Náttúrufræðingurinn - 2021, Qupperneq 47
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
139
SÍÐSUMARS 2019 gerðu greinarhöfundar sér ferð í Veiðivötn
á Landmannaafrétti ásamt hollenska listamanninum og ljós-
myndaranum Wim van Egmond. Ferðin var farin á vegum
Náttúruminjasafns Íslands í því skyni að taka ljósmyndir og
kvikmyndir til fræðslu um vatnadýr sem fáir hafa augum
litið. Vatnadýrið sem um ræðir er skötuormur. Hann lifir í
vötnum og tjörnum, einkum til fjalla, og segja má að hann
sé einkennisdýr vatna á hálendinu. Þetta er í fyrsta skipti
svo vitað sé að skötuormur er myndaður á heimaslóð og í
náttúrulegu umhverfi sínu hér á landi í þeim tilgangi að búa
til fræðsluefni. Ferðasöguna prýða nokkrar af myndunum
sem teknar voru í leiðangrinum.
SKÖTUORMURINN
Skötuormur (Lepidurus arcticus) er
krabbadýr af ættbálki barðskjöldunga
(Notostraca) og langstærsti hrygg-
leysingi í ferskvatni á Íslandi (1. mynd,
rammagrein).1 Hann er eini barð-
skjöldungurinn sem lifir hérlendis, en
að minnsta kosti 14 aðrar tegundir eru
þekktar um heim allan og skiptast þær
í tvær ættkvíslir, Lepidurus og Triops.2
Barðskjöldungar eru oft kallaðir lifandi
steingervingar því útlit þeirra hefur lítið
breyst síðastliðnar 200–250 milljónir
ára, eða frá því á trías-tímabilinu.3–5
Þetta sýna steingervingar sem fundist
hafa í jarðlögum frá þessum tíma og eru
sláandi líkir núlifandi dýrum.
Heimkynni skötuorms eru á norður-
slóðum, allt í kringum Norðurpólinn.6–8
Á kaldtempruðum svæðum, svo sem
í Skandinavíu og á Íslandi, lifir hann
nær eingöngu til fjalla. Skötuormur er
ein af fáum arktískum tegundum hér á
landi.9 Líklegt er að hlýnandi veðurfar
hafi neikvæð áhrif á útbreiðslu og lífs-
sögu skötuorms og er því mikilvægt að
vernda búsvæði hans eins og kostur er.
Tegundin er á válista í Finnlandi og Sví-
þjóð en ekki talin í útrýmingarhættu í
Noregi. Verndarstaðan hefur ekki verið
metin hér á landi.10–12
Skötuormar lifa í vötnum og tjörnum
um land allt, einkum á hálendinu.13,14
Þá er helst að sjá í grunnum tjörnum,
en einnig í djúpum og meðaldjúpum
stöðuvötnum þar sem þeir finnast
sjaldan lifandi heldur koma fram sem
fæða í silungamögum. Skötuormar
halda sig jafnan við botninn, líða áfram
eða synda í sprettum og eru kyrrir þess
á milli. Einnig eiga þeir það til að synda
upp í vatnsbolinn og hringsnúast síðan
til botns aftur. Þeir hafast aðallega við á
mjúkum og lífríkum leðjubotni, en þríf-
ast einnig á hörðum, lífsnauðum sand-
botni. Skötuormar eru rándýr og tæki-
færissinnar sem éta allt sem að kjafti
kemur, bæði lifandi og dautt, svo sem
þörunga, vatnaflær og rykmýslirfur.15,16
Þeir eru jafnframt eftirsótt fæða silungs
og vatnafugla. 8,15,17,
Lífssaga og vistfræði skötuorms er
ekki vel þekkt, hvorki hér á landi né
í öðrum heimkynnum hans, en allt
bendir til að hann sé einær og einungis
eggin lifi veturinn af.14,15 Eftir að ísa
leysir á vorin klekjast örsmáar lirfur
úr eggjunum, vaxa hratt og taka fljótt
á sig mynd fullorðna dýrsins.18 Skötu-
ormurinn heldur áfram að vaxa með
endurteknum hamskiptum allt sumarið
og fram á haust. Svo virðist sem líkams-
stærð, ekki árstími, ráði því hvenær
hann verður kynþroska, og hefst eggja-
framleiðsla þegar skjöldurinn er orðinn
um 7 mm langur, sem yfirleitt er um og
upp úr miðju sumri.19,20 Þegar varp hefst
verpir skötuormurinn viðstöðulaust á
hverjum degi, allt frá tveimur til ellefu
eggjum og verpir hvert dýr að meðaltali
18 eggjum.21 Dýrið losar eggin úr eggja-
sekkjum og festir á mosa eða steina þar
sem þau hvíla yfir veturinn og klekjast
næsta vor þegar hlýna tekur.
Æxlunarmáti skötuorms er ekki
þekktur til hlítar. Hann er ýmist talinn
fjölga sér með sjálfsfrjóvgun eða
kynæxlun. Langflest dýr eru tvíkynja,
karldýr þekkjast en eru sjaldséð.6,7,22
Nýlegar rannsóknir á Svalbarða benda
til að fæð karldýra stafi af því að kven-
dýrin éti þau hreinlega, enda eru karl-
dýrin iðulega minni.23
Íslenskar rannsóknir á skötuormi
eru ekki margar og er höfundum aðeins
kunnugt um tvær. Annars vegar kannaði
Árni Einarsson líffræðingur fæðu skötu-
orms með því að skoða magainnihald
nokkurra dýra úr Mývatni, Ljótapolli og
tjörnum á Vesturöræfum.15 Hins vegar
fór viðameiri rannsókn á vistfræði,
fæðu- og varpatferli skötuorms fram
í Veiðivötnum 1994–1996.14 Að henni