Skessuhorn


Skessuhorn - 05.01.2022, Síða 26

Skessuhorn - 05.01.2022, Síða 26
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 202226 Ekkert ofbeldi á að líðast og við öll í samfélaginu höfum áhrif. Aðdá- unarvert er hvernig hugrökk fjöl- skylda steig fram nýverið með sína sögu. Jón Gautur, Guðlaug Gyða, Hannes og Bergþóra þið eruð hetj- ur í mínum huga fyrir hvernig þið hafið opnað umræðuna um einelti. Við erum þakklát fyrir fólk eins og ykkur sem er tilbúið að ræða um þrautir sínar svo hægt sé að læra af og svo tryggja megi rétt viðbrögð til framtíðar. Engin á það skilið að vera niðurlægður, útskúfaður fé- lagslega, pínd/ur andlega eða lík- amlega. Slíkt kallar fram sálarkval- ir sem geta haft áhrif á einstaklinga fyrir lífstíð. Umræðan undanfarið hefur vakið mig til umhugsunar um það hvern- ig við í samfélaginu komum fram við hvert annað. Við á Akranesi trúum því að við búum í heilnæmu og góðu samfélagi. Er möguleiki að hvert og eitt okkar geti gert betur? Er barnið okkar hugsanlega ger- andi með hunsun eða stríðni sem við verðum að horfast í augu við? Við getum trúað þolendum jafn- vel þó gerandinn sé okkur nákom- inn. Er ást okkar og stuðningur lyk- illinn að því að hlúa og hjálpa ger- andanum á rétta braut? Eru okkar viðbrögð lykillinn í því að bæta líf svo margra þolenda? Getum við sýnt gott fordæmi þar sem við erum hluti af hópi eða förum fyrir hópi í samfélaginu okkar? Yfirmaður á vinnustað sendir skýr skilaboð um að ofbeldi í nokkurri mynd er ekki liðið? Fyrirliði liðsins hvetur alltaf til jákvæðra samskipta innan liðsins. Getum við tekið betur á móti nýju fólki sem flytur í bæinn okkar? Er möguleiki að við tökum eftir nýja nágrannanum sem var að flytja og bjóðum hann velkominn og leggj- um okkur fram við að honum líði vel í samfélaginu okkar? Við höfum öll áhrif á gæði þess bæjarfélags sem við búum í. Skólar og vinnustaðir eiga aldrei að líða einelti svo allir geti notið lífsins og fái ráðrúm til að þroska hæfileika sína. Hlúa þarf að og vernda þolendur og hjálpa gerend- um til betri vegar. Ekki vantar að Akraneskaupstaður er með verk- ferla í eineltis-, ofbeldis og áreitni málum. Ljóst er að við verðum að gera mikið betur því ekki má vera tilviljunum háð að við grípum inn í aðstæður til að hlúa að fólki. Við verðum að vera tilbúin að horfa inn á við og vera tilbúin að bæta okkur. Í ljósi umræðunnar ákvað skóla- og frístundaráð að taka ein- elti og forvarnir gegn einelti til um- ræðu á fundi 7. desember síðast- liðinn og var umræðan undanfar- ið til umfjöllunar í bæjarstjórn 12. desember. Skóla- og frístundaráð leggur áherslu á að samskipti í samfélagi okkar séu uppbyggileg og unnið sé með áhrifaríkum hætti að forvörn- um gegn einelti. Skólastjórnend- ur fóru yfir eineltisáætlun grunn- skólanna og tilurð hennar en sam- bærileg áætlun er í báðum skólum og Þorpinu. Guðmunda Ólafsdóttir framkvæmdastjóri ÍA fór yfir stöðu mála hjá íþróttahreyfingunni og vinnu við nýja áætlun um samskipti og viðbrögð við einelti. Í kjölfarið ákvað skóla- og frístundaráð að for- gangsraða fjármagni í þróunarsjóð næsta árs og stofna starfshóp