Morgunblaðið - 21.07.2022, Síða 10
VIÐTAL
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Það tók tæpt ár fyrir Árna Sæberg,
ljósmyndara hjá Morgunblaðinu, að
taka frænda sinn og alnafna í sátt
eftir að sá síðarnefndi gerðist blaða-
maður á Vísi. Það var einmitt það
sem yngri maðurinn hafði unnið sér
til sakar – að stíga inn á sama svið og
sá eldri og valda með því ruglingi á
þeim frændum hægri vinstri. Rugl-
ingurinn var orðinn svo mikill að sá
eldri íhugaði að skipta um nafn og
taka upp nafnið Skuggi Sæberg.
Rúmum hundrað árum fyrr hafði
afi ljósmyndarans og langalangafi
blaðamannsins keypt Sæbergs-
nafnið, einmitt í þeim tilgangi að
koma í veg fyrir að honum yrði rugl-
að saman við annan mann. Sagan er
því farin að endurtaka sig.
„Þetta hefur valdið ákveðnum
misskilningi lengi, en aldrei vand-
ræðum fyrr en núna,“ sagði Árni
yngri þegar blaðamaður settist nið-
ur með þeim frændum á heimili þess
eldri fyrr í júlímánuði. Frændurnir
virtust ekki eiga margt sameigin-
legt, annað en genin og nafnið. Árni
eldri var á sífelldum þeytingi á með-
an sá yngri sat hinn rólegasti.
„Ég get ekki setið kyrr,“ sagði
Árni eldri þessu til staðfestingar.
„Það rennur ekki í mér blóðið,“
bætti Árni yngri við.
Fleira skilur þá frændur að, sá
eldri er lítið gefinn fyrir texta og sá
eldri hefur ekkert vit á ljósmyndun.
„Ég er skrifblindur og
lesblindur og allur pakk-
inn,“ sagði sá eldri.
„Og ég gæti ekki tekið
ljósmynd til að bjarga lífi
mínu,“ sagði sá yngri.
Í 40 ár var Sæbergs-
nafnið einkennismerki
Árna eldri. Með því skap-
aði hann sér sérstöðu og
fólk fór að kannast við
nafnið en Árni hefur starf-
að sem ljósmyndari hjá
Morgunblaðinu í um fjóra
áratugi.
Þegar drengur fæddist
inn í fjölskylduna rétt fyrir
síðustu aldamót ákváðu
foreldrar hans að nefna
hann Árna Sæberg og gera
hann þannig að alnafna
ljósmyndarans. Sá eldri
kippti sér lítið upp við það á
sínum tíma og samþykkti
meira að segja að taka að
sér hlutverk guðföður.
En Sæbergs-nafnið á sér
lengri sögu. Árið 1918 var
Berthold Benjamín Magn-
ússon, afi Árna eldri og
langalangafi þess yngri,
orðinn þreyttur á að honum
væri í sífellu ruglað saman við
nafna sinn. Þá tók hann
ákvörðun um að fjárfesta í
ættarnafninu Sæberg sem
hann fékk á 10 krónur.
„Hann keypti þetta sem
ættarnafn til þess að að-
greina sig frá öðrum manni
sem hét Berthold í Hafnar-
firði,“ segir Árni eldri. Hann
fékk nafnið við skírn en not-
aði það ekki framan af held-
ur gekk undir nafninu Árni
Kristjánsson.
„Ég notaði ekki Sæbergs-
nafnið fyrr en ég fór að taka
myndir. Mér var strítt svo
mikið í skólanum í gamla
daga og mér fannst þetta
ljótt nafn,“ sagði Árni eldri
sem hefur í gegnum tíðina
gengið undir einu nafni
enn: Skuggi. „Það var af því að ég
var alltaf í svörtum frakka með sítt
svart hár,“ útskýrir Árni eldri en
nafnið festist við hann þegar hann
dvaldi á Núpi í Dýrafirði á áttunda
áratugnum.
Þegar hann fór að mynda var
hann svo hvattur til þess að nýta
Sæbergs-nafnið enda bauð það upp á
ákveðna sérstöðu. Þeirri sérstöðu
var svo ógnað þegar Árni yngri fékk
vinnu sem blaðamaður á Vísi fyrir
rúmu ári.
„Þetta pirraði mig alveg rosalega
þegar ég sá þetta fyrst og ég var svo
reiður að ég hugsaði að ég ætlaði
aldrei að tala við þetta fólk aftur,“
sagði Árni eldri.
Stuttu eftir að Árni yngri hóf störf
sem blaðamaður hjá Vísi fór vand-
ræðagangurinn af stað.
„Ég skrifaði grein um að einhver
væri að eitra fyrir köttum í ákveðnu
hverfi. Þá var eldri kona sem fékk þá
flugu í höfuðið að ég hefði verið að
segja að hún hefði verið að eitra fyr-
ir köttunum. Hún hélt að ég væri
[Árni eldri] og fór að eltast við
hann,“ útskýrir sá yngri.
Fréttastjóri Morgunblaðsins fékk
þá símtal frá umræddri konu sem
var viss um að Árni Sæberg, ljós-
myndari á Morgunblaðinu, væri
ábyrgur fyrir öllu saman. Tekið skal
fram að ekkert í grein Árna yngri
tengdi umrædda konu við málið.
Mætti ekki í útskriftina
Eftir þetta fór að bera nokkuð á
því að fólk ruglaði þeim frændum
saman og varð það jafnvel að gríni í
Hádegismóum að starfsmenn ættu
að sýna jafn mikinn dugnað og Árni
Sæberg sem tæki ljósmyndir fyrir
Moggann á daginn og skrifaði fyrir
Vísi á kvöldin.
Árni yngri var fyrir löngu orðinn
vanur því að fólk teldi hann vera
ljósmyndara á Morgunblaðinu.
„Þegar ég byrjaði í menntaskóla
og var að kynnast nýju fólki var ég
spurður: „Bíddu, ert þú ljósmynd-
ari?“ Ég svaraði: „Nei, ertu eitthvað
ruglaður? Ég er 16 ára – þetta er
Ætlaði aldrei að tala við hann aftur
- Alnöfnum gjarnan ruglað saman eftir að sá yngri hóf störf á vettvangi fjölmiðlanna - Ljósmynd-
aranum fannst nafnið vera vörumerki og var óhress með alnafnann - Frændurnir eru sáttir í dag
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Engin stríðsöxi Það fór vel á með frændunum Árna Sæberg og Árna Sæberg þegar þeir snæddu hádegisverð
með blaðamanni heima hjá ljósmyndaranum Árna og var varla að sjá á þeim að stirt hefði verið á milli þeirra.
1918 Staðfesting á kaup-
um afa ljósmyndarans og
langalangafa blaðamanns-
ins á ættarnafninu.
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2022
Hlýtt og
notalegt
Þinn dagur, þín áskorun
100% Merino
ullarnærföt
fyrir dömur og herra
Stærðir: S–XXL
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | run@run.is | www.runehf.is
OLYMPIA
Sölustaðir:
Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Verslunin Bjarg, Akranesi
Herrahúsið, Ármúla 27 • JMJ, Akureyri • Lífland, Hvolsvelli og Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði • Efnalaug Vopnafjarðar
Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki • Verslun Grétars Þórarinssonar, Vestmannaeyjum • Borgarsport, Borgarnesi
Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Þernan, Dalvík • Siglósport, Siglufirði
Bókaverslun Breiðarfjarðar, Stykkishólmi • Vaskur, Egilsstöðum • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi • run.is