Morgunblaðið - 21.07.2022, Síða 55

Morgunblaðið - 21.07.2022, Síða 55
ÍÞRÓTTIR 55 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2022 Nú þegar þátttöku Íslands á EM á Englandi er lokið treystum við á Íslands- og bikarmeistara Víkings úr Reykjavík og topplið Bestu deildarinnar í Breiðabliki að halda uppi heiðri Íslands í Evr- ópuknattspyrnunni í bili. Við getum öll verið stolt af framgöngu Íslands á EM, þótt liðið hafi að lokum þurft að sætta sig við að falla úr leik í riðlakeppninni. Stelpurnar voru svo grátlega nærri því að komast áfram! Víkingar heilluðu marga með frammistöðu sinni í Meist- aradeild Evrópu. Liðið valtaði yfir Eistlandsmeistara Levadia Tall- inn, 6:1, og vann fagmannlegan 1:0-sigur á Andorrameisturum Inter Club d’Escaldes. Fyrir vikið tryggðu Víkingar sér leiki gegn Svíþjóðarmeisturum Malmö, þar sem liðið lék gríðarlega vel og var að lokum hársbreidd frá því að komast áfram. Á meðan komst Breiðablik örugglega áfram í 2. umferð Sambandsdeildarinnar með samanlögðum 5:1-sigri á UE Santa Coloma frá Andorra. Breiðablik vann góðan 1:0- útisigur og valtaði síðan yfir liðið á heimavelli, 4:1. Nú eru liðin bæði í 2. umferð Sambandsdeildarinnar og leika fyrri leiki sína á heimavelli í kvöld. Heimavallarárangur Breiðabliks er magnaður og mætir liðið væntanlega með fullt sjálfstraust í leikinn gegn Buduc- nost Podgorica frá Svartfjalla- landi. Víkingur sýndi í leikjunum gegn Malmö að liðið er meira en tilbúið að láta að sér kveða í Evr- ópu í ár. Leiki Víkingur eins vel gegn The New Saints frá Wales ætti liðið að fara áfram. Áfram Víkingur og Breiðablik. BAKVÖRÐUR Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is FÓTBOLTI Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Hallbera Guðný Gísladóttir lék sinn síðasta knattspyrnuleik á ferl- inum er hún spilaði fyrstu 60 mín- úturnar í 1:1-jafntefli Íslands og Frakklands á Evrópumótinu á Englandi. Eftir leik tilkynnti Skagakonan, sem er 35 ára, að skórnir væru komnir á hilluna. „Maður er svolítið þreyttur núna en það er ekki búið að slá mig að ég sé hætt í fótbolta. Mér líður bara eins og ég sé að koma heim úr landsliðsferð eins og vanalega. Það kemur þegar maður fer að hafa of mikinn tíma til að hugsa um þetta,“ sagði Hallbera í samtali við Morgunblaðið. Hún var þá stödd á flugvelli í Riga á leiðinni heim til Stokkhólms þar sem hún býr með kærasta sínum. Stolt af frammistöðunni á EM Ísland gerði þrjú 1:1-jafntefli á Evrópumótinu og missti naumlega af sæti í átta liða úrslitunum. Hall- bera er stolt af frammistöðu Ís- lands á mótinu og sérstaklega í lokaleiknum gegn Frakklandi. Hún segir tilfinninguna mun betri nú en fyrir fimm árum er liðið tapaði öll- um þremur leikjum sínum á EM í Hollandi. „Mótið sjálft fannst mér frábært. Frammistaðan hjá liðinu hefði get- að verið betri og við sýndum ekki okkar allra bestu hliðar en mér fannst við standa okkur vel. Þetta er allt öðruvísi tilfinning en eftir síðasta mót, þar sem andrúmsloftið var þungt. Fyrstu dagana og vikur- nar eftir það mót leið manni ekkert sérstaklega vel. Þetta er öðruvísi tilfinning núna. Þótt við séum svekktar og hefðum getað náð lengra, þá erum við stoltar. Við enduðum þetta á frábærum leik á móti Frökkum,“ sagði Hallbera um Evrópumótið. Erfitt að vera ein í Kalmar Hallbera skipti úr AIK í Stokk- hólmi