Skessuhorn - 02.02.2022, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2022 13
Helstu verkefni:
• Þjónusta við stóriðju og orkugeiran
• Þjónusta við sjávarútveg og matvælaiðnað
• Stálsmíði úr svörtu/ryðfríu stáli og áli
• Sérsmíði og fjöldaframleiðsla
• Vélaviðgerðir og vélsmíði
• Rennismíði í sérsmíði og fjöldaframleiðslu
• Tjakkasmíði og viðgerðir, sérsmíði og framleiðsla
• Vöruhönnun, þróun og tæknileg aðstoð
Mentunar og hæfniskröfur:
• Iðnmentun, Vélfræðimentun og eða góð reynsla í faginu
• Hæfni í mannlegum samskiptum og vinnur vel í teymi
• Öguð vinnubrögð og gott skipulag
• Metnaður til að skila góðu verki
Umsóknir óskast sendar inn í gegnum heimasíðu Hamars ehf, www.hamar.is þar sem valið er ,,Atvinna í boði” efst fyrir miðju.
Upplýsingar um starfið veitir Páll Indriði Pálsson pallip@hamar.is eða í síma 660 3648
Á starfstöð Hamars á Grundartanga er boðið uppá fyrsta flokks starfsmanna aðstöðu.
Boðið er upp á ferðir til og frá vinnu frá Akranesi, Borgarfirði og Reykjavík
Málmiðnaðarmenn Steelworkers
Við leitum að einstaklingum með fagmenntun eða starfsreynslu á sviði málm
– og/eða véltækniiðnaðar á starfsstöð fyrirtækisins á Grundartanga. Nemar
eru sérstaklega hvattir til að sækja um starf.
Lögð er áhersla á að ráða hæft, áhugasamt og vel þjálfað fólk sem axlar ábyrgð og sýnir
frumkvæði í starfi.
Það er markmið Hamars að einstaklingar sem sinna starfinu af áhuga og nýta hæfileika
sína til fulls eigi raunverulega möguleika á því að byggja sig upp í starfi innan
fyrirtækisins.
Umhverfismat
Matsáætlun í kynningu
Múli vindorkugarður
Qair Iceland ehf. hefur lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar
vegna umhverfismats 78-95 MW vindorkugarðs í landi Hvamms í
Borgarbyggð.
Kynning á matsáætlun: Matsáætlunin er aðgengileg á vef Skipulags-
stofnunar www.skipulag.is. Framkvæmdaraðili mun kynna fram-
kvæmdina á opnum streymisfundi 10. febrúar nk. kl. 20:00. Vefslóðin á
streymisfundinn er www.efla.is/streymi.
Umsagnarfrestur: Allir geta kynnt sér matsáætlunina og veitt
umsögn. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 25.
febrúar 2022 til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík eða
með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.
Garða- og
Saurbæjarprestakall
Sunnudagur 6. febrúar
AKRANESKIRKJA
Sunnudagaskóli kl. 10
Guðsþjónusta kl. 11
Miðvikudagur 9. febrúar
Bænastund kl. 12.15
Súpa í Vinaminni eftir stundina
Opið hús í Vinaminni kl. 13.30
Barna- og unglingastarfið er
hafið. Dagskrár má finna á
heimasíðunni okkar.
„Fangavarðafélag Íslands (FVFÍ)
harmar þann atburð sem átti sér stað
í fangelsinu á Hólmsheiði laugar
daginn 15. janúar síðastliðinn, þegar
fangi réðist með hrottalegum hætti
að fangavörðum með alvarlegum af
leiðingum fyrir fangaverði. Það er
krafa Fangavarðafélags Íslands að
verulegar breytingar verði að eiga
sér stað á vistun einstaklinga sem
eiga við geðræn veikindi að stríða.
