Náttúrufræðingurinn - 2021, Blaðsíða 77
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
169
Snæbjörn Guðmundsson (f. 1984) lauk BS-prófi í jarð-
fræði frá Háskóla Íslands 2009 og stundaði doktorsnám
við sama skóla á árunum 2009–2014. Árin 2010–2012
sá hann um kennslu í steindafræði 1. og 2. árs nema við
Jarðvísindadeild HÍ. Snæbjörn hefur starfað á rann-
sóknarstofu Mannvits og kennt grunnskólanemum
jarðfræði í Vísindasmiðju HÍ, Háskóla unga fólksins
og Háskólalestinni auk kennslu við Endurmenntun.
Árið 2015 gaf hann út bókina Vegvísi um jarðfræði Ís-
lands hjá Forlaginu og kom hún út í enskri þýðingu ári
síðar. Frá 2020 hefur hann starfað sem jarðfræðingur
hjá Náttúruminjasafni Íslands.
UM HÖFUNDINN PÓST- OG NETFANG HÖFUNDAR
/ AUTHOR'S ADDRESS
Snæbjörn Guðmundsson
Náttúruminjasafni Íslands
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík
snaebjorn.gudmundsson@nmsi.is
Uppdráttur og þverskurður af silfurbergsnámunni á Helgustöðum. Uppdrættirnir birtust
í grein Helga H. Eiríkssonar í tímariti Verkfræðingafélags Íslands á árinu 1922.
SAMANTEKT
Bókin er í fallegu bandi og skreytt fjölda
mynda. Margar þeirra eru af persónum
og leikendum úr sögu silfurbergsins,
þekktustu eðlisfræðingum vísinda-
sögunnar sem hrifust af íslensku silfur-
bergi, áttuðu sig á eiginleikum þess
og nýttu í rannsóknum sínum. Má þar
meðal annarra nefna Christiaan Huyg-
ens, Isaac Newton, Michael Faraday og
James Clerk Maxwell. Myndir af tækjum
tengdum silfurbergsrannsóknum og eðl-
isfræðilegar skýringarmyndir eru fyrir-
ferðarmiklar en hlutverk þeirra er í raun
fagurfræðilegt þar sem fræðilegt gildi
fer vafalítið að mestu fyrir ofan garð og
neðan hjá lesendum utan hóps hörðustu
eðlisfræðinga. Óháð hlutverki setur
myndefnið allt fallegan og áhugaverðan
samtíðarsvip silfurbergsrannsókna á
bókina og hug lesenda.
Grundvallarspurning þegar bók sem
þessi kemur út er hvert erindi hennar er.
Í þessu tilfelli er óhætt að segja að allt
efni bókarinnar eigi erindi til lesenda og
vel það. Hér er fjallað um einn allramik-
ilvægasta þátt Íslandssögunnar í augum
umheimsins, eitt merkasta framlag
landsins til heimssögunnar. Eins og segir
í inngangi bókarinnar átti silfurberg frá
Íslandi „sinn þátt í að móta þau nútíma-
vísindi sem hafa haft grundvallaráhrif á
líf flestra jarðarbúa“. Höfundar bókar-
innar rökstyðja vel þá tillögu að silfur-
bergið úr Helgustaðanámu sé einn mik-
ilvægasti kristall mannkynssögunnar.
Erindi bókarinnar Silfurberg – Íslenski
kristallinn sem breytti heiminum er ekki
einungis til Íslendinga heldur ekki síður
til erlendra fræðimanna og almennings,
og vonandi verður bókin þýdd á erlend
mál sem allra fyrst. Hér er á ferð ger-
semi sem er skyldulesning fyrir áhuga-
fólk um vísindasögu, náttúru og sam-
hengi Íslands við umheiminn.