Morgunblaðið - 21.07.2022, Page 36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2022
Grillað hvítkál/toppkál með kryddjurtamauki
1 hvítkáls-/toppkálshaus
½ dl ólífuolía
½ tsk chipotle-pipar
eða reykt paprika
sjávarsalt til að strá yfir
Kryddjurtamauk
100 g pistasíuhnetur
50 g kóríander
25 g steinselja
25 g minta
2 vorlaukar
3 hvítlauksrif
150 ml ólífuolia
1 msk hlynsýróp
3 límónur, safi og börkur
1 msk þurrkað óreganó
1 tsk sjávarsalt
1 tsk nýmalaður svartur pipar
Hitið grillið.
Hrærið chipotle-piparnum út í ólífuolíuna.
Skerið kálið eftir endilöngu í 2 cm þykkar
sneiðar, leggið á ofnskúffuna og penslið með
chipotleolíunni. Stráið sjávarsalti yfir. Setjið á
meðalheitt grill í 5-6 mínútur og snúið kálinu
við og klárið að grilla í aðrar 5-6 mínútur eða
þar til það er eldað í gegn og svolítið brennt í
kantana.
Kryddjurtamauk
Setjið allt nema límónubörk í matvinnsluvél
og maukið saman. Bætið límónuberkinum útí
og blandið létt. Tilbúið. Setjið vænan skammt
af mauki ofan á heitt kálið og njótið.
Þetta er frábært sem aðalréttur en líka sem
meðlæti.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Grillað góðgæti Sollu Eiríks bregst hér ekkibogalistin fremur en fyrri daginn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dýrindis græn-
metisréttir Sollu
Þegar Solla Eiríks grillar er von á góðu og hér
býður hún upp á dýrindis uppskriftir úr eigin
uppskriftabanka, sem ættu að hitta í mark.
Einföld marinering
5 dl ólífuolía
½ - 1 tsk sjávarsaltflögur
smá nýmalaður svartur pipar
Allt sett í krukku og hrist saman.
Geymist í 6 vikur í kæli.
Asísk marinering
3 msk. tamarisósa
3 msk. sítrónusafi
2 msk. hlynsýróp
2 msk. ólífuolía
2 msk. ristuð sesamolía
2 msk. hrísgrjónaedik eða edik að eigin vali
1 msk. engiferskot
3 hvítlauskrif, pressuð
½ tsk chiliflögur
Allt sett í krukku og hrist saman.
Geymist í 2-3 vikur í kæli.
Miðjarðarhafsmarinering
3 msk. ólífuolía
3 msk. sítrónusafi
1 hvítlauksrif, pressað
1 tsk. tímían, þurrkað
1 tsk. óreganó, þurrkað
½ tsk. sinnepsduft
½ tsk. sjávarsalt
smá nýmalaður svartur pipar
Allt sett í krukku og hrist saman.
Geymist í 2-3 vikur í kæli.
Kíló af litlum kartöflum eða smælki
200 g beikon
1 bolli majónes
2 msk. góð BBQ sósa
2 msk. bragðmikið sinnep
2 msk. sérríedik
2 sellerístönglar, skornir niður
1 rauðlaukur, fínt saxaður
½ bolli söxuð steinselja
1 msk. saxað estragon
Salt og pipar eftir smekk
Sjóðið kartöflurnar og kælið síðan.
Steikið beikonið, þerrið með eldhúspappír
og skerið í bita (ekki of fínt).
Blandið saman majónesi og BBQ sósu í
stórri skál. Bætið við sinnepi og sérríediki.
Blandið kartöflunum saman við meðan þær
eru enn volgar. Látið standa og hrærið reglu-
lega í uns kartöflurnar hafa kólnað niður í
stofuhita.
Bætið þá við selleríi, rauðlauk, steinselju og
estragoni. Saltið og piprið vel. Látið standa í
20 mínútur. Að síðustu er beikoni bætt við og
þá er salatið tilbúið.
Kartöflusalat með beikoni og BBQ sósu
Það er fátt sem við erum hrifnari af en gott meðlæti og
hér erum við með geggjað salat sem ætti engan að svíkja.
Nostur Við mælum
með að þið takið ykkur
tíma í að búa til þetta
salat og leyfið kartöfl-
unum að drekka í sig
eins mikið bragð og
þær geta.