Iðjuþjálfinn - 2021, Blaðsíða 27
1. tölublað 202127
Iðjuþjálfun er svo mögnuð þar sem hún á sér stað alls staðar í
samfélaginu. Þegar ég útskrifaðist árið 2009 var ég opin fyrir
því að vinna hvar sem er, ég trúði því þá og trúi enn að iðju-
þjálfar skipti sköpum fyrir skjólstæðinga sína, hvar sem þeir eru.
Starf iðjuþjálfa við Menntaskólann á Tröllaskaga hefur á undan-
förnu ári tekið miklum breytingum. Starfið hefur frá ráðningu
minni um mitt ár 2017 falið í sér iðjuþjálfun fatlaðra nemenda
á starfsbraut skólans. Á starfsbraut eru nemendurnir jafn mis-
jafnir eins og þeir eru margir. Starf mitt með nemendum hefur
alltaf verið með iðju og valdeflingu nemenda að leiðarljósi, með
áherslu á að vinna markvisst að þeim markmiðum sem nem-
endur setja sér út frá eigin áhuga og óskum. Nemendur hafa í
gegnum tíðina kennt mér heilmargt og hefur verið einstaklega
lærdómsríkt að takast á við þær áskoranir sem starfið býður upp
á. Nemendur á starfsbraut þurfa fjölbreytta nálgun iðjuþjálfa
þar sem unnið er út frá ólíkum sjónarhornum og áherslum.
Við iðjuþjálfar erum sérfræðingar í iðju, virkni og valdeflingu
nemenda og með iðjugleraugunum getum við greint iðju-
vanda nemenda og mætt þörfum þeirra. Nemendur á fram-
haldsskólaaldri eru ekki aðeins að mennta sig til að undirbúa
sig fyrir framtíðarstörf heldur eru nemendur okkar að undir-
búa sig undir lífið sjálft. Því er mikilvægt að þeir séu undirbúnir
fyrir allt það sem lífið mun bjóða þeim upp á.
Skólameistari Menntaskólans á Tröllaskaga, Lára Stefánsdóttir,
sá möguleikana í minni menntun og bauð mér að vinna í sam-
starfi við námsráðgjafa skólans í að þróa starf iðjuþjálfa innan
veggja Menntaskólans á Tröllaskaga í tengslum við stoðþjón-
ustu skólans. Lára sagði: „Eftir því sem ég kynntist menntun og
störfum iðjuþjálfa betur sá ég hversu mikill fjársjóður er í þekk-
ingu þeirra til að vinna með og aðstoða vanvirka nemendur.
Vanvirkir nemendur þurfa ekki að vera, en geta verið, stirðir til
náms. Þeir eiga það sameiginlegt að eiga erfitt með að halda
sér að verki, skipuleggja tíma sinn, vinna markvisst og hafa
trú á að þeir geti náð árangri. Þeir þurfa alúð og eftirfylgni.
Menntun og fagþekking iðjuþjálfa er því fjársjóður til að vera
þessum nemendum innan handar, hjálpa þeim að einbeita sér
að verkefnum og ná árangri. Menntun og þekking náms- og
starfsráðgjafa er önnur en iðjuþjálfanna en þessar tvær stéttir
hafa sameiginlegan flöt, sem styrkir stoðþjónustu skólans.“
Á vorönn 2020, nánar tiltekið í byrjun mars, kom ég aftur til
starfa eftir fæðingarorlof. Ég náði að koma til vinnu í venjulegu
skipulagi, hitta nemendur og samstarfsfólk og skipuleggja, rétt
áður en COVID-takmarkanir skullu á af fullum þunga. Stjórn-
endur Menntaskólans á Tröllaskaga voru búnir að fara yfir með
starfsfólki sínu allar mögulegar afleiðingar af þróun heimsfar-
aldursins. Einn möguleiki var að skólum yrði lokað og nám færi
allt fram á netinu og því voru kennarar búnir að undirbúa alla
nemendur undir að ef sú staða kæmi upp myndi allt nám flytjast
yfir á netið og í gegnum rafræn samskipti um óákveðinn tíma.
Nám nemenda á starfsbraut Menntaskólans á Tröllaskaga fer
fram eins og allra annarra nemenda við skólann, í kennslukerf-
inu Moodle með verkstjórn kennara. Allir nemendur sem hafa
forsendur og getu til að vinna í tölvu stunda nám sitt daglega
á þann hátt. Þegar nemendur hafa ekki forsendur til að stunda
námið á þann hátt er nám þeirra aðlagað að þeirra þörfum og
hefur starfsfólk brautarinnar þá notað t.d. Ipad, Osmo, Coji og
önnur námsgögn við hæfi nemenda. Námið er einstaklings-
miðað, skil verkefna eru fjölbreytt og nemendur eru hvattir til
að nýta sem fjölbreyttastar leiðir til náms. Brautarstjóri starfs-
brautarinnar, Hólmar Hákon Óðinsson, var búinn að undirbúa
nemendur sína mjög vel, fara vel yfir skipulag og að áfram yrði
kennt samkvæmt stundaskrá. Búið var að kenna tíma á netinu
í gegnum Google Meet þó allir nemendur væru í kennslustof-
unni og leyfa nemendum því að upplifa hvernig slík kennsla
færi fram, hvernig þeir kæmust inn í sína kennslustofu, kveiktu
á hljóði, slökktu á hljóðnema og fengju þannig tækifæri til að
spyrja kennara út í allt sem þurfti. Þessi undirbúningsvinna skil-
aði starfsbrautinni öruggum nemendum sem mættu vel í alla
tíma og unnu sín verkefni þrátt fyrir miklar áskoranir. Mikilvægt
Starf iðjuþjálfa í
Menntaskólanum
á Tröllaskaga á COVID-tímum
Guðrún Þorvaldsdóttir,
iðjuþjálfi í Menntaskólanum
á Tröllaskaga
Sérkennslustjóri í leikskólanum
Leikhólum, Ólafsfirði.