Morgunblaðið - 21.07.2022, Side 55
ÍÞRÓTTIR 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2022
Nú þegar þátttöku Íslands á
EM á Englandi er lokið treystum
við á Íslands- og bikarmeistara
Víkings úr Reykjavík og topplið
Bestu deildarinnar í Breiðabliki
að halda uppi heiðri Íslands í Evr-
ópuknattspyrnunni í bili.
Við getum öll verið stolt af
framgöngu Íslands á EM, þótt
liðið hafi að lokum þurft að
sætta sig við að falla úr leik í
riðlakeppninni. Stelpurnar voru
svo grátlega nærri því að komast
áfram!
Víkingar heilluðu marga
með frammistöðu sinni í Meist-
aradeild Evrópu. Liðið valtaði yfir
Eistlandsmeistara Levadia Tall-
inn, 6:1, og vann fagmannlegan
1:0-sigur á Andorrameisturum
Inter Club d’Escaldes. Fyrir vikið
tryggðu Víkingar sér leiki gegn
Svíþjóðarmeisturum Malmö, þar
sem liðið lék gríðarlega vel og
var að lokum hársbreidd frá því
að komast áfram.
Á meðan komst Breiðablik
örugglega áfram í 2. umferð
Sambandsdeildarinnar með
samanlögðum 5:1-sigri á UE
Santa Coloma frá Andorra.
Breiðablik vann góðan 1:0-
útisigur og valtaði síðan yfir liðið
á heimavelli, 4:1.
Nú eru liðin bæði í 2. umferð
Sambandsdeildarinnar og leika
fyrri leiki sína á heimavelli í
kvöld. Heimavallarárangur
Breiðabliks er magnaður og
mætir liðið væntanlega með fullt
sjálfstraust í leikinn gegn Buduc-
nost Podgorica frá Svartfjalla-
landi.
Víkingur sýndi í leikjunum
gegn Malmö að liðið er meira en
tilbúið að láta að sér kveða í Evr-
ópu í ár. Leiki Víkingur eins vel
gegn The New Saints frá Wales
ætti liðið að fara áfram. Áfram
Víkingur og Breiðablik.
BAKVÖRÐUR
Jóhann Ingi
Hafþórsson
johanningi@mbl.is
FÓTBOLTI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Hallbera Guðný Gísladóttir lék
sinn síðasta knattspyrnuleik á ferl-
inum er hún spilaði fyrstu 60 mín-
úturnar í 1:1-jafntefli Íslands og
Frakklands á Evrópumótinu á
Englandi. Eftir leik tilkynnti
Skagakonan, sem er 35 ára, að
skórnir væru komnir á hilluna.
„Maður er svolítið þreyttur núna
en það er ekki búið að slá mig að
ég sé hætt í fótbolta. Mér líður
bara eins og ég sé að koma heim
úr landsliðsferð eins og vanalega.
Það kemur þegar maður fer að
hafa of mikinn tíma til að hugsa
um þetta,“ sagði Hallbera í samtali
við Morgunblaðið. Hún var þá
stödd á flugvelli í Riga á leiðinni
heim til Stokkhólms þar sem hún
býr með kærasta sínum.
Stolt af frammistöðunni á EM
Ísland gerði þrjú 1:1-jafntefli á
Evrópumótinu og missti naumlega
af sæti í átta liða úrslitunum. Hall-
bera er stolt af frammistöðu Ís-
lands á mótinu og sérstaklega í
lokaleiknum gegn Frakklandi. Hún
segir tilfinninguna mun betri nú en
fyrir fimm árum er liðið tapaði öll-
um þremur leikjum sínum á EM í
Hollandi.
„Mótið sjálft fannst mér frábært.
Frammistaðan hjá liðinu hefði get-
að verið betri og við sýndum ekki
okkar allra bestu hliðar en mér
fannst við standa okkur vel. Þetta
er allt öðruvísi tilfinning en eftir
síðasta mót, þar sem andrúmsloftið
var þungt. Fyrstu dagana og vikur-
nar eftir það mót leið manni ekkert
sérstaklega vel. Þetta er öðruvísi
tilfinning núna. Þótt við séum
svekktar og hefðum getað náð
lengra, þá erum við stoltar. Við
enduðum þetta á frábærum leik á
móti Frökkum,“ sagði Hallbera um
Evrópumótið.
