Morgunblaðið - 21.07.2022, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 21.07.2022, Qupperneq 26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2022 Sonihull he�ir og kemur í veg fyrir gróðurmyndun og vöxt þörunga og lindýra á skipsskrokknum Byggt er á örhljóðsbylgjutækni sem er laus við örplast, eiturefni og önnur sæfiefni (lífeyðandi efni) Tæknin truflar ekki önnur tæki eða rafeindabúnað, svo sem sónara og dýptarmæla Með Sonihull má draga verulega úr notkun málningar sem ætlað er að minnka gróðurmyndun og inniheldur mikið magn óumhverfisvænna efna Ávinningur Sonihull kemur strax í ljós á þeim stöðum á skipsskrokknum sem eru útse-r fyrir gróðurmyndun og þörungavex,, við sjóinntök, stýrisbúnað, sjókæla o.fl. Minni gróðurmyndun á skrokk skipsins minnkar olíunotkun og viðhaldskostnað Uppsetning er einföld, ferjöldunum (botnstykkjunum) er komið fyrir innanskips, engin suðuvinna Lífríkisins og umhverfisins vegna er Sonihull góð +árfes,ng Sonihull er +árfes,ng sem skilar sér hra' ,l baka Ný tækni, arðbær og umhverfisvæn Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Evrópusambandið samþykkti í byrj- un júlímánaðar að veita evrópskum fyrirtækjum í fiskeldi og sjávarút- vegi fjárhagsstuðning vegna áhrifa stríðsins í Úkraínu. Er þetta annar björgunarpakkinn til sjávarútvegs og fiskeldis innan Evrópusambands- ins frá upphafi stríðsátakanna. Kem- ur annar pakki í kjölfar þess að framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins fagnaði því hinn 17. júní síðastliðinn að á tólfta ráðherrafundi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) hefði tekist að skapa einingu um að draga úr ríkisstyrkjum til sjávarútvegs. Engir slíkir pakkar hafa verið gefnir til sjávarútvegs hér á landi, sem hefur orðið fyrir því að allur kvóti í rússneskri lögsögu hefur fall- ið niður og olíuverð hefur hækkað töluvert, en íslenskur sjávarútvegur er sá eini meðal OECD-ríkjanna sem skilar meira til ríkissjóðs en hann fær úr honum, samkvæmt gögnum OECD. Í kynningu björgunarpakkans sem birt er á vef Evrópuþingsins kemur fram að meðal annars sé um að ræða „bætur til þeirra sem hafa þurft að stöðva rekstur og þeirra sem sáu rekstrargrundvelli sínum ógnað“. Með samþykktinni er ekki einungis heimilt að bæta fyrir- tækjum í sjávarútvegi og fiskeldi það tjón sem þau hafa orðið fyrir vegna tapaðra tekna, heldur einnig auka- kostnað sem hlýst af stríðinu, eins og vegna verðhækkana á orku, hráefni og fóðri. Aðstoðin á að virka aftur- virkt frá og með 24. febrúar 2022 þegar innrás Rússa í Úkraínu hófst. Minnkandi arðsemi í ESB Árið 2019 voru 129.540 starfandi um borð í 73.983 fiskiskipum Evr- ópusambandsríkjanna. Alls störfuðu um 75 þúsund í fiskeldi og voru 3.500 fiskvinnslur í rekstri. „Hluti af flota ESB hefur hætt rekstri vegna minnkandi arðsemi og hækkandi verðs á skipaeldsneyti og fiskfóðurs vegna hernaðarátakanna. Raskanir í aðfangakeðjum og mörk- uðum hafa leitt til skorts [á hráefni] sem einnig hefur áhrif á eldi sjávar- afurða og vinnslu þeirra,“ segir í kynningunni. Ekki er víst að vandræðin í Evr- ópu megi að öllu leyti rekja til átak- anna í Úkraínu, þar sem röskun