Náttúrufræðingurinn - 2021, Side 59
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
151
Ritrýnd grein / Peer reviewed
1. tafla. Hæð (m) fundarstaða skötuorms yfir sjávarmáli eftir landshlutum (n=237)
− Height (m a.s.l.) of Arctic tadpole shrimp locations by country regions (n=237).
Vesturland
W-Iceland
Vestfirðir
Westfjords
Norðurland
N-Iceland
Austurland
E-Iceland
Suðurland
S-Iceland
Meðaltal / Mean 357 399 447 593 530
St.sk. / SEM 37,1 18,0 25,2 19,4 14,8
Miðgildi /
Median
420 420 480 628 580
Lággildi / Min 104 140 7 155 53
Hágildi / Max 480 495 915 797 683
Spönn / Range 376 355 908 642 630
n 11 25 79 39 83
tímabili. Veiðivötn eru gott dæmi um
þetta. Elsta heimildin frá Veiðivötnum er
frásögn Þorvalds Thoroddsens um rann-
sóknarferð sína árið 1886,26 en þær sem
nær okkur standa í tíma eru frá áttunda
áratug síðustu aldar,31,32 þ.e. fiskirann-
sóknir á vegum Veiðimálastofnunar sem
síðan hafa verið allreglulegar33 og svo
rannsóknir höfunda þessarar greinar.11
Ekki er útilokað að áherslur í rann-
sóknum á tilteknum svæðum á landinu
kunni að skekkja nokkuð mynd okkar af
dreifingu skötuorms í landinu og ber að
hafa það í huga.
Útbreiðslumynstur skötuorms á
Íslandi virðist að mörgu leyti sam-
bærilegt mynstrinu í Noregi, en þar hafa
töluverðar rannsóknir verið gerðar á
dýrunum í gegnum tíðina.34 Á Harð-
angurs-hásléttunni í Suður-Noregi, sem
er við 64° norðlægrar breiddar, er
útbreiðslan að miklu leyti bundin við
900–1000 m h.y.s. Hæðin minnkar
eftir því sem norðar dregur, niður í um
200 m í Finnmörku í Norður-Noregi,
við 70° breiddargráðu.34,35 Útbreiðsla
skötuorms í Svíþjóð er með líku sniði
og í Noregi; hann finnst ekki á láglendi
nema allra nyrst. Þá er hann ekki lengur
að finna á Írlandi eða í Skotlandi þar
sem dýrin þrifust um tíma eftir að síð-
ustu ísöld lauk fyrir um tíu þúsund
árum.34,36,37 Á Svalbarða og víðar norðar-
lega á norðurhveli þrífst skötuormur-
inn hins vegar í fisklausum vötnum
og tjörnum sem liggja mjög lágt, þ.e.
í 5–15 m hæð. 38–41
Margt bendir til að hiti sé einn
helsti umhverfisþátturinn sem tak-
markar og mótar útbreiðslu skötuorms,
jafnt hér á landi sem annars staðar á
norðurhveli.19,34 Norður-suður-leitnin
í útbreiðslunni er í takt við þá til-
hneigingu að umhverfið verði almennt
kaldara eftir því sem norðar dregur. Þá
benda athuganir á skötuormi til þess
að tilvist hans sé að miklu leyti komin
undir hitastigi á meðan eggin eru í dvala
yfir veturinn. Mjög lágt hitastig virð-
ist vera nauðsynlegt fyrir þroska eggja
yfir veturinn og er það hald sumra að
eggin verði jafnvel að þorna og/eða
frjósa til þess að sviflirfurnar klekist út
þegar hlýnar og ísa leysir.34,42 Þessar vís-
bendingar eru einkum studdar gögnum
frá Noregi þar sem rannsóknir gefa til
kynna að skötuormar þrífast sérstak-
lega vel í vötnum þar sem vatnsstaðan
er lág yfir veturinn og efsti hluti strand-
svæðisins frýs, sem á bæði við um nátt-
úruleg vötn og tjarnir og tilbúin mið-
lunarlón.34,42 Dýrin festa eggin gjarnan
á steina og greinar við fjöruborð og
-bakka og bendir þetta til að eggin þurfi
mjög lágt hitastig og jafnvel að frjósa til
að þroskast áfram eftir dvalann.
Eftirsótt fæða
Skötuormur virðist vera eftirsótt fæða
hjá bleikju og urriða. Hann finnst í
silungsmögum í mörgum stöðuvötnum,
aðallega þó í þeim grynnri. Skötuormsát
silungs í örgrunnum vötnum sem hætt
er við að botnfrjósi, eins og Reyðarvatn
á Hofsafrétti er gott dæmi um, kemur
þegar betur er að gáð ekki á óvart, enda
þótt silungur fái ekki þrifist í slíkum
vötnum allt árið um kring. Silungur
hefur oft tímabundið aðgengi um ár og
læki að slíkum vötnum á þeim árstímum
sem nægt vatn er til staðar ófrosið, frá
síðsumri og fram á haust.
Mikilvægi skötuorms sem fæða
silungs í stöðuvötnum hér á landi hefur
áður verið staðfest að nokkru leyti, bæði
í náttúrulegum vötnum17 og miðlunar-
lónum.29,43,44 Rannsóknir í miðlunarlón-
unum eru mjög áhugaverðar að því leyti
að þær byggjast á endurteknum rann-
sóknum í sama vatni, þ.e. vöktun, og veita
því sýn á breytingar í tíma. Rannsóknir
hér á landi staðfesta að á meðan miðlun-
arlón eru ný og vistkerfin eru að jafna
sig fyrstu árin eftir rof, þá er hlutdeild
skötuorms í fæðu fiskanna oft umtals-
verð, en minnkar svo og hverfur jafnvel,
að minnsta kosti tímabundið, þegar frá
líður. Slíkt mynstur er þekkt í miðlun-
arlónum í Noregi og hefur verið skýrt
með tilvísunum í mikla aðlögunarhæfni
skötuormsins, einkum um þol eggja
gagnvart hita og þurrki við að nema ný
og óstöðug búsvæði. Síðan láta dýrin
undan síga þegar rándýr á borð við
silung ná fótfestu og halda skötuorm-
inum niðri.42,45,46 Ágæt dæmi um mynstur
af þessu tagi er að finna í miðlunar-
lónum á Auðkúluheiði, meðal annars í
Blöndulóni,29,43,47 og á vatnasviði Þjórsár,
svo sem í Hrauneyjalóni, Krókslóni og
Sultartangalóni.29,44,48–50