Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2021, Side 26

Náttúrufræðingurinn - 2021, Side 26
Náttúrufræðingurinn 118 Ritrýnd grein / Peer reviewed Hugtakið ferjun (e. phoresy) er notað um tengsl lífvera þar sem far- þegi (e. phoront), til dæmis humlumítill, festir sig tímabundið við aðra lífveru, svonefnda ferju, til dæmis humlu, og ferðast áfastur henni milli staða án þess þó að lifa á henni sníkjulífi. Sníkjulífi felur aftur á móti í sér að sníkjudýrið lifir á eða inni í annarri lífveru, svo- nefndum hýsli. Þar lifir sníkjudýrið á kostnað hýsilsins, langoftast með því að ræna hann næringu eða valda honum öðrum skaða og óþægindum. Skilin milli ferjunar og sníkjulífis geta orðið óljós, svo sem þegar fjöldi stórvaxinna mítla sem hangir utan á humlu er orðinn svo mikill að flughæfni flugunnar (ferjunnar) skerðist vegna þyngdaraukningar og skertrar hreyfigetu. Hér skiptir fjöldi farþega á hverjum tíma máli. Orðið phórēsis, sem stendur að baki alþjóðaorðinu um ferjun (e. phoresy, fr. phorésie, þ. Phoresie o.s.frv.), er grískt og dregið af sögninni phérō, að bera. Ferjun gegnir margvíslegu hlutverki í við- gangi tegunda þar sem þessi aðferð hefur þróast, svo sem að auka útbreiðslu farþegategundarinnar, flytja hana til nýrra búsvæða og einnig að koma í veg fyrir innræktun. Það gera sumir ásætumítlar með því að sleppa taki sínu á hárinu sem gripið hafði verið utan um í búi humlunnar og láta sig falla niður í blóm sem flugan heimsækir til að safna þar næringu og bera í leiðinni frjókorn milli blóma. Í blóminu getur mítillinn nefnilega skipt um ferju. Hann festir sig þá við flugu úr öðru búi, fylgir henni heim á leið og ber þannig nýtt erfðaefni inn í búið séu fleiri hans líkar þar fyrir. Ferjun, farþegar og ferjur Farþegar eru flokkaðir eftir sérhæfingu. (1) Ósérhæfðir farþegar nýta líkamsparta sem þegar eru til staðar, til dæmis klóskæri á haus eða króka á fótum, til að halda sér í ferjuna. Þessir líkams- partar eru svipaðir útlits hjá öllum lífsstigum tegundanna (gyðlum jafnt sem fullorðnum karl- og kvendýrum) og hafa margvíslegan annan tilgang en að festa sig við ferjuna, svo sem við fæðuöflun eða hreyfingu. Dæmi um ósérhæfða farþega eru stórvöxnu tegund- irnar, ránmítlarnir P. fucorum, P. longisetosus og P. marginepilosa, sem hafa öflug klóskæri til að grípa utan um hár sem standa út úr búk humlanna.18 Ljósmynd náðist af mítli sem hélt fast um hár humlu (6. mynd). (2) Hjá sérhæfðum farþegum er sérstakt gyðlustig nýtt til ferjunarinnar, flökkustigið. Það er að útliti frábrugðið öðrum lífsformum tegundarinnar, og er lagað sérstaklega að ferjuninni, svo sem með öflugu fyrsta fótapari til að hanga með, sogskálum á neðra borði eða þannig að límkennt efni, seytt úr kirtlum á afturend- anum, límir gyðluna við sléttan flöt á ferjunni.9,37 Fitumítillinn smá- vaxni Kuzinia cf. laevis (2. mynd) er ágætt dæmi um sérhæfðan far- þega. Hann festir sig tryggilega við ferjuna á hárlitlum eða sléttum líkamspörtum með sogskálum sem hann ber á afturhluta líkamans. Fullorðinsstig tegundarinnar lifir í humlubúinu og er gjörólíkt flökku- stiginu í útliti (2. mynd). Hin smávaxna tegundin á Íslandi, S. acaror- um, notar aftur á móti sérstaka króka á fyrsta fótapari til að krækja utan um hár á búk humlanna.42,43 Merkileg aðlögun hefur orðið hjá þessari tegund, því að auk þess að festa sig við hár á sjálfri humlunni nýtir hún stundum mítla eins og P. fucorum til ferjunar í stað flugunnar. Þá festir hún sig á hár hans þegar hann er far- þegi á flugu. Þessi hegðan er vel þekkt og nefnist á ensku hyper- phoresy.17,23,26,30 Í rannsókn okkar sáum við þetta stundum og náð- um af því ljósmyndum (7. mynd). 7. mynd. Tvö fullorðin kvendýr flosmítilsins Scutacarus acarorum (Prostigmata) (sjá 3. mynd) föst á haus annars stigs gyðlu mítilsins Parasitellus fucorum sem sjálf hékk föst á búkhári humlu. Á innfelldu myndunum sést hvernig S. acarorum krækir öflugum krókum á fremsta fótapari utan um hár á P. fucorum-gyðlu. – Two adult Scutacarus acarorum females attached to the head of Parasitellus fucorum deutonymph removed from a bumblebee. Example of hyperphoretic behaviour. Claws of tarsus on leg I hold fast onto body setae of the phoretic mite. Bjálki/scale bar = 500 µm. Ljósm./Photo: Karl Skírnisson & Guðný Rut Pálsdóttir.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.