Skessuhorn


Skessuhorn - 05.01.2022, Síða 4

Skessuhorn - 05.01.2022, Síða 4
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 20224 Gleðilegt nýtt ár lesendur góðir. Vonandi að áramótasteikin hafi runnið ljúft niður, skaupið ekki verið til mikilla ama og grímuskyldan komið í veg fyrir varanleg öndunarfæramein um áramót. Árið sem nú hefur kvatt fellur líklega seint í hóp skemmtilegustu eða líflegustu ára í sögulegu samhengi. Kóvid hefur einhvern veginn verið alltumlykjandi, beint eða óbeint. Færustu sér- fræðingar eru þó vongóðir um að á þessu nýja ári takist að uppræta veiru- fjandann; hjarðónæmi muni nást og þeir óþekkustu láti segjast. Við á Skessuhorni erum nú að ljúka lengsta útgáfuhléi um árabil. Þrjár vik- ur frá því Jólablaðið kom út. Samviskan gagnvart því er þó tiltölulega hrein enda fengu lesendur fjórfaldan meðalskammt þarna sama dag og Stúfur var á ferðinni. Blaðið sem nú kemur út er því að hluta til svona uppsóp nokkurra frétta frá liðnum vikum. Einnig ýmislegt nýtt og ferskt. Meðal annars er rætt við íbúa og sveitarstjóra um árið og nýkrýndan Vestlending ársins; harðdug- lega konu sem skarað hefur fram úr af festu. Líklega er Kristín Þórhallsdótt- ir næststerkust kvenna ef litið er til heimslistans. Það fylgir því óneitanlega spenna að sjá hverjir tilnefndir eru í þessari kosningu, eða vali á einstaklingi sem skarað hefur fram úr á liðnu ári. Ekkert síður spennandi finnst mér að sjá hverjir landsmenn tilnefna í kosningu stóru miðlanna. Ég er innilega ánægð- ur með að þar urðu Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Ragneiður Ósk Erlendsdóttir hjúkrunarfræðingur hlutskörpust. Þau hafa staðið í framlínu heilbrigðisstarfsfólks á liðnum tveimur árum og staðið sig með sóma. Þau tileinka þessa viðurkenningu kollegum sínum hvarvetna í heilbrigðiskerfinu. Allir hafa lagt sig fram í hvívetna og öllu þessu fólki sendi ég þakkir mínar. Auk venjubundinna starfa við að hjúkra slösuðum og veikum hafa margir hverjir bætt á sig verkefnum og þurfa því einfaldlega að hlaupa hraðar til að halda ástandinu góðu. En þegar mikið liggur við og ástandið varir lengi kemst fólk að ákveðn- um þolmörkum. Margir hafa því sagt upp og hyggjast hverfa úr störfum sem þeir hafa menntað sig til. Tveggja ára yfirálag er einfaldlega of mikið. Vegna þessa fólks bind ég vonir við að nú fari að sjá fyrir endann á þessu ástandi og mannlífið allt fari að taka á sig eðlilegri mynd. Þetta hefur nefnilega áhrif í öllum kimum mannlífsins, beint og óbeint. Skömmu fyrir jól var ég viðstadd- ur útskrift nemenda úr Fjölbrautaskóla Vesturlands. Föngulegur hópur var að kveðja skólann sinn. Skólameistarinn talaði hvetjandi til útskriftarhópsins og minnti viðstadda á að þetta væri í raun einstakur hópur. Hefði megnið af sinni skólagöngu þurft að aðlagast svipðum aðstæðum og fangar í fjarnámi. Nemendur hafi þó stautað sig í gegnum námið, mætt í kennslustundir fram- an við tölvurnar heima hjá sér og þar af leiðandi ræktað lítil tengsl við jafn- aldra sína. Þekkja kósígallann betur en útiskóna. Þessi félagslega breyting er meiri en hægt er að leggja lengur á ungmenni undir tvítugu. Þessi hópur, aðrir framhaldsskólanemendur og bara yfirleitt allir sem hafa orðið að venj- ast breyttum aðstæðum vegna Kóvid, eiga þakkir skyldar. Við megum heldur ekki gleyma því að ástæðan fyrir því að við sem þjóð erum að fara vel út úr þessari heimsplágu er tiltölulega staðföst og fagleg stjórnun. Þar á ég við bæði yfirvöld og fagfólk í heilbrigðisþjónustu. En þetta er farið að taka á og mun á næstu vikum gera það áfram ef marka má nýju- stu smittölur. Nú togast á hagsmunir atvinnulífs og þjónustugeirans. Það er hreint ekki sjálfgefið að börn séu að hópast í skóla í dag, þegar allir vita að virk smit úti í þjóðfélaginu eru mörg og bólusetning er handan við hornið fyrir yngsta aldurshópinn. Sjálfur hefði ég kosið að talsmenn atvinnulífsins hefðu verið hófstilltari þannig að ráðherra fyrirskipaði skólafrí allavega út þessa viku. Aldrei, þá meina ég aldrei, mega peningaöfl taka yfir