refurinn á veturna, þó ekki al-hvítar.5 Mórauð tófa í sumarbúningi. Enn má sjá leifar af vetrarfeldi á skotti en hvítu hárin í andlitinu eru varanleg enda eru mórauð dýr afar breytileg að lit þegar grannt er skoðað. – Arctic fox of the blue morph during summer. Remains of the winter coat can still be seen on the tail but the white facial hair is permanent and reflects the variety of the blue colour but has nothing to do with age. Ljósmynd/Photo: Einar Guðmann. Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélagsRitrýnd grein / Peer reviewed 107
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.