Skessuhorn - 02.02.2022, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 202214
Bjarni Benediktsson fjármálaráð
herra mun á næstu dögum leggja
fyrir Alþingi frumvarp ríkisstjórn
arinnar um framhald á viðspyrnu
styrkjum vegna sóttvarnaráðstaf
ana. Gert er ráð fyrir að styrkirn
ir verði framlengdir í fjóra mánuði,
frá desember 2021 til mars 2022.
Viðspyrnustyrkir voru veitt
ir til að aðstoða rekstraraðila við
að standa undir rekstrarkostnaði
frá nóvember 2020 og út nóvem
ber 2021. Styrkirnir nýttust ekki
síst smærri rekstraraðilum, t.a.m. í
ferðaþjónustu, veitingasölu, heild
og smásölu, sem og í menningar
greinum. Alls hafa viðspyrnustyrk
ir fyrir rúmlega 10 milljarða króna
verið greiddir til 1.800 rekstrar
aðila. Þar af hafa um 4 milljarðar
króna farið til ferðaskrifstofa eða
ferðaskipuleggjenda og gististaða.
„Samhliða efnahagsbatanum og
ekki síst fjölgun erlendra ferða
manna minnkaði aðsókn í við
spyrnustyrki. Í ljósi snöggs við
snúnings í ferðaþjónustugreinum
sem urðu fyrir áhrifum sóttvarna
ráðstafana undir lok árs 2021 hef
ur ríkisstjórnin ákveðið að leggja
til framhald styrkjanna fyrir des
ember 2021 og janúar, febrúar og
mars 2022.
Markmiðið með styrkjunum er
að rekstraraðilar geti viðhaldið
nauðsynlegri lágmarksstarfsemi
á meðan áhrifa faraldursins gæt
ir, varðveitt viðskiptasambönd og
tryggt viðbúnað þegar úr rætist.
Gert er ráð fyrir að skilyrði við
spyrnustyrkja verði í öllum megin
atriðum óbreytt frá því sem verið
hefur. Skatturinn sér um afgreiðslu
styrkjanna,“ segir í tilkynningu frá
ráðuneytinu.
mm
Qair Iceland ehf. hefur feng
ið stöðuleyfi fyrir gámi á jörðinni
Hvammi í Norðurárdal, en þetta
kemur fram í fundargerð bygginga
fulltrúa Borgarbyggðar frá því
á þriðjudaginn. Gámurinn á að
vera með mælibúnaði fyrir fugla
rannsóknir og til veðurfarsrann
sókna. Einnig á að koma fyrir um
sex metra hárri vindmyllu og sólar
sellum á gáminn til að knýja áfram
mælitækin. En mælibúnaðinn á að
nota til rannsóknar vegna fyrirhug
aðra áforma um að reisa vindorku
garðinn Múla á svæðinu.
Eins og auglýst var í síðasta
Skessuhorni verður haldinn op
inn kynningarfundur um verkefnið
fimmtudaginn 10. febrúar en vegna
Covid19 verður fundurinn send
ur út í streymi. Íbúar og aðrir hags
munaaðilar eru hvattir til að kynna
sér verkefnið og fylgjast með fund
inum en hann verður aðgengileg
ur í streymi á vefslóðinni efla.is/
streymi. arg
Þingflokkur Flokks
fólksins hefur lagt fram
frumvarp þess efnis að
húsnæðisliðurinn verði
tekinn út úr vísitölu
neysluverðs. „Verð
bólga mælist nú langt
umfram verðbólgu
markmið Seðlabanka
Íslands. Stærsti einstaki
orsakavaldurinn er sí
fellt hækkandi hús
næðisverð. Þetta veld
ur keðjuverkandi áhrif
um sem leiða til þess að
greiðslubyrði heimilanna þyngist
og lánin hækka til muna,“ segir í
tilkynningu frá FF.
Verðbólga mælist nú 5,7% en
væri 3,7% ef húsnæðisliðurinn er
tekinn út. Helstu greiningaraðil
ar spá áframhaldandi hækkunum
á húsnæðisverði, m.a. vegna fram
boðsskorts á húsnæði. Því er út
lit fyrir verulegar hækkanir á vísi
tölu neysluverðs á næstu misserum
vegna hækkandi húsnæðisverðs.
„Það vita allir hvaða skelfilegu af
leiðingar verðbólgan hafði á verð
tryggð lán íslenskra heimila í kjöl
far efnahagshrunsins 2008. Þar tvö
földuðust skuldir heim
ilanna á einni nóttu og
hátt í 15.000 fjölskyld
ur misstu heimili sín.
Þetta má aldrei ger
ast aftur. Til að sporna
gegn hörðustu áhrifum
verðbólgunnar á heim
ilin er lagt til í frum
varpinu að húsnæðis
liðurinn verði felldur út
úr vísitölu neysluverðs.
