Iðjuþjálfinn - 2021, Síða 41
1. tölublað 202141
Dagbjört Birgisdóttir (ha160296@unak.is)
Hanna B. Valdimarsdóttir (ha120491@unak.is)
Sonja Sigríður Gylfadóttir (ha180219@unak.is)
Sóldís Fönn Jónsdóttir (ha180596@unak.is)
Iðjuþjálfunarfræðinemar við Háskólann á Akureyri.
Bakgrunnur
Þegar börn og ungmenni hljóta ákominn
heilaskaða getur það haft áhrif á þátttöku þeirra
í daglegu lífi. Því er mikilvægt að viðeigandi
íhlutun sé í boði. Rannsóknir sýna að ef börn
og ungmenni fá ekki viðeigandi íhlutun getur
það haft alvarleg áhrif á vitræna, líkamlega og
andlega þætti. Þegar unnið er með börnum og
ungmennum er mikilvægt að horfa á
fjölskylduna í heild. Það er því hentugt að
skoða fjölskyldumiðaða nálgun í íhlutun barna.
Tilgangur kortlagningaryfirlitsins er að varpa
ljósi á gagnreyndar aðferðir í íhlutun sem
iðjuþjálfar geta veitt börnum og ungmennum
með ákominn heilaskaða.
Aðferðafræði
Rannsóknarspurning kortlagningaryfirlitsins
var: Hvaða gögn eru til um íhlutun iðjuþjálfa
fyrir börn og ungmenni með ákominn
heilaskaða? Leitað var að rannsóknargreinum í
sex gagnasöfnum þar sem notuð voru
viðeigandi leitarskilyrði sem tengdust tilgangi
yfirlitsins. Í gagnaleitinni voru rannsóknir frá
árunum 2011-2021 skoðaðar. Leitin fór fram á
ensku. Í upphafi leitar fundust 3.036 greinar en
eftir markvissa yfirferð varð heildarfjöldinn í
yfirlitinu 16. Greinar voru útilokaðar ef: 1) aðrir
en börn og fjölskyldur þeirra voru þátttakendur
og 2) rannsóknin fjallaði um börn með fleiri
áskoranir en ákominn heilaskaða.
Niðurstöður
Niðurstöðum var skipt í þrjú þemu: 1) fræðsla og þjálfun með aðstoð tölvu. Í fimm rannsóknum var
íhlutun með aðstoð tölvuleikja, sýndarveruleika og forritum skoðuð. 2) fræðsla og þjálfun á ólíkum
vettvangi. Íhlutun fóru fram á mismunandi vettvangi meðal annars á endurhæfingarstofnun, í skóla,
á sjúkrahúsi, í rannsóknarrými rannsakanda eða heima hjá þátttakanda. 3) fræðsla og þjálfun bæði
með aðstoð tölvu og á ólíkum vettvangi. Fjórar rannsóknir fjölluðu um íhlutun sem fór fram bæði í
tölvu og á ólíkum vettvangi.
Þjálfun
Vitræn
færni
Félags-
færni
Líkamleg
færni
Færni
við iðju
Fræðsla
Lokaorð
Upplýsingar um íhlutun iðjuþjálfa fyrir börn og
ungmenni með ákominn heilaskaða eru af
skornum skammti á Íslandi. Niðurstaða
samantektarinnar gefur til kynna mikilvægi
þess að innleiða gagnreyndar aðferðir sem
hjálpa börnum og ungmennum með ákominn
heilaskaða svo þau fái viðeigandi íhlutun og
geti tekið þátt í samfélaginu. Því er
nauðsynlegt að vekja athygli á þessum
málaflokki ásamt því að opna umræðuna um
börn og ungmenni með ákominn heilaskaða
en þörf er á frekari rannsóknum.
Íhlutun iðjuþjálfa fyrir börn og ungmenni
með ákominn heilaskaða
Markmið rannsóknanna var að þjálfa vitræna
færni, félagsfærni, líkamlega færni ásamt
færni við iðju. Auk þess kom í ljós mikilvægi
fræðslu. Heildarniðurstöður sýna að mestu
máli skiptir að veita börnum með ákominn
heilaskaða íhlutun. Með hvaða hætti íhlutunin
fer fram skiptir minna máli, svo lengi sem hún
samræmist þörfum og aðstæðum barnanna.