Skessuhorn - 05.01.2022, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 2022 11
Hreint ál úr íslenskri orku | nordural.is
Norðurál leitar að jákvæðum, metnaðarfullum og ábyrgum
deildarstjóra birgðahalds. Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi
í umhverfi þar sem metnaður og fagmennska eru í fyrirrúmi.
Starfsstöðin er á Grundartanga.
Deildarstjóri
birgðahalds
Norðurál á Grundartanga er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi. Hjá okkur starfa
um 600 manns með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Norðurál er jafnlauna
vottað fyrirtæki og handhafi gullmerkis PwC.
Starfsfólki Norðuráls bjóðast ferðir til og frá Akranesi, Borgarnesi og af höfuð
borgarsvæðinu.
Umsóknarfrestur er til og með 11. janúar næstkomandi.
Helstu viðfangsefni: Yfirumsjón, rekstur og stýring vöruhúss og
birgða halds, áætlanagerð og birgðagreining, verkefnastjórnun og
gæða mál, ábyrgð á starfsmannamálum lagers, sem og þróun og
um bætur verkferla.
Menntunar- og hæfniskröfur: Háskólamenntun sem nýtist í starfi
og góð tölvufærni. Reynsla af SAP er kostur. Færni í mannlegum
samskiptum. Góð greiningar og skipulagsfærni. Sterk öryggis
vitund og vilji til að ná árangri. Viðkomandi þarf að geta unnið
eftir ferlum. Reynsla af verkefnastjórnun eða eftirfylgni verkefna.
Reynsla af vöru og lagerstjórnun er kostur.
Jafnlaunaúttekt
PwC 2020
Nánari upplýsingar veitir Guðný Björg Hauksdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs
sviðs, í síma 430 1000. Öllum umsóknum verður svarað og trúnaði er heitið.
Sótt er um á nordural.is.
Fasteignafélag Akraneskaupstað-
ar slf. auglýsir nú eftir tilboðum í
uppsteypu og ytri frágang á nýju
íþróttahúsi á Jaðarsbökkum. „Verk-
ið felst í uppsteypu mannvirkis,
lögnum í jörðu, fyllingu að mann-
virki, tengingu við Akraneshöll,
ytri frágangi, gluggum og útihurð-
um, þakvirki og frágangi þaks. Um
er að ræða m.a. steypa 2.750 m3,
útveggjaklæðning 2.700 m2, þak-
fletir 2.300 m2,“ segir í auglýs-
ingunni, en skila skal verkinu eigi
síðar en 28. apríl 2023. Sjá nánar
auglýsingu hér í blaðinu.
mm
Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi
fékk skömmu fyrir áramót afar
rausnarlega gjöf í minningu um
Óskar Þór Óskarsson á Tröðum á
Mýrum, en hann lést 31. maí síð-
astliðinn á sjötugasta aldursári. Sig-
urbjörg Helgadóttir ekkja Óskars
Þórs, dætur þeirra og fjölskyldur
færðu sveitinni eina milljón króna
að gjöf til styrktar húsbyggingunni
við Fitja í Borgarnesi. „Styrkurinn
er kærkominn og erum við þeim
innilega þakklát,“ segir Elín Matt-
hildur Kristinsdóttir formaður
Brákar í samtali við Skessuhorn.
mm
Vinna við mat á umhverfisáhrif-
um Holtavörðuheiðarlínu 1 er nú
að hefjast. Það er liður í því að
setja fram valkosti um framkvæmd
verkefnisins. Búið er að leggja
fram valkostaskýrslu með tillög-
um um raunhæfa valkosti við lagn-
ingu háspennulínunnar. Þar er far-
ið yfir hugmyndir og ábendingar
sem komu fram í samráðsvinnu
við hagsmunaaðila og landeigend-
ur. Holtavörðuheiðarlína 1 er 220
kV loftlína sem Landsnet hefur
áform um að leggja frá Klafastöð-
um í Hvalfirði að nýju tengivirki á
Holtavörðuheiði, sem er um 90 km
löng leið. Samkvæmt skýrslunni er
línan á framkvæmdaáætlun kerfis-
áætlunar Landsnets 2020-2029 og
er áætlað að hefja framkvæmdir
árið 2024.
Skýrsluna er hægt að nálga st á
vefsíðu Landsnets. Ábendingar og
athugasemdir skal senda á netfang-
ið landsnet@landsnet.is en frestur
til þess er til 7. janúar næstkom-
andi. arg
Bjóða út uppsteypu nýs íþróttahúss
Valkostaskýrsla um
Holtavörðuheiðarlínu 1
Óskar Þór Óskarsson á heimaslóðum. Ljósm. mm.
Brák afhent minningargjöf
um Óskar Þór
Fulltrúar Björgunarsveitarinnar Brákar og fjölskyldu Óskars Þórs á Tröðum.
Ljósm. Brák.