Morgunblaðið - 21.07.2022, Side 37

Morgunblaðið - 21.07.2022, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2022 Hér getur að líta uppskrift að svokallaðri skirt-steik eða flank-steik sem er þunnur vöðvi sem hefur ekki átt upp á pallborðið hérlendis. Það skiptir þó ekki höfuðmáli hér. Við hvetjum ykkur til að prófa marineringuna á góðan bita af nautakjöti sem þið grillið eftir kúnstarinnar reglum og þunnskerið svo. Marinering 2 msk. ólífuolía 2 msk. sojasósa 1 hvítlauksgeiri, kraminn ½ rauður chili, saxaður 1 tsk. rifinn sítrónubörkur 2 msk. sítrónusafi 300 g skirt-steik 1 msk. olía ¼ pk. grænkál, rifið 4 stórir sveppir Salt og pipar eftir smekk Sósa 1 msk. olía 1 tsk. sesamolía 1 tsk. sítrónusafi 1 tsk. púðursykur 1 tsk. sojasósa Marinering: Blandið saman olíu, sojasósu, hvítlauk, chili, sítrónuberki og safa. Leggið steikina í marineringuna og látið helst liggja yfir nótt. Áður en steikin fer á grillið skal þerra steikina með eldhúspappír. Penslið með afgangnum af marineringunni meðan kjötið grillast. Grillið í um það bil þrjár mínútur á hvorri hlið (eða eftir því hversu þykkan bita þið eruð með. Til að gera sósuna er best að setja öll hrá- efnin í krukku og hrista vel. Grillið kálið og sveppina með og penslið með marineringunni. Berið fram með sósunni. Snjallt er að bera kjötið fram á heitum steini eða diski sem heldur kjötinu heitu. Spennandi Við mælum heils hugar með því að þið smakkið þessa marineringu. Kóresk BBQ-uppskrift Kóresk matargerð nýtur mikilla vinsælda, enda er þar að finna sérlega skemmtilegar bragðsamsetningar sem hitta í mark. Kartöflur Beikon Paprika Vorlaukur Ólífuolía Salt Piparostur frá Örnu 2 msk. rjómaostur Kóríander Sýrður rjómi Þetta er ein af þessum frjálslegu upp- skriftum þar sem manni er í sjálfsvald sett hversu mikið af hráefnum maður notar hverju sinni. Það eina sem við ráðleggjum, er að vera ekki spar á beikonið. Byrjið á að setja kartöfl- urnar í álpappír og á grillið. Skerið paprikuna og vorlaukinn niður í eins stóra bita og kostur er. Penslið með ólífuolíu og saltið. Grillið paprikuna, vorlaukinn og beikonið. Takið því næst af grillinu og skerið niður í bita. Saxið niður smá kóríander. Takið kartöflurnar af grillinu og skerið kross í þær. Opnið kartöfluna með því að þrýsta henni saman og skafið upp úr henni með skeið. Blandið saman í skál og myljið piparostinn yfir. Saltið og piprið. Setjið aftur í kartöfluna og út á grillið aft- ur. Áður en kartöflurnar eru bornar fram skal setja sýrðan rjóma ofan á þær og svolítið sax- að kóríander til skrauts. Grillaðar kart- öflur fylltar með beikoni og osti Ef það er eitthvað sem við elskum, þá eru það góðar bakaðar kart- öflur. Þær eru nánast jafnmikilvægar og kjötið sjálft, enda bragð- ast þær unaðslega – ekki síst þegar búið er að bragðbæta þær með hinum ýmsu aðferðum eins og hér er gert. Himneskar kart- öflur myndi einhver segja og við tökum heils hugar undir það. Magnað meðlæti Bak- aðar kartöflur standa allt- af fyrir sínu en þegar búið er að fylla þær með beik- oni og dýrindis osti er fátt sem toppar þær. 2 pakkningar lambaprime frá Goða 1 poki veislusalat 1/2 poki klettasalat 1 box kokteiltómatar skornir í tvennt 1/2 agúrka, skorin í bita 1/4 rauðlaukur skorinn í þunnar sneiðar 20 svartar ólífur skornar í tvennt 1 krukka fetaostur eftir smekk Myntu-chimichurri Einn hnefi fersk steinselja án stilka (u.þ.b. hálfur poki) Einn hnefi fersk mynta án stilka (u.þ.b. hálf pakkning) 2 hvítlauksrif, skorin gróft 1 dl góð ólífuolía 2 msk rauðvínsedik 1/2 tsk chiliflögur 1 tsk sjávarsalt (alls ekki nota venjulegt borðsalt) 1/4 rauðlaukur, skorinn mjög smátt Setjið allt nema rauðlaukinn í matvinnsluvél og látið hana vinna maukið smátt. Setjið svo rauðlaukinn saman við og berið fram með lambinu. Ljósmynd/Valgerður - GRGS.is Veisla fyrir bragðlaukana Lambið passar einstaklega vel með myntu chimichurri sósunni. Kolagrillað lambaprime með grísku salati og myntu-chimichurri Lambakjöt klikkar aldrei á grillinu, enda í uppáhaldi hjá ansi mörgum. Lambaprime er þar framarlega í flokki. Það getur verið dálítil kúnst að elda það en reglan er sú að það á að vera vel eld- að fremur en hitt. Hér er uppskrift frá Valgerði á GRGS.is sem býður jafnframt upp á æðislega sósu með.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.