heilbrigða skynsemi. Við erum komin þetta langt í baráttunni vegna þess að við höfum hagað okkur skynsamlega og ljósið er vel sýnilegt við enda ganganna. Full- naðar sigri munum við svo ná ennþá fyrr ef sú tíund fólks sem hafnað hefur bóluefni endurskoðar afstöðu sína. Þá gætum við vænst þess að unga fólkið okkar geti mætt í skólann og lífið allt taki á sig mynd sem við könnumst við, frá því fyrir tíma Kóvid. Magnús Magnússon Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 3.877 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 3.348. Rafræn áskrift kostar 3.040 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.800 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Finnbogi Rafn Guðmundsson frg@skessuhorn.is Valdimar K. Sigurðsson vaks@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Díana Ósk Heiðarsdóttir auglysingar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Leiðari Ljósið er við enda ganganna Nú eru framkvæmdir við Grundar- götu 12-14 í Grundarfirði á miklu skriði og byrjað að reisa veggi neðri hæðar hússins. Myndarlegur krani er kominn sem hífir einingarnar á sinn stað. Þarna verða níu íbúðir á frábærum stað í bænum. tfk Fyrsta barn ársins á Vesturlandi er stúlka sem kom í heiminn á Akra- nesi klukkan 22:16 á sunnudags- kvöld, 2. janúar. Stúlkan vó 3.390 grömm og er 51 sentímetri að lengd og hefur hún fengið nafnið Avróra Mae og foreldrar hennar eru Neilalin Mae Angco Gines og Nikita Kozlov og býr fjölskyldan í Borgarnesi. Fyrir eiga þau Neilalin og Nikita 14 mánaða dóttur, Vivi- anne Taisia. Avróra Mae lét sjá sig aðeins á undan áætlun en settur dagur var 8. janúar. For- eldrar hennar segjast ekki hafa átt von á að eignast fyrsta Vestlending ársins; „en okkur leið svo ótrúlega vel þegar við fréttum af því,“ seg- ir Neilalin í samtali við Skessuhorn. Avróra Mae kom í heiminn með hraði en foreldrar hennar komu á fæðingadeildina á Akranesi um kl. 21:40 að kvöldi sunnudags og var móðirin þá næstum tilbú- in í fæðingu. „Þetta var fallegt en á sama tíma var þetta sárt því hún kom á innan við 45 mínútum,“ seg- ir Neilalin og bætir við að öllum heilsist vel. Þegar blaðamaður Skessuhorns ræddi við foreldrana voru þau enn á fæðingadeildinni en stóra systir beið spennt heima eftir því að hitta litlu systur sína. „Hún hefur kysst magann minn og knúsað síðan hún vissi að hún yrði stóra systir. Ég trúi því að þær verði nánar eins og bestu vinkonur og nýr kafli okkar sé að hefjast. Þetta verður spennandi í framtíðinni,“ segir Neilalin að lok- um. arg Nú er ljóst að metafli kom að landi í Grundarfirði á liðnu ári. Þetta var reyndar ljóst fyrir nokkrum mánuðum en alls komu um 23.700 tonn í land í Grundarfirði, en árið 2020 voru tæp 18.500 tonn sem komu að landi. Einnig voru kom- ur skemmtiferðaskipa 32 talsins en árið áður kom ekkert skip vegna Kóvid. Alls voru bókaðar 68 komur á síðasta ári og féll því rúmur helm- ingur þeirra út. Hafsteinn Garðarsson hafnar- stjóri Grundarfjarðarhafnar var að vonum kátur er fréttaritari náði tali af honum. „Við erum mjög sáttir með árið sem hefur gengið afskap- lega vel,“ segir Hafsteinn. „Nýi hafnarkanturinn er kominn í notk- un sem gjörbyltir aðstöðunni hérna hjá okkur, bæði fyrir fiskiskipin og svo skemmtiferðaskipin,“ bætir hann við. Bókanir fyrir skemmti- ferðaskip næsta sumar eru mjög líf- legar og einnig fyrir sumarið 2023. „Það er mikið líf sem fylgir þess- um löndunum hérna sem smitast út í samfélagið, hvort sem það eru flutningar, löndunarþjónustan eða afgreiðsla í versluninni,“ segir Haf- steinn sem segist nokkuð bjartsýnn á framhaldið. tfk Fyrri hæðin að rísa í nýju fjölbýlishúsi Séð yfir framkvæmda- svæðið. Fyrsti Vestlendingur ársins 2022 með foreldrum sínum. Ljósm. HVE/ hó. Fyrsta barn ársins fæddist á sunnudaginn Eyþór og Hafsteinn taka hér á móti varðskipinu Þór síðasta vor. Metár að baki hjá Grundarfjarðarhöfn Grundarfjarðarhöfn í byrjun janúar. Heimabátarnir Sigurborg, Farsæll og Hringur liggja við landfestar.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.