Fréttablaðið - 13.08.2022, Síða 20

Fréttablaðið - 13.08.2022, Síða 20
En svo heldur ferða- langurinn heim og við heyr- um ekki meira af afdrifum hans. Árbæjarsafn fagnar 65 ára afmæli á sunnudaginn og af því tilefni heyrðum við í safn­ stjóranum Guðbrandi Bene­ diktssyni og forvitnuðumst um sögu safnsins og þá vinnu sem þar fer fram í dag. bjork@frettaladid.is Upphaf safnsins má rekja til bursta­ bæjarins Árbæjar, sem blasir við gestum við komuna í safnið. Býlið stendur enn á sama stað og það hefur gert öldum saman. „Árbær á sér töluverða sögu sem við erum að lengja talsvert,“ segir Guðbrandur um býlið sem hann segir hafa verið fremur mikið kot, lengst af í konungseigu. „Elstu rit­ uðu heimildir um búsetu í Árbæ ná aftur á 15. öld í tengslum við jarðakaup Ólafar ríku sem kom við í Árbæ, sem þá tilheyrði Viðeyjar