Erfitt að vera ein í Kalmar
Hallbera skipti úr AIK í Stokk-
hólmi og fór rúma 400 kílómetra
suður til Kalmar fyrir yfirstand-
andi leiktíð. Hún viðurkennir að
það hafi reynst erfitt, sérstaklega
þar sem kærastinn, Lukas Arndt,
starfsmaður karlaliðs AIK, bjó
áfram í Stokkhólmi.
„Mig langaði að klára árið og
hjálpa landsliðinu að komast á HM,
en þetta ár hefur ekki verið létt
fyrir mig þegar kemur að fótbolt-
anum. Ég fer til Kalmar og er svo-
lítið ein þar, í burtu frá kærast-
anum í Stokkhólmi, og var ekki að
njóta mín að spila fótbolta. Það
vantaði neistann. Það er erfitt þeg-
ar maður er að gera eitthvað á
hverjum degi, oftast marga klukku-
tíma á dag, og hefur ekki gaman af
því. Ég ákvað því að það væri flott-
ur tímapunktur að enda þetta á
EM. Ég stefndi aldrei á að taka
HM, ég ákvað það fyrir síðasta ár.
Það var því geggjað að loka ferl-
inum á þennan hátt,“ sagði Hall-
bera.
Hefði hætt eftir síðasta tímabil
Evrópumótinu var seinkað um
eitt ár vegna kórónuveirunnar og
ákvað Hallbera fyrir vikið að
lengja knattspyrnuferilinn. „Ég
hugsa að ég hefði hætt eftir síðasta
tímabil ef EM hefði verið á réttum
tíma. Þegar EM var frestað hélt ég
að það væri ekki möguleiki fyrir
mig að ná mótinu. Ég hélt að það
væri orðið of mikið að vera orðin
35 ára en svo náði maður að halda
sér í fínu standi og einhvern veg-
inn var þetta mögulegt. Þetta mót
varð þannig að endapunkti í mínum
huga.“
Hættir á miðju tímabili
Hún viðurkennir að það sé erfitt
að leggja skóna á hilluna á miðju
tímabili en Kalmar er í 11. sæti
sænsku úrvalsdeildarinnar með níu
stig eftir fimmtán leiki. Hallbera
lék þrettán af leikjunum fimmtán
og er Kalmar því að missa mikil-
vægan leikmann.
„Það var erfitt. Ég er ekki vön
því að standa ekki við gerða samn-
inga og þetta er ekki draumastaða.
En þetta var besta lausnin fyrir
Kalmar og sjálfa mig. Félagið
græðir ekkert á því að hafa leik-
mann sem er ekki að njóta sín og
getur ekki gírað sig upp í leikina,“
bendir Skagakonan á.
Hallbera segir Evrópumótið á
Englandi vera einn af hápunkt-
unum á löngum og farsælum ferli
en hún varð sjö sinnum Íslands-
meistari og fimm sinnum bikar-
meistari, ásamt því að fara á þrjú
Evrópumót með íslenska landslið-
inu. Hún lék alls 131 landsleik fyrir
Ísland og skoraði í þeim þrjú
mörk.
Gaman ef ég hefði
farið fyrr út
„Það sem er ferskast er þetta
mót og það verður alltaf ein af
mínum bestu stundum í fótbolt-
anum. Þótt við færum ekki áfram
þá spiluðum við góðan varnarleik,
sem er mitt helsta verkefni á vell-
inum. Ég er ánægð með okkar
frammistöðu á mótinu og þetta
verður því hápunktur. En svo eru
alls konar augnablik, eins og fyrsti
Íslandsmeistaratitilinn, fyrsti bik-
armeistaratitilinn og fleira. Þetta
eru mörg augnablik sem maður
hefur upplifað og maður er eflaust
búinn að gleyma einhverjum. Mér
finnst ég hafa náð að upplifa allt
sem ég hefði viljað og það er ekk-
ert sem ég sé eftir. Það hefði samt
verið gaman ef maður hefði haft
möguleikann á að fara fyrr út í at-
vinnumennsku. Ég fer ekki út fyrr
en ég er orðin 25 ára gömul. Það
hefði verið gaman að sjá hvað hefði
gerst ef maður hefði farið fyrr út
og gert atvinnumennskuna að meiri
alvöru. Ég hef farið út þegar ég er
í skóla og notað atvinnumennskuna
þannig. Ég sé samt ekki eftir neinu
og ég er virkilega sátt við það sem
ég hef gert,“ sagði hún.
Yfirþyrmandi kveðjur
Hallbera fékk kveðjur úr öllum
áttum þegar hún tilkynnti að
skórnir væru komnir á hilluna.
