Náttúrufræðingurinn - 2021, Blaðsíða 30
122
Náttúrufræðingurinn Ritrýnd grein / Peer reviewed
Brislingur, Sprattus sprattus
(Linnaeus, 1758), ný fisktegund
við Íslandsstrendur
Jónbjörn Pálsson, Guðjón Már Sigurðsson, Ingibjörg G. Jónsdóttir,
Klara B. Jakobsdóttir, Nicholas Hoad, Valur Bogason og Jón Sólmundsson
ÁRIÐ 2017 veiddist brislingur (Sprattus sprattus) í fyrsta sinn á Íslandsmiðum svo vitað sé. Á næstu árum fjölgaði brislingum
sem veiddust við landið og í rannsóknarleiðangri í mars 2021 fengust alls 375 brislingar, einkum fyrir Suður- og Vestur-
landi. Í leiðöngrum haustið 2021 fengust um 300 brislingar, nokkrir við Suðurland og í Faxaflóa en flestir í Arnarfirði
og Ísafjarðardjúpi. Með auknu innflæði hlýs sjávar á Íslandsmið síðan árið 1996 hafa nýjar tegundir veiðst við Ísland
og talið er líklegt að uppgangur brislings hér við land tengist hærri sjávarhita undanfarin ár. Ekki er enn vitað hvernig
hann kom til Íslands en flestir brislingar sem hafa verið kynþroskagreindir hér við land voru kynþroska. Staðfest er að
brislingur hrygndi við Ísland sumarið 2021 og það kann að auka líkurnar á því að þessi smávaxna fisktegund sé komin
til að vera. Tíminn leiðir síðan í ljós hvort brislingur festir sig í sessi og verður mikilvæg tegund í vistkerfi Íslandsmiða.