og fór rúma 400 kílómetra suður til Kalmar fyrir yfirstand- andi leiktíð. Hún viðurkennir að það hafi reynst erfitt, sérstaklega þar sem kærastinn, Lukas Arndt, starfsmaður karlaliðs AIK, bjó áfram í Stokkhólmi. „Mig langaði að klára árið og hjálpa landsliðinu að komast á HM, en þetta ár hefur ekki verið létt fyrir mig þegar kemur að fótbolt- anum. Ég fer til Kalmar og er svo- lítið ein þar, í burtu frá kærast- anum í Stokkhólmi, og var ekki að njóta mín að spila fótbolta. Það vantaði neistann. Það er erfitt þeg- ar maður er að gera eitthvað á hverjum degi, oftast marga klukku- tíma á dag, og hefur ekki gaman af því. Ég ákvað því að það væri flott- ur tímapunktur að enda þetta á EM. Ég stefndi aldrei á að taka HM, ég ákvað það fyrir síðasta ár. Það var því geggjað að loka ferl- inum á þennan hátt,“ sagði Hall- bera. Hefði hætt eftir síðasta tímabil Evrópumótinu var seinkað um eitt ár vegna kórónuveirunnar og ákvað Hallbera fyrir vikið að lengja knattspyrnuferilinn. „Ég hugsa að ég hefði hætt eftir síðasta tímabil ef EM hefði verið á réttum tíma. Þegar EM var frestað hélt ég að það væri ekki möguleiki fyrir mig að ná mótinu. Ég hélt að það væri orðið of mikið að vera orðin 35 ára en svo náði maður að halda sér í fínu standi og einhvern veg- inn var þetta mögulegt. Þetta mót varð þannig að endapunkti í mínum huga.“ Hættir á miðju tímabili Hún viðurkennir að það sé erfitt að leggja skóna á hilluna á miðju tímabili en Kalmar er í 11. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með níu stig eftir fimmtán leiki. Hallbera lék þrettán af leikjunum fimmtán og er Kalmar því að missa mikil- vægan leikmann. „Það var erfitt. Ég er ekki vön því að standa ekki við gerða samn- inga og þetta er ekki draumastaða. En þetta var besta lausnin fyrir Kalmar og sjálfa mig. Félagið græðir ekkert á því að hafa leik- mann sem er ekki að njóta sín og getur ekki gírað sig upp í leikina,“ bendir Skagakonan á. Hallbera segir Evrópumótið á Englandi vera einn af hápunkt- unum á löngum og farsælum ferli en hún varð sjö sinnum Íslands- meistari og fimm sinnum bikar- meistari, ásamt því að fara á þrjú Evrópumót með íslenska landslið- inu. Hún lék alls 131 landsleik fyrir Ísland og skoraði í þeim þrjú mörk. Gaman ef ég hefði farið fyrr út „Það sem er ferskast er þetta mót og það verður alltaf ein af mínum bestu stundum í fótbolt- anum. Þótt við færum ekki áfram þá spiluðum við góðan varnarleik, sem er mitt helsta verkefni á vell- inum. Ég er ánægð með okkar frammistöðu á mótinu og þetta verður því hápunktur. En svo eru alls konar augnablik, eins og fyrsti Íslandsmeistaratitilinn, fyrsti bik- armeistaratitilinn og fleira. Þetta eru mörg augnablik sem maður hefur upplifað og maður er eflaust búinn að gleyma einhverjum. Mér finnst ég hafa náð að upplifa allt sem ég hefði viljað og það er ekk- ert sem ég sé eftir. Það hefði samt verið gaman ef maður hefði haft möguleikann á að fara fyrr út í at- vinnumennsku. Ég fer ekki út fyrr en ég er orðin 25 ára gömul. Það hefði verið gaman að sjá hvað hefði gerst ef maður hefði farið fyrr út og gert atvinnumennskuna að meiri alvöru. Ég hef farið út þegar ég er í skóla og notað atvinnumennskuna þannig. Ég sé samt ekki eftir neinu og ég er virkilega sátt við það sem ég hef gert,“ sagði hún. Yfirþyrmandi kveðjur Hallbera fékk kveðjur úr öllum áttum þegar hún tilkynnti að skórnir væru komnir á hilluna. „Það er yfirþyrmandi og ótrúlega gaman. Mér þykir vænt um þetta. Það er gaman að fá kveðjur frá gömlum félögum, núverandi fé- lögum og alls konar fólki. Þetta er ótrúlega skemmtilegt. Maður er búinn að spila með ansi mörgum í gegnum tíðina.