Morgunblaðið - 21.07.2022, Síða 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2022
Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes
www.gaeludyr.is
Njótið
sumarsins
34
Til hamingju - þú hefur fundið happatöluna!
Farðu inn á mbl.is/happatölur, fylltu út upplýsingar um þig og sláðu inn Happatöluna.
Vinningshafar verða dregnir út í þættinum Ísland Vaknar á K100 í fyrramálið.
Að sjálfsögðu hvetjum við þig til að tala þátt á hverjum fimmtudegi, því það er til mikils að vinna.
Ásthildur Hannesdóttir
asthildur@mbl.is
Tinna Jóhannsdóttir, framkvæmda-
stjóri Skógarbaðanna við Vaðlaskóg
á Akureyri, segir sumarið á Norður-
landi hafa farið vel af stað. Hún seg-
ir Skógarböðin
frábæra viðbót
við allt það sem
Akureyri og nær-
sveitir hafa upp á
að bjóða enda sé
fallegt útsýni á
svæðinu, hvert
sem litið er.
„Það hefur
verið mikill og
góður gangur síð-
an við opnuðum í
maí. Stöðugur straumur frá morgni
til kvölds, virka daga jafnt sem um
helgar,“ segir Tinna um gengi
Skógarbaðanna.
Öll flóran flykkist á svæðið
Fjölbreytileikinn virðist einkenna
baðgesti Skógarbaðanna en þang-
að sækir fólk úr ýmsum áttum.
„Til okkar koma innlendir ferða-
menn og heimamenn hérna á
svæðinu en við erum líka að fá
marga erlenda ferðamenn,“ segir
Tinna. Mikill fjöldi farþega á
skemmtiferðaskipum, sem lagst
hafa að bryggju á Akureyri síð-
ustu vikur, hefur lagt leið sína í
Skógarböðin og síður en svo orðið
fyrir vonbrigðum með böðin.
„Erlendu gestirnir okkar eru
bæði þeir sem eru að ferðast um
landið en ekki síður farþegar á
skemmtiferðaskipum hérna á Ak-
ureyri,“ segir Tinna. „Það eru að
leggjast hérna að landi um 200
skemmtiferðaskip í sumar og far-
þegarnir eru margar þúsundir.
Oftar en ekki eru tvö til þrjú skip
á dag að leggjast hérna að
bryggju,“ útskýrir Tinna sem
kveðst vel finna fyrir ferðamanna-
straumnum frá skemmtiferðaskip-
unum.
„Það ríkir almenn gleði á meðal
baðgesta. Umhverfið og útsýnið allt
um kring er stórbrotið,“ segir hún.
Augnakonfekt í
útjaðri Akureyrar
Skógarböðin eru rétt í útjaðri Ak-
ureyrar, rétt handan við rætur
Vaðlaheiðar en vatnið sem rennur í
böðin er nýtt úr heitavatnsæð sem
fannst fyrir tilviljun við gerð Vaðla-
heiðarganga á sínum tíma. Böðin
eru umkringd fallegu skóglendi sem
þykir algert augnakonfekt í augum
innlendra sem erlendra baðgesta. Á
svæðinu er einnig að finna veitinga-
staðinn Skóg bistro sem allir geta
heimsótt, hvort sem farið er ofan í
böðin eða ekki.
„Við fáum mikið af fyrirspurnum
frá ferðamönnum og farþegum
skemmtiferðaskipanna sem teygja
sig alveg langt fram á vetur,“ segir
Tinna og er að vonum ánægð með
viðtökurnar.
Skógarböðin skemmtileg viðbót
„Akureyri hefur stimplað sig inn
sem æðislegur áfangastaður, enda
höfuðborg norðursins. Bæði Ís-
lendingurinn og erlendi ferðamað-
urinn eru farnir að heimsækja Ak-
ureyri í auknum mæli. Þar er alltaf
eitthvað um að vera, eitthvað við
allra hæfi. Ég held að það hafi líka
hjálpað mikið að fá svona afþrey-
ingarstað eins og Skógarböðin á
svæðið. Fyrir þær sakir dvelur fólk
lengur á svæðinu,“ segir Tinna að
lokum.
Stöðugur straumur í Skógarböðin
Ísland vaknar og Helgarútgáfan verða í beinni
útsendingu frá Akureyri um næstkomandi helgi
á útvarpsstöðinni K100. Þáttastjórnendur Ísland
vaknar kynnast fjársjóðum höfuðstaðar Norður-
lands og nágrennis og verða meðal annars
í beinni frá hinum stórkostlegu Skógarböðum
á föstudagsmorgun. Við elskum að ferðast!
Ljósmynd/Axel Þórhallsson
Paradís Gleði ríkir á meðal baðgesta en Tinna segir böðin frábæra viðbót við þá afþreyingu sem er fyrir á svæðinu.
Ljósmynd/Axel Þórhallsson
Vinsæl Skógarböðin eru vinsæl á meðal innlendra sem erlendra ferða-
manna. Fjöldi farþega af skemmtiferðaskipum hefur skellt sér í bað í skóg-
inum en metfjöldi skemmtiferðaskipa kemur til Akureyrar í sumar.
Tinna
Jóhannsdóttir