Skessuhorn - 05.01.2022, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 2022 13
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Auglýsing um skipulag -
Akraneskaupstaður
Aðalskipulag Akraness 2005-2017 – Hausthúsatorg
Á fundi bæjarstjórnar Akraness 9. nóvember 2021, var samþykkt
að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-
2017 - Þjóðvegur 3, í samræmi við 31. gr. skipulagslaga
nr. 123/201.
Breytingin felst í að afmarkað er nýtt 1,6 ha svæði fyrir verslun
og þjónustu V15, norðan og austan við Hausthúsatorg.
Útivistarstíg og reiðleið er breytt á þann veg að þeir sveigjast
norður fyrir V13. Mörkum íbúðarsvæðis Íb21 er breytt lítillega.
Deiliskipulag Hausthúsatorg – Þjóðvegur 3
Á fundi bæjarstjórnar Akraness 9. nóvember 2021, var samþykkt
að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Hausthúsatorg.
Deiliskipulagið afmarkast af gamla þjóðvegi í norðri og
Akranesvegi 509 í suðri og Þjóðvegi 5 í norðaustur. Vegstæði
Þjóðvegar verður breytt til að stækka núverandi lóð til
norðurs. Gert er ráð fyrir eldneytisafgreiðslu ásamt dekkja og
smurþjónustu. Hámarks byggingarmagn verður 2000m², heimilt
er að koma fyrir búnaði fyrir eldneytissölu neðanjarðar sem
ekki telst með nýtingarhlutfalli lóðar. Nýtingarhlutfall lóðar
verður 0,125.
Tillögurnar verða til kynningar í þjónustuveri kaupstaðarins
að Dalbraut 4, Akranesi og á heimasíðu Akraneskaupstaðar
www.akranes.is (skipulag í kynningu) frá og með
30. desember 2021 til og með 17. febrúar 2022.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, eru hvattir til
að kynna sér tillögurnar. Ábendingu og athugasemdum við
tillögurnar skal skila skriflega í þjónustuver Akraneskaupstaðar
að Dalbraut 4 eða á netfangið skipulag@akranes.is, eigi síðar
en 17. febrúar 2022. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir
innsendar athugasemdir með tölvupósti.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Akraneskaupstaðar
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Íþróttahús á Jaðarsbökkum -
Uppsteypa og ytri frágangur
Fasteignafélag Akraneskaupstaðar slf. óskar eftir tilboðum í
uppsteypu og ytri frágang á nýju íþróttahúsi á Jaðarsbökkum.
Verkið felst í uppsteypu mannvirkis, lögnum í jörðu, fyllingu að
mannvirki, tengingu við Akraneshöll, ytri frágangi, gluggum og
útihurðum, þakvirki og frágangi þaks. Um er að ræða m.a.
steypa 2750 m3, útveggjaklæðning 2700 m2, þakfletir 2300 m2.
Skila skal verkinu eigi síðar en 28. apríl 2023.
Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi frá þriðjudeginum
4. janúar 2022 í gegnum útboðsvef Mannvits:
https://mannvit.ajoursystem.is/.
Verkið er auglýst á EES.
Tilboðum skal skilað á útboðsvefinn fyrir
kl. 11:00 fimmtudaginn 10. febrúar 2022.
Opnunarfundur verður ekki opinn bjóðendum. Fundargerð verður send
öllum bjóðendum eftir opnun tilboða.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Gert er ráð fyrir að loðnuhrogna-
vinnsla hefjist hjá Brimi hf. á Akra-
nesi í síðustu viku febrúarmánaðar
og standi yfir í tvær til fjórar vikur.
Ef væntingar manna ganga eftir, og
í samræmi við þann upphafskvóta
í loðnu sem gefinn hefur verið út,
stefnir í að þessi vertíð verði ein sú
stærsta í tæp 20 ár og þörf á mann-
skap í vinnsluna á Akranesi gæti
verið á bilinu 80 til 100 manns. Að
jafnaði er unnið á vöktum allan sól-
arhringinn á meðan vertíðin stend-
ur yfir. Fjölbreytt störf eru í boði
meðal annars við pökkun hrogna,
vinnu við frystilínu, eftirlit með
vélum og störf á lyftara.
