Náttúrufræðingurinn - 2021, Side 50
Náttúrufræðingurinn
142
4. mynd. Wim van Egmond að taka myndir af skötuormum í Skálanefstjörn í Veiðivötnum í ágúst 2019. – Wim van Egmond, artist and photo-
grapher, filming and photographing Arctic tadpole shrimps in Skálanefstjörn pond, Veiðivötn lake area, August 2019. Ljósm./Photo:
Þorgerður Þorleifsdóttir.
Nú tók gleðin völd og Wim hófst
handa við að taka bæði ljósmyndir
og myndskeið af skötuormum á botni
tjarnarinnar (4. mynd). Hlutverk okkar
greinarhöfunda var að koma auga á
nýja skötuorma og hafa auga með þeim
þangað til Wim vantaði nýja fyrirsætu.
Með þessu móti gat hann myndað
nokkurn veginn viðstöðulaust. Fljót-
lega kom þó í ljós að skilyrði til mynda-
töku voru óhagstæð þar sem birtan var
ekki ákjósanleg og vatnsgárurnar trufl-
uðu. Við þetta bættist að örðugt var að
fylgja skötuormum eftir með mynda-
vél á tjarnarbotni, enda eru þeir kvikir
í hreyfingum og stöðugt á ferðinni.
Því brugðum við á það ráð að safna
nokkrum dýrum í ker með leðju af botni
tjarnarinnar. Þar með var myndatakan
flutt heim í skála þar sem dýrin voru
mynduð í kerinu eftir að hafa fengið þar
frið í nokkra stund til að aðlagast nýju
umhverfi (5. mynd).
Á þriðja degi lét sólin sjá sig í fyrsta
sinn í ferðinni. Léttist þá heldur á
okkur brúnin og við huguðum að því að
mynda fleiri vatnalífverur. Í því skyni
héldum við gangandi að lítilli tjörn í
hraundæld sunnan við Skeifupyttlu þar
sem við höfðum séð vatnabjöllur og
fallegan vatnagróður tveimur dögum
áður. Veður var stillt, himinninn spegl-
aðist í tjörninni og í morgunkyrrðinni
gafst tækifæri til að fylgjast með fádæma
sundfimi tjarnatítna (Arctocorisa car-
inata) og vatnabjallna (Dytiscidae). Það
var með hálfum hug að við söfnuðum
nokkrum þeirra til að mynda við upp-
settar aðstæður innandyra seinna um
daginn (6. mynd). Á botni tjarnarinnar
mátti jafnframt sjá slorpunga (Nostoc),
sem eru hnöttótt, hlaupkennd sambýli
blágrænubaktería, og haustbrúðu (Call-
itriche hermaphroditica) sem er sjaldgæf
vatnaplanta.27
Þegar dagur var að kvöldi kominn,
og Wim sáttur við myndefnið sem hann
hafði náð, ákváðum við að halda heim
daginn eftir, þó með viðkomu í Skála-
nefstjörn til að svala þessari knýjandi
þörf okkar allra til að gera sífellt betur,
að ná ef til vill ennþá betri myndum.
Til byggða héldum við að lokum með
farteskið fullt af myndefni af skötu-
ormum og öðrum vatnalífverum og sæl
eftir dvölina í kyrrð Veiðivatna.
Aðdáunarvert var að fylgjast með
vinnubrögðum Wims, sjá hvernig hann
nálgaðist viðfangsefnið af innsæi lista-
mannsins og kunnáttu ljósmyndarans,
engu síður en náttúrufræðingsins, enda
hafði hann kynnt sér vel skötuorma og
atferli þeirra og spurt margs, og hafði
auðheyrilega einnig góða þekkingu á
öðrum vatnalífverum. Af mikilli hug-
kvæmni og þolinmæði leysti Wim
eitt vandasamasta viðfangsefni ljós-
myndunar við frumstæðar aðstæður
í Veiðivötnum – að ná réttri lýsingu á
myndefnið, smádýr á sífelldri hreyfingu.
Jafnframt var allur aukabúnaður sem
Wim notaði við myndatökurnar athygl-
isverður, í senn einfaldur og að hluta
til heimatilbúinn (4. og 6. mynd). Við
tökurnar notaði Wim nokkrar gerðir af
myndavélum og aðdráttarlinsum, meðal
annars vatnshelda makró-gleiðlinsu
(Laowa 24 mm, f/14 2X Macro Probe)
(sjá 5. mynd a) og vatnshelda mynda-
vél (Olympus TG-6) til að taka myndir
neðan vatnsborðs, ásamt löngustöng (e.
selfie stick).
LOKAORÐ
Afurðir leiðangursins, að eftirvinnslu
myndefnis lokinni, voru hátt á annað
hundrað ljósmyndir og myndskeið af
skötuormum og fleiri vatnalífverum
í náttúrulegu umhverfi sínu. Mikil
ánægja er með myndirnar og úr nægu
að moða til útgáfu prentaðs og raf-
ræns fræðsluefnis á vegum Náttúru-
minjasafns Íslands. Myndefnið hefur
þegar verið nýtt í fræðslu á vegum
safnsins, meðal annars á Vísindavöku
Rannís 2019, í innslagi um skötuorma
í sjónvarpsþættinum Nýjasta tækni og
vísindi á RÚV 28. september 2020 og í
fræðslumola á vefsetri, fésbókarsíðu og
Instagram-síðu safnsins.a