Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2021, Síða 33

Náttúrufræðingurinn - 2021, Síða 33
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 125 Ritrýnd grein / Peer reviewed 16 cm á lengd, en í togunum tveimur undan Suðurströndinni var hann mest 11–12,5 cm langur. Hlutfall kynja var ójafnt, hrygnur voru 79% fiskanna sem kyngreindir voru en hængar 21%. Það virðist lítið samband milli kynjahlut- falls og lengdarflokks í þessum sýnum (4. mynd A). Allir brislingar sem færðir voru að landi úr leiðöngrum í mars 2021 voru kynþroska, nema einn sem var einungis 7,6 cm langur (4. mynd B). Hrygnur voru mest á þroskastigi 3 og 4, hængar á stigi 4 og 5. Alls var kvörnum safnað til aldursgreiningar úr 21 hrygnu og 2 hængum (4. mynd C). Þar kemur fram að brislingar sem voru 15 cm eða stærri voru flestir fjögurra ára gamlir (einn fimm ára), flestir úr toginu í mynni Kollafjarðar. Minni brislingar voru nær allir tveggja ára. Frá mars til ágúst 2021 var sýnum safnað úr meðafla síldfiska í rækju- veiðum í Ísafjarðardjúpi og fengust nokkrir tugir brislinga í þeim sýnum (óbirt gögn). Í leiðöngrum Hafrann- sóknastofnunar í október 2021 fengust rúmlega 300 brislingar. Í Arnarfirði veiddust 122 fiskar á 51–85 m dýpi, í Ísa- fjarðardjúpi fengust 152 fiskar, flestir á 32–68 m dýpi og við Suðurland og í Faxaflóa alls 29 fiskar á 85–140 m dýpi (2. mynd A, viðauki). Lengd þessara fiska var svipuð og áður hafði sést hér við land. Úrvinnslu gagna er ekki lokið en skoðun á kynþroska sýndi að fisk- arnir höfðu langflestir hrygnt um sum- arið og fyrstu niðurstöður staðfesta að brislingur hrygndi í Ísafjarðardjúpi sumarið 2021 (óbirt gögn). UMRÆÐA Það telst til tíðinda þegar nytjafiskur eins og brislingur tekur sér bólfestu á nýjum hafsvæðum og stækkar þar með útbreiðslusvæði sitt. Nokkrar nytja- tegundir á Íslandsmiðum virðast hafa hagnast á þeim umhverfisbreytingum sem urðu í lok síðustu aldar og má þar nefna ýsu (Melanogrammus aegle- finus), gullkarfa (Sebastes norvegicus), langlúru (Glyptocephalus cynoglossus), þykkvalúru (Microstomus kitt), löngu (Molva molva) og skötusel (Lophius piscatorius) auk makríls (Scomber scombrus).35−37 Sama má segja um ýmsar smávaxnar suðlægar tegundir sem ekki eru nýttar en fást í stofnmælingum.9 Ekki var þó í öllum tilfellum um stöð- uga eða viðvarandi aukningu að ræða og misjafnt er eftir tegundum hvenær þeim fór að fjölga og hversu lengi sú uppsveifla stóð. Sem dæmi má nefna svartgómu (Helicolenus dactylopterus), litlu brosmu (Phycis blennoides), urrara (Eutrigla gurnardus) og loðháf (Etmopterus spinax), sem fóru að fást í vaxandi mæli á sunnanverðu land- grunninu í kringum 2005 og hafa verið algengar síðan. Trjónuhali (Coelor- inchus caelorhincus) fékkst fyrst við landgrunnsbrúnina árið 2009 og hefur verið árviss síðan þótt honum fari nú aftur fækkandi. Hið smávaxna silfurkóð (Gadiculus thori) fékkst í miklu magni árin 2011–2014 en sást varla fyrir eða eftir það tímabil. Ekki er ljóst um atburðarásina við komu brislings á Íslandsmið. Hugsan- legt er að brislingur hafi birst á miðunum einhverjum árum fyrir 2017, en sú stað- reynd að brislingur er mjög áþekkur síld í útliti gæti hafa gert það að verkum að tegundin uppgötvaðist seinna en ella hér við land. Þar sem tegundin er fremur strandlæg er ólíklegt að fyrstu fiskarnir hafi synt hingað frá Færeyjum eða Norðursjó. Líklegra er að egg eða seiði sem eru sviflæg hafi rekið hingað með hafstraumum. Aðalhafstraumarnir milli Íslands og Skotlands eru greinar úr Norður-Atlantshafsstraumnum og falla til norðausturs á því svæði, en strauma- kerfið er talsvert flóknara. Þannig falla hafstraumar sem eiga upptök sín bæði sunnan og norðan Færeyja norðvestur til Íslandsmiða, einkum síðari hluta árs.38 Í nýlegri grein um rekstefnur sviflægra lirfa frá ýmsum svæðum í Norðaustur-Atlantshafi kemur fram að lirfurek geti átt sér stað frá hafsvæð- inu milli Færeyja og Hjaltlandseyja til sunnanverðra Íslandsmiða.39 Stofn- gerð brislings í Atlantshafi er vel rann- sökuð og erfðafræðileg rannsókn á 3. mynd. Heimsafli brislings (Sprattus sprattus) eftir árum. FAO 2021.32 – World landings of sprat (Sprattus sprattus) by years. FAO 2021.32 0 250 500 750 1955 1960 1965 1970 1975 1980 1985 1990 1995 2000 2005 2010 2015 Ár / Year A fli (þ ú s. t o n n) / C at ch (t h o u s. t o n n es )
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.