á að- fangakeðjum í kjölfar heims- faraldurs virðist enn hafa áhrif víða. Björgunarpakki til útgerða í ESB - Innrás Rússa sögð draga úr arðsemi AFP Niðurgreiðsla Evrópskar útgerðir fá enn meiri opinbera styrki vegna rekstrarerfiðleika, sem sagðir eru hafa komið til vegna stríðsins í Úkraínu. hráefni þýtt að gripið hafi verið til breytinga í vinnslunni? „Við höfum minnkað útgerð á línuskipi og gerum bara út einn línubát. En við erum aftur á móti farnir að veiða meira af ferskum fiski í troll og höfum tekið það inn í vinnslu hjá okkur. Það hefur komið Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Ekkert skip á vegum Þorbjarnar hf. í Grindavík hefur verið á veiðum í Barentshafi í vetur, en fyrirtækið hefur leigt frá sér allar heimildir í norskir lögsögu. Nokkur ár eru frá því að fyrirtækið seldi aflaheimildir sínar í rússneskri lögsögu. Gunnar Tóm- asson, fram- kvæmdastjóri Þorbjarnar hf., segir fyrirtækið þó ekki hafa gef- ið veiðar í Bar- entshafi upp á bátinn. „Okkur hefur fundist þetta orðið lítið og höfum ákveðið að leigja þetta frá okkur. Ætli kvótinn hafi ekki verið skertur u.þ.b. um 40% á nokkrum árum.“ Hann útskýrir að leigðar hafi verið heimildir hér á landi í staðinn. Um þrjú til fjögur ár eru frá því að Þorbjörn seldi aflaheimildir fyrirtækisins í rússneskri lögsögu, að sögn Gunnars. „Menn voru alltaf svolítið kvíðnir að fara á veiðar á þessu svæði í Barentshafi. Það var alveg tilviljunarkennt hvernig veið- ar gengu þar. Mönnum hefur geng- ið betur í norsku lögsögunni.“ Hafa trú á háu verði Nýtt fiskveiðiár hefst 1. sept- ember næstkomandi. Flest bendir til skerðingar á þorskkvótanum í samræmi við ráðleggingar Hafrann- sóknastofnunar. Beðinn um að spá í spilin og greina helsta viðfangsefni komandi fiskveiðiárs, svarar Gunn- ar: „Það hefur áhrif á okkur eins og aðra, þessi minnkun, en við höfum nokkrar heimildir sem við flytjum milli ára. Við tókum á okkur ein- hvern samdrátt á þessu fiskveiðiári og færðum heimildir yfir á næsta. Við höfum trú á því að fiskverð haldist hátt eitthvað fram eftir og njótum góðs af því.“ Hann viðurkennir þó að olíu- kostnaður hafi verið áhyggjuefni. Þrátt fyrir að hráolíuverð hafi lækkað á heimsmarkaði í mars er verðið um 60% hærra nú en fyrir ári. „Veiðin hefur gengið vel, eftir því sem við veiðum meira á sókn- areininguna, verður olían kannski ekki eins erfið.“ Þorskkvótinn var minnkaður fyr- ir yfirstandandi fiskveiðiár og verð- ur eins og fyrr segir enn minni á komandi fiskveiðiári. Hefur minna á móti minnkun á línunni. Troll- skipin hafa getað komið með nánast tvöfaldan afla á við línubátinn. Við höfum verið að vinna við að koma þessu á markaðinn og okkar kúnnar sem tóku við línufiski eru farnir að taka við trollfiski. Þannig höfum við náð að brúa bilið,“ útskýrir Gunnar. Ekkert skip Þorbjarnar í Barentshafi - Leigja frá sér norskar heimildir og leigja íslenskar - Veiða minna á línu Ljósmynd/Björn Halldórsson Hagræðing Útgerðir hafa þurft að aðlagast breyttu rekstrarumhverfi eftir skerðingu þorskkvótans hér á landi og í Barentshafi undanfarin ár.Gunnar Tómasson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.