Þetta fyrirkomulag
tíðkast víða, t.d. í verð
bólgumælingum ESB.
Með slíkri breytingu má draga
verulega úr mældri verðbólgu og
þar með hörðustu áhrifum vísitölu
hækkana á fjárhag fjölskyldufólks,
sérstaklega þeirra sem sitja fastir
í viðjum verðtryggðra húsnæðis
skuldbindinga.“
mm
Um síðustu helgi fékk Slökkvi
lið Reykhólahrepps afhentan nýj
an slökkvibíl af gerðinni Ford F450
Super Cap árgerð 2005. Hann er
einungis ekinn um 19 þúsund kíló
metra og er 27 árum yngri en sá
bíll sem var fyrir. Þetta kemur fram
á vefsíðu sveitarfélagsins. Bíllinn
er útbúinn með svonefndu One
Seven froðukerfi en með því er
froðuefninu blandað við vatn með
þrýstilofti. Við það sjöfaldast rúm
mál vatnsins en jafnframt er notkun
á froðuefninu um það bil níu sinn
um minni en með eldri búnaði.
Nánast eins bíll er í Búðardal,
með slökkvibúnaði frá sama að
ila, og hefur sá reynst vel. Fordinn
leysir af hólmi eldri bíl af gerðinni
Magirus Deutz af árgerð 1978.
Fordinn er til muna hraðskreiðari
og þar af leiðandi með betri við
bragðstíma og meiri slökkvimátt að
auki. vaks
Svanur RE45 kom á þriðja tíman
um í fyrrinótt inn til loðnulöndun
ar á Akranesi. Aflinn var nánast full
fermi, eða 17001800 tonn. Svanur
er í eigu Brims og var að koma á
Akranes í sína fyrstu löndun á ver
tíðinni. Skipið hét síðast Ilvid GR
en var nýlega keypt í flota Brims.
Skipið er 1.969 brúttótonn, smíð
að 1999, það er 67 metra langt og
13 metra breitt.
mm/ Ljósm. gsv
Stjórn Vestfjarðastofu kom saman
til fundar í síðustu viku og fjallaði
um bága stöðu á raforkumarkaðin
um. Þar var samþykkt ályktun þar
sem tekið er undir áhyggjur sveitar
stjórna og atvinnulífs á Vestfjörðum
af afleiðingum á takmörkunum á
sölu á skerðanlegri orku. „Stjórnin
kallar eftir að stjórnvöld og Lands
virkjun tryggi að kostnaður vegna
þessarar stöðu falli ekki aðeins á
íbúa og atvinnulíf á Vestfjörðum.
Eins lýsir stjórn Vestfjarðastofu
áhyggjum af áhrifum þessarar
stöðu á rekstur og fjárfestingargetu
Orkubús Vestfjarða, m.a seinkun
um í verkefnum er varðar þrífös
un rafmagns og undirbúningi nýrr
ar orkuvinnslu svo sem vatnsafls
og jarðhita. Stjórn Vestfjarðastofu
bendir á að sú staða sem upp er
kominn hafi verið fyrirsjáanleg og
er enn ein birtingarmynd af þeirri
vöntun sem er á stefnumarkandi
ákvörðunum stjórnvalda í orkumál
um á Vestfjörðum.“
Þá bendir stjórnin á að fjöldi
skýrslna um greiningu á stöðu og
tillögur að úrbótum í málaflokkn
um liggja fyrir og stjórnvöld geta
nýtt sér til að taka nauðsynlegar
ákvarðanir. „Hér blasa við ákvarð
anir um undirbúning að styrk
ingu flutningskerfis raforku inn
an Vestfjarða og bættra tenginga
við aðra landshluta og ákvarðan
ir varðandi undirbúning vatnsafls
virkjana og vindorkuvirkjana innan
Vestfjarða. Að óbreyttu tapa Vest
firðir á hverjum degi af nýjum tæki
færum og þeim ávinningi sem ella
væri til staðar ef Vestfirðir væru í
samkeppnishæfri stöðu miðað við
aðra landshluta í raforkumálum.“
mm
Hefja rannsóknir varðandi
uppbyggingu vindmyllugarðs
Svanur RE kom
drekkhlaðinn af loðnu
Framlenging
viðspyrnustyrkja
Afhendingaröryggi rafmagns er lakast á Vestfjörðum. Hér er tengivirkið við
Mjólká og Breiðdalslínu 1 í átt að Flatsfjalli. Ljósm. Landsnet.
Vestfirðingar tapa á hverjum degi af
nýjum tækifærum vegna raforkumála
Leggja til að húsnæðisliðurinn
verði tekinn út úr vísitölunni
Nýi slökkvibíllinn í Reykhólahreppi. Ljósm. af vefsíðu Reykhólahrepps.
Slökkvilið Reykhólahrepps
fær nýjan slökkvibíl