Náttúrufræðingurinn - 2021, Page 32
Náttúrufræðingurinn
124
Ritrýnd grein / Peer reviewed
Samkvæmt hefð er brislingi skipt í
þrjár undirtegundir eftir útbreiðslu-
svæði og meðalfjölda kjaltanna aftan
kviðugga (e. postpelvic scutes), sem
eru plötur úr þykkara hreistri: Sprattus
sprattus sprattus í Norðursjó og Erma-
sundi, Sprattus sprattus balticus í
Eystrasalt og Sprattus sprattus phalerius
í Svartahafi og Miðjarðarhafi.14 Rann-
sóknir síðari tíma á erfðaefni brislings
á útbreiðslusvæðinu hafa leitt í ljós að
erfðafræðileg tengsl hinna ýmsu stofna
eru flóknari en þessi þrískipting undir-
tegunda gefur til kynna.27−30
Miklar veiðar eru stundaðar á bris-
lingi og fer stærstur hluti aflans í mjöl
og lýsi, en lítilsháttar markaður er
fyrir hann til manneldis, ýmist ferskan,
reyktan eða niðursoðinn. Eins og búast
má við af fremur skammlífum torfufiski
hafa nýliðun og afli, bæði í Norðursjó
og Eystrasalti, verið sveiflukennd.31,32
Heimsafli brislings var 46 þúsund tonn
árið 1950 en jókst síðan nokkuð hratt
og var nær ein milljón tonn árið 1975.
Eftir það fór aflinn minnkandi, var
kominn niður í 220 þúsund tonn árið
1985 og ársaflinn var síðan undir 500
þúsund tonnum allt til ársins 1994 (3.
mynd).32 Frá árinu 1994 hefur ársaflinn
yfirleitt verið 600–700 þúsund tonn,
með umtalsverðum frávikum árin 2012
og 2013. Lang stærstur hluti aflans er
veiddur undan ströndum Norðvestur-
Evrópu og eru Danir þar stórtækastir;
veiddu um 37% heildaraflans á árunum
2010–2018.33 Þar á eftir komu Svíar með
14% og Pólverjar með 12%.
BRISLINGUR VIÐ ÍSLAND
Við Ísland veiddist brislingur í fyrsta
sinn svo vitað sé í lok ágúst árið 2017
í leiðangri Hafrannsóknastofnunar á
20 m dýpi undan Eyjafjallasandi (2.
mynd A, viðauki). Fiskurinn var 14,6 cm
langur og því líklega fullorðinn og kyn-
þroska. Enginn brislingur fékkst árið
2018, en haustið 2019 tók rannsóknar-
maður á Hafrannsóknastofnun eftir tor-
kennilegum kvörnum sem teknar höfðu
verið úr smáum síldfiskum, milli 9 og 16
cm á lengd, sem veiddust í Arnarfirði
og Ísafjarðardjúpi. Við nánari athugun
kom í ljós að kvarnirnar voru úr tveimur
brislingum.
Haustið 2020 fundust síðan bris-
lingar í þremur leiðöngrum Hafrann-
sóknastofnunar, fyrst í byrjun sept-
ember þegar einn fiskur veiddist rétt
undan Hjörleifshöfða og tveir austan
við Reynisdranga. Þessir fiskar voru
11–12 cm langir og veiddust á 14–29
m dýpi. Í leiðangri á Vestfjörðum
um mánaðamótin september-október
veiddust síðan fjórir fiskar, allir innar-
lega í Ísafjarðardjúpi, og voru þeir milli
8 og 12 cm langir. Þessir fiskar veiddust
á 66–83 m dýpi. Síðar um haustið veidd-
ust 29 fiskar á fjórum stöðum við suður-
ströndina og í Breiðafirði (2. mynd A,
viðauki). Þessir fiskar voru 12−15 cm
langir og veiddust á 71–135 m dýpi.
Í leiðöngrum í mars 2021 veiddust
alls 375 brislingar víða fyrir Vestur- og
Suðurlandi, frá Patreksfjarðarflóa suður
um og allt austur í Meðallandsbug. Oft-
ast veiddust 1–2 brislingar í togi, en
í þremur togum veiddist töluverður
fjöldi. Í mynni Kollafjarðar í Faxaflóa
veiddust 68 fiskar, undan Landeyjasandi
52 og undan Rangársandi fengust 225
fiskar (2. mynd A, viðauki). Alls voru 118
fiskar frystir um borð og færðir í land til
nánari rannsókna.
Sá brislingur sem var frystur um borð
í rannsóknaskipum í mars 2021 var síðan
þíddur í landi og tekinn til nánari rann-
sókna. Fiskarnir voru mældir nákvæm-
lega og kyn- og kynþroskagreindir. Við
þá greiningu var notað sama kerfi og
fyrir síld,34 og miðað við átta stig í kyn-
þroska þar sem stig 3 merkir að kyn-
kirtlar fylla um það bil helming kvið-
arhols, stig 4 merkir að kynkirtlar fylla
um það bil 2/3 af kviðarholi og stig 5
merkir að kynkirtlar fylla kviðarholið.
Þá var kvörnum til aldursgreiningar
safnað úr 23 brislingum.
Í þeim þremur togum þar sem
flestir brislingar veiddust var lengdar-
dreifingin innbyrðis mjög ólík. Einkum
skáru brislingarnir í mynni Kolla-
fjarðar sig frá hinum tveimur stöð-
unum (4. mynd A). Í mynni Kolla-
fjarðar var brislingurinn aðallega 14,5–
2. mynd. A. Fundarstaðir og fjöldi brislings (Sprattus sprattus) við Ísland eftir árum til október
2021. B. Útbreiðslusvæði tegundarinnar. – A. Records and number of sprat (Sprattus sprattus)
off the coast of Iceland until October 2021. B. General distribution of the species.
−24 −22 −20 −18 −16 −14
Lengdargráða / Longitude Lengdargráða / Longitude
64
65
66
B
re
id
d
ar
g
rá
ð
a
/
L
at
it
u
d
e
B
re
id
d
ar
g
rá
ð
a
/
L
at
it
u
d
e
40
50
60
70
−20 0 20 40
50 100 150 200Fjöldi / Number
2017Ár / Year 2019 2020 2021
A B