Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2021, Page 80

Náttúrufræðingurinn - 2021, Page 80
Náttúrufræðingurinn 172 rannsóknir höfundar og gróðurgreiningar á 12 stöðum í Þing- vallahrauni, allt frá Þingvallavatni upp í um 1.060 m hæð í Skjaldbreið. Í viðauka eru birtar töflur yfir tegundir plantna og tíðni þeirra í þremur helstu gróðurlendum hraunanna, þ.e. gamburmosaþembu, lynglendi með grá- og gambur- mosa, og graslautum með grámosa. Fram kemur að höf- undur hefur auk háplantna nafngreint 30–40 tegundir mosa og álíka margar tegundir af fléttum. Líklega er þetta í fyrsta sinn sem margar tegundir fléttna og mosa voru teknar inn í gróðurgreiningu á Íslandi. Árið 1953 urðu þáttaskil í lífi Svanhildar, þegar hún lauk magisterprófi og giftist Gunnari Olaf Svane frá Jótlandi, doktor í slavneskum tungumálum. Þau stunduðu síðan bæði kennslu við Háskólann í Kaupmannahöfn, hún líklega einnig við Tækniháskólann. Árið 1965 fluttust hjónin til Árósa, þar sem Gunnar var skipaður prófessor í slavneskum málum og Svanhildur lektor í grasafræði. Þau eignuðust tvo syni, Jón Olaf (f. 1954) og Axel Torstein (f. 1956). Jón er jarðfræðingur að mennt og Axel eðlisfræðingur, lektor við Árósaháskóla. Þeir kvæntust og áttu báðir fjögur börn.5 Axel andaðist 2016, sama ár og móðir hans. Haustið 1960 var ég nokkra daga í Kaupmannahöfn og heimsótti þau Svane-hjón, sem þá bjuggu í úthverfinu Her- lev. Gunnar var þá farinn að skilja og tala íslensku, því hann var mikill málagarpur. Eftir að hann hætti störfum fór hann að læra kínversku við háskólann í Árósum og þýddi bók eftir sagnfræðinginn Sima Quiam um elstu sögu Kína. Jón Ólafur Sigurðsson organisti, bróðursonur Svanhildar, segir í minningargrein um hana: Fæðingarstaður hennar, Hrafnsgerði í Fellum, var alltaf ofarlega í huga hennar, og fylgdist hún vel með öllu sem þar fór fram og ættingjum sínum fyrir austan, þó hún ætti þess ekki oft kost að fara austur. Þegar þau hjón komu til landsins, og hægt var að koma því við, þá keyrðu þau vítt og breitt um landið, og notuðu ferðina til að safna sýnishornum af skófum og öðru sem tilheyrði áhugamáli hennar. Sagði hún alltaf að Hrafnsgerði væri hafsjór af sýnishornum á þessu sviði. Eftir að skógurinn fór að vaxa upp, þá fór hún að finna nýjar [skófa]tegundir, auk sveppaflórunnar.5 Kennslustarf og sveppafræði Fléttur og sveppir eru nátengdar lífverur. Fléttur eru að meginhluta sveppir sem hafa tekið þörunga í þjónustu sína og mynda með þeim náið sambýli. Þær eru nú flokkaðar með sveppum. Það er því ekki tilviljun að Svanhildur fór einnig að sinna sveppafræði. Anne Kristine Mehlsen, sem líklega var nemandi hennar, ritaði í eftirmælagrein um hana: Hún var einn af fyrstu kennurum við Botanisk Institut þegar til þess var stofnað 1963. Hún var sett „kandidats- instruktor“ og síðar „ekstern lektor“ og var ábyrg fyrir kennslu um sveppi. Auk þess var hún í mörg ár með vikulangt sumar- námskeið í plöntugreiningum. … Svanhildur var áhugasöm og vinsæl samstarfskona og kennari. Þrátt fyrir að hún gerði miklar faglegar kröfur var hún í uppáhaldi meðal stúdenta sinna og kollega, og kenndi mörgum stórum hópum á því sviði sem kallað var þelingar (sveppir og þörungar), ásamt Lisbeth Mathiesen. Auk þessara grunnkúrsa hélt hún æfingar fyrir framhaldsnema í sveppa- og fléttufræði þar til í byrjun tíunda áratugarins, og byggði upp vönduð kennslusöfn í tengslum við þær. Meðal stúdenta var Svanhildur þekkt fyrir kröfur sínar um einbeitingu og nákvæmni við tegundagrein- ingar, og með hjálp hennar, leiðsögn og gamansemi náðu flestir auknu sjálfstrausti á því sviði.6 Hér er Svanhildur að leiðbeina um sveppagreiningu í Árósum í sept. 2003. Ljósm. Jens H. Petersen.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.