“ Hallbera ætlar sér ekki í þjálfun á þessum tímapunkti en fótboltinn verður áfram hluti af hennar lífi. „Ég er ekki að fara í neina þjálfun eða neitt þannig. Ég mun samt áfram horfa á fótboltann og kær- astinn minn er að vinna hjá karla- liði AIK í Stokkhólmi. Ég mun mæta á alla leiki og fótbolti verður áfram stór hluti af mínu lífi. Þjálf- un heillar ekki eins og er. Núna er ég bara atvinnulaus og þarf að fara að fá mér einhverja vinnu,“ sagði Hallbera Guðný létt að lokum. Flottur tímapunktur að enda þetta á Evrópumóti - Hallbera hætt eftir farsælan feril - Stolt af frammistöðunni á Evrópumótinu Morgunblaðið/Eggert Þakklátar Hallbera þakkar fyrir stuðninginn á EM ásamt Öglu Maríu Albertsdóttur og Dagnýju Brynjarsdóttur. Handknattleiksmaðurinn Darri Ar- onsson missir af nær öllu undirbún- ingstímabilinu hjá franska félaginu US Ivry vegna meiðsla sem hann varð fyrir skömmu fyrir brottför til Parísar, hvar liðið er staðsett. Leik- maðurinn varð fyrir því óláni að ristarbrotna á æfingu. Darri gerði þriggja ára samning við félagið á dögunum en hann hef- ur leikið með Haukum undanfarin ár. Darri staðfesti tíðindin við net- miðilinn handbolti.is. Ivry leikur í efstu deild Frakklands á næstu leik- tíð eftir eins árs veru í 2. deild. Meiddur fyrstu vikurnar í París Ljósmynd/Sigfús Gunnar Brotinn Darri Aronsson mætti rist- arbrotinn til Frakklands. Sænski kylfingurinn Henrik Sten- son verður ekki fyrirliði Evrópu í Ryder-bikarnum í golfi, þar sem hann hefur þegið boð um að keppa á LIV-mótaröðinni umdeildu. Mótaröðin hefur valdið fjaðra- foki í golfheiminum en þar eru verðlaunaupphæðir mun hærri en á öðrum mótaröðum. Talið er að stjórnvöld í Sádi-Arabíu fjármagni mótaröðina til að fegra land og þjóð í skugga mannréttindabrota. Stenson vann Opna mótið árið 2016 og er það eini risatitill Sví- ans. Stenson valdi peningana AFP Sænskur Henrik Stenson verður ekki fyrirliði Evrópuliðsins. Brasilíumað- urinn Alison dos Santos fagnaði sigri í 400 metra grindahlaupi karla á heims- meistaramótinu í frjálsíþróttum í Oregon í Banda- ríkjunum í gær. Dos Santos kom fyrstur í mark á 46,29 sekúndum, sem er þriðji besti tími sögunnar. Norski heimsmet- hafinn Karsten Warholm þurfti að sætta sig við sjöunda sæti. Dos San- tos hafnaði í þriðja sæti á Ólympíu- leikunum í Tókýó í sama hlaupi og Warholm setti heimsmetið. Í 1.500 hlaupi karla vann Bretinn Jake Wightman óvæntan sigur eftir baráttu við ólympíumeistarann Jakob Ingebrigtsen frá Noregi. Kristjan Ceh frá Slóveníu setti nýtt mótsmet í kringlukasti, er hann kastaði 71,13 metra og vann öruggan sigur. Svíinn Daniel Ståhl, ólympíumeistari og lærisveinn Vé- steins Hafsteinssonar, komst óvænt ekki á verðlaunapall. Þá vann Ástr- alinn Eleanor Patterson hástökk kvenna með stökki upp á 2,02 metra. Jaroslava Mahuchikh frá Úkraínu stökk sömu hæð en Patter- son þurfti færri tilraunir til. Þriðji besti tími sögunnar náðist á HM Alison dos Santos

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.