Náttúrufræðingurinn - 2021, Qupperneq 74
Náttúrufræðingurinn
166
INNGANGUR
Fyrir nokkru barst íslenskum vísinda-
mönnum og fróðleiksfúsum almenn-
ingi bókin Silfurberg. Íslenski kristall-
inn sem breytti heiminum eftir feðgana
Kristján Leósson eðlisfræðing, og Leó
Kristjánsson jarðeðlisfræðing. Bókin er
afrakstur áratugalangrar vinnu og rann-
sókna Leós á silfurbergskristallinum,
hlutverki hans og samhengi í vísinda-
sögunni. Árið 2016 tóku Leó og Krist-
ján, sonur hans, svo höndum saman við
ritun bókarinnar. Leó féll því miður frá
í mars árið 2020 áður en verkinu lauk
að fullu en Kristján lauk við það og kom
bókin út hjá Máli og menningu síðla árs.
Bókin er yfirlitsrit um áhrif hins
kunna silfurbergs frá Helgustöðum við
Reyðarfjörð á heimssöguna í gegnum
vísindin. Í bókinni er rakin saga silfur-
bergskristallsins og nám hans við
Helgustaði frá uppgötvun um miðja 17.
öld og fram á 20. öld, eða yfir um 250
ára tímabil. Á þessum tíma kom silfur-
berg við sögu mýmargra mikilvægra
uppgötvana í ljósfræði og eðlisfræði,
sem greint er frá í bókinni. Í loka-
orðum bókarinnar er snarpt yfirlit yfir
öll fræðasviðin þar sem hið íslenska
Saga silfurbergsins
frá Helgustöðum
Ritrýni
FYRIR NOKKRU barst íslenskum vísindamönnum og fróðleiksfúsum almenn-
ingi bókin Silfurberg – Íslenski kristallinn sem breytti heiminuma eftir feðgana
Kristján Leósson eðlisfræðing, og Leó Kristjánsson jarðeðlisfræðing. Bókin er
afrakstur áratugalangrar vinnu og rannsókna Leós á silfurbergskristallinum,
hlutverki hans og samhengi í vísindasögunni. Árið 2016 tóku Leó og Kristján,
sonur hans, svo höndum saman við ritun bókarinnar. Leó féll því miður í mars
árið 2020 áður en verkinu lauk að fullu en Kristján lauk við það og kom bókin
út hjá Máli og menningu síðla árs.
a Kristján Leósson & Leó Kristjánsson. Silfurberg – íslenski kristallinn
sem breytti heiminum. Mál og menning, Reykjavík. 286 bls.
Náttúrufræðingurinn 91 (3–4) bls. 166–169, 2021