Slíkir einstaklingar eru bæði starfs
fólki fangelsanna og öðrum föngum
hættulegir. Ítrekað hefur það kom
ið upp í fangelsum að andlega veik
ir einstaklingar ráðist á og veiti öðr
um áverka. Bæði starfsfólki og sam
föngum,“ segir í bréfi félagsins til
hlutaðeigandi ráðherra, fangelsis
málastjóra og Sameykis stéttarfé
lags. Yfir lýsingin var jafnframt send
fjölmiðlum.
Í fyrstu grein í lögum um fulln
ustu refsinga segir: „Markmið laga
þessara er að fullnusta refsinga fari
fram með öruggum og skilvirk
um hætti og að sérstök og almenn
varnaðaráhrif refsinga séu virk“.
„Með þessu er verið að segja að það
eigi að tryggja öruggt vinnuum
hverfi innan fangelsanna og að all
ur aðbúnaður eigi að styðja við að
markmið laganna náist. Fangaverð
ir hafa í langan tíma bent Fangelsis
málastofnun (FMS) á að öryggi og
aðbúnaður í fangelsum væri ábóta
vant þar sem fjölgað hafi andlega
veikum einstaklingum í fangelsum
landsins. Því hafi ekki fylgt fjölgun
starfsmanna né fræðsla í meðhöndl
un slíkra einstaklinga. Jafnframt eru
fangelsi landsins ekki hönnuð eða
búin til að sinna slíkum einstakling
um. Menntun og þjálfun fangavarða
er í dag miðuð við að halda uppi ör
yggi á vinnustað, eiga uppbyggileg
samskipti og búa fanga til daglegs
lífs eftir afplánun. Geðdeild Lands
spítalans hefur ítrekað neitað að taka
við föngum sem glíma við geðræna
kvilla því að þeir eiga við áunna
fíkniefnatengd geðræn veikindi að
stríða. Það er skoðun fangavarða
að fangelsi landsins hafi ekki þá að
stöðu til að hjálpa þessum mönnum
á þann hátt sem ætlast er til,“ segir
í bréfinu.
Í fangelsum landsins hefur
undirmönnun verið viðvarandi í
mörg ár. „FVFÍ hefur ítrekað bent
FMS og Sameyki á undirmönnun,
en því miður hefur þar verið talað
fyrir daufum eyrum. Of fáir fanga
verðir eru á vöktum. Með því er
öryggi starfsmanna og fangelsanna
stefnt í hættu. Má meðal annars
nefna að á Hólmsheiði eru þrír
starfsmenn á næturvakt með allt
að 50 fanga og eins og dæmi sýna,
sumir þeirra mjög veikir og hættu
legir. Einnig má nefna að þrátt fyr
ir alvarlega atburði á Kvíabryggju
er einungis einn fangavörður þar
á vakt á nóttunni með 22 fanga.
Við breytingar á styttingu vinnu
viku hafi þessi undirmönnun auk
ist þar sem ekki hafi fengist heim
ildir til að fjölga starfsfólki eins og
þörf er á. Það hefur skapað aukið
álag á starfsmenn og er svo komið
að veikindi, vanlíðan og starfsleiði
eru orðinn áberandi. FVFÍ skorar
á ráðherra innanríkis og heilbrigð
is, Fangelsismálastofnun og Sam
eyki að stíga strax inn og leysa þá
stöðu sem er til staðar í fangels
um landsins og tryggja viðunandi
mönnun og öryggi fyrir alla sem
þar eru.“
mm
Norska flutningaskipið Wilson
Perth kom frá Njarðvík til hafn
ar í Ólafsvík á fimmtudaginn með
saltfarm. Í Ólafsvík var skipað upp
um 1500 tonnum til útgerðarfyrir
tækja í Snæfellsbæ. Þaðan fór skipið
til Grundarfjarðar og loks Stykkis
hólms í sömu erindagjörðum.
Vel hefur aflast á Snæfellsnesi
að undanförnu og því gengið vel á
saltbirgðir hjá þeim fiskverkunar
fyrirtækjum sem salta fisk.
af
Flutti salt til útgerðarstaða
á Snæfellsnesi
Fangaverðir lýsa þungum áhyggjum
af stöðu mála