með fulltrúum þvert á samfélagið sem hefur það hlutverk að rýna í styrk- leika og tækifæri til umbóta innan skóla- og frístundastarfs varðandi samskipti og einelti. Endurskoða verklag og verkferla og nýta til þess færustu sérfræðinga í málefninu. Markmiðið með verkefninu er að allar stofnanir okkar búi áfram yfir öflugum viðbragðsáætlun og verk- færum til þess að styrkja félagsfærni barna og ungmenna og tryggt sé að þverfaglegt samstarf sé innan sam- félagsins til þess að ná þessum ár- angri. Tökumst öll á við það verkefni saman að ofbeldi sé ekki liðið. Tök- um öll þátt í því verkefni að gera samfélagið á Akranesi einstakt. Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi. Pennagrein Við ætlum að gera samfélagið okkar betra Mjög fáar áramótabrennur voru að þessu sinni í landshlutanum. Sú stærsta var á Breiðinni í Snæfellsbæ á gamlárskvöld. Sjálfboðaliðar sáu um að hlaða brennuna undir stjórn brennustjórans Hjálmars Kristjáns- sonar. Var þetta svokölluð „bíla- brenna“ þar sem ekki var ætlast til að áhorfendur hópuðust saman við eldinn. Áhorfendur úr bílum skiptu hundruðum. Björgunarsveitin Lífs- björg sá um stórglæsilega flugelda- sýningu eins og þeir hafa gert í tugi ára. af Íslenska stuttmyndin Rán hlaut verðlaun fyrir bestu leikkonuna á alþjóðlegri kvikmyndahátíð sem fram fór í Asti á Ítalíu skömmu fyrir jól. Það var Jónína Mar- grét Bergmann frá Háafelli Hvít- ársíðu sem hlaut verðlaunin fyrir leik sinn í myndinni. Rán var tek- in upp á Vestfjörðum á vordögum 2020 skömmu eftir að fimm manna samkomubanni var aflétt á svæðinu. Myndin hefur verið send á nokkr- ar kvikmyndahátíðir og uppskorið nokkur verðlaun. „Við ákváðum að þetta yrði síðasta hátíðin sem hún færi á og fannst við verða að fylgja henni þangað,“ sagði Steingrímur Rúnar Guðmundsson, en auk hans fóru Fjölnir Baldursson og Jón- ína Margrét Bergmann á hátíðina í Asti. Það var fréttavefurinn bb.is á Vestfjörðum sem greindi frá. Mynd Palestínumanna, Dead Sea, hlaut fyrstu verðlaun fyrir bestu stuttmyndina, en Rán hafn- aði í öðru sæti í þeim flokki. mm Þau létu ekki kuldann á sig fá þess- ir hressu sjósundskappar þegar þau fóru í sjóinn í fjörunni við Látravík á Snæfellsnesi á Gamlársdag. Loft- hitinn þennan dag var mínus fjór- ar gráður og sjórinn í kringum núll gráðurnar og auðvitað var pós- að fyrir ljósmyndarann að loknu sundi. þa Aðkoman að salernishúsunum við Garðalund á Akranesi var ófögur að morgni nýársdags; búið að brjóta og eyðileggja þar inni. Jóhann Magnús Hafliðason birti myndir á íbúasíð- unni og harmaði þessa skemmdar- fýsn. Undir það taka íbúar sem tjá sig og segja nauðsynlegt að settur verði upp myndavélarbúnaður til að hægt verði að hafa hendur í hári skemmdarvarganna. Garðalund- ur er tvímælalaust í hópi mest sóttu staða í bæjarfélaginu og margir sem njóta þar útivistar. mm/ Ljósm. jmh Ítrekað unnin skemmdar- verk á hreinlætisaðstöðu Bílabrenna í Snæfellsbæ Aðstandendur Ránar. Jónína Bergmann verðlaunuð fyrir leik sinn í Rán Jónína Bergmann stolt með verðlaun- in. Árið kvatt í núll gráðum við Látravík

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.