Dalamaðurinn Arnar Eysteins-
son í Stórholti hefur haft milli-
göngu um að útvega mannskap í
vinnsluna síðustu ár og Skessu-
horn heyrði í honum hvernig gengi
að finna fólk í öll þessi störf. Arn-
ar segir að það hafi gengið alveg
ágætlega hingað til en þó vanti enn
eitthvað af fólki. Mannskapurinn
komi víða að; úr Dölum, af Snæ-
fellsnesi, norðan af Ströndum og þá
séu margir búsettir á Akranesi sem
hafi sent inn umsóknir. „Síðustu ár
hafa þetta verið um 30 sólarhrings-
störf sem hafa verið í boði nema í
fyrra því þá var svo lítið fryst en það
bætist mikið við það núna. Oft hafa
kannski verið um 70 störf sem hafa
verið á blaði sem þurfti að gera skil
á en nú bætast við rúmlega tíu sól-
arhringsstörf að minnsta kosti.“
En hvernig kom það til að Arnar
tók að sér að ráða í störf hjá Brimi
á Akranesi? „Fyrsta vertíðin sem
ég fór á var árið 2001. Ég var að
vinna við landanir hjá Djúpakletti
sem er núna í Grundarfirði en þeir
voru með landanir þarna og sáu um
loðnuvertíðina líka allt til 2005. Þá
hættu þeir og þá hélt ég að þetta
ævintýri væri búið. Síðan árið eftir
var hringt í mig, ég spurður hvort
ég geti reddað nokkrum köllum og
það hefur undið upp á sig og ég hef
séð um þetta síðan. Það var miklu
erfiðara hér áður fyrr að finna fólk í
vinnu, fyrir tíma samfélagsmiðlana.
Þá lágum við í símanum, ef okkur
datt einhver í hug einhvers staðar
þá hringdum við í hann og það vatt
svo upp á sig. Það var mjög lengi
sami kjarninn í þessu en svo hefur
kvarnast úr honum síðustu ár, bæði
sökum aldurs og vegna annarra
þátta.“
Arnar segir einnig að það sé í raun
pláss fyrir alla í loðnufrystingunni,
það þurfi auðvitað að vinna en það
sé hægt að finna léttari störf inn á
milli og vinnutíminn er sveigjan-
legur eftir því hvað fólk vill. Arn-
ar segir að í dag sé hann verkstjóri
en fyrst hafi hann verið á vöktum
líka: „Ég hætti kannski á vakt fjög-
ur á daginn, fór að sofa klukkan níu
um kvöldið og aftur á vakt um mið-
nætti, það gekk ekki alveg upp til
lengdar og ég er löngu hættur því.“
Arnar er sauðfjárbóndi í Stór-
holti 2 í Saurbæ í Dalabyggð og er
með um 600 fjár. Í fjarveru Arnars
yfir vertíðina hefur kona hans,
Ingveldur Guðmundsdóttir, séð
um bústörfin á meðan og er fyr-
ir löngu orðin vön í þeim efnum.
„Konan hefur líka verið öflug að
aðstoða mig að finna fólk í gegnum
árin og sér um búið á meðan ég er í
burtu ásamt því að vera í fullu starfi
á heilsugæslustöðinni í Búðardal,“
segir Arnar að lokum.
Þeir sem hafa hug á að fá vinnu
við vertíðina eða vilja fá nánari
upplýsingar geta sent póst á lodnu-
vertid@gmail.com þar sem fram
þarf að koma nafn, kennitala og
símanúmer og einnig mætti taka
fram hversu mikilli vinnu viðkom-
andi óskar eftir. vaks
Venus bundin við Akranesbryggju.
Enn eru laus störf í loðnu-
frystingu sem hefst í lok febrúar
Hrognum pakkað til frystingar.