„Það er yfirþyrmandi og ótrúlega
gaman. Mér þykir vænt um þetta.
Það er gaman að fá kveðjur frá
gömlum félögum, núverandi fé-
lögum og alls konar fólki. Þetta er
ótrúlega skemmtilegt. Maður er
búinn að spila með ansi mörgum í
gegnum tíðina.“
Hallbera ætlar sér ekki í þjálfun
á þessum tímapunkti en fótboltinn
verður áfram hluti af hennar lífi.
„Ég er ekki að fara í neina þjálfun
eða neitt þannig. Ég mun samt
áfram horfa á fótboltann og kær-
astinn minn er að vinna hjá karla-
liði AIK í Stokkhólmi. Ég mun
mæta á alla leiki og fótbolti verður
áfram stór hluti af mínu lífi. Þjálf-
un heillar ekki eins og er. Núna er
ég bara atvinnulaus og þarf að fara
að fá mér einhverja vinnu,“ sagði
Hallbera Guðný létt að lokum.
Flottur tímapunktur að
enda þetta á Evrópumóti
- Hallbera hætt eftir farsælan feril - Stolt af frammistöðunni á Evrópumótinu
Morgunblaðið/Eggert
Þakklátar Hallbera þakkar fyrir stuðninginn á EM ásamt Öglu Maríu Albertsdóttur og Dagnýju Brynjarsdóttur.
Handknattleiksmaðurinn Darri Ar-
onsson missir af nær öllu undirbún-
ingstímabilinu hjá franska félaginu
US Ivry vegna meiðsla sem hann
varð fyrir skömmu fyrir brottför til
Parísar, hvar liðið er staðsett. Leik-
maðurinn varð fyrir því óláni að
ristarbrotna á æfingu.
Darri gerði þriggja ára samning
við félagið á dögunum en hann hef-
ur leikið með Haukum undanfarin
ár. Darri staðfesti tíðindin við net-
miðilinn handbolti.is. Ivry leikur í
efstu deild Frakklands á næstu leik-
tíð eftir eins árs veru í 2. deild.
Meiddur fyrstu
vikurnar í París
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Brotinn Darri Aronsson mætti rist-
arbrotinn til Frakklands.
Sænski kylfingurinn Henrik Sten-
son verður ekki fyrirliði Evrópu í
Ryder-bikarnum í golfi, þar sem
hann hefur þegið boð um að keppa
á LIV-mótaröðinni umdeildu.
Mótaröðin hefur valdið fjaðra-
foki í golfheiminum en þar eru
verðlaunaupphæðir mun hærri en
á öðrum mótaröðum. Talið er að
stjórnvöld í Sádi-Arabíu fjármagni
mótaröðina til að fegra land og
þjóð í skugga mannréttindabrota.
Stenson vann Opna mótið árið
2016 og er það eini risatitill Sví-
ans.
Stenson valdi
peningana
AFP
Sænskur Henrik Stenson verður
ekki fyrirliði Evrópuliðsins.
Brasilíumað-
urinn Alison dos
Santos fagnaði
sigri í 400 metra
grindahlaupi
karla á heims-
meistaramótinu í
frjálsíþróttum í
Oregon í Banda-
ríkjunum í gær.
Dos Santos kom
fyrstur í mark á
46,29 sekúndum, sem er þriðji besti
tími sögunnar. Norski heimsmet-
hafinn Karsten Warholm þurfti að
sætta sig við sjöunda sæti. Dos San-
tos hafnaði í þriðja sæti á Ólympíu-
leikunum í Tókýó í sama hlaupi og
Warholm setti heimsmetið.
Í 1.500 hlaupi karla vann Bretinn
Jake Wightman óvæntan sigur eftir
baráttu við ólympíumeistarann
Jakob Ingebrigtsen frá Noregi.
Kristjan Ceh frá Slóveníu setti
nýtt mótsmet í kringlukasti, er
hann kastaði 71,13 metra og vann
öruggan sigur. Svíinn Daniel Ståhl,
ólympíumeistari og lærisveinn Vé-
steins Hafsteinssonar, komst óvænt
ekki á verðlaunapall. Þá vann Ástr-
alinn Eleanor Patterson hástökk
kvenna með stökki upp á 2,02
metra. Jaroslava Mahuchikh frá
Úkraínu stökk sömu hæð en Patter-
son þurfti færri tilraunir til.
Þriðji besti
tími sögunnar
náðist á HM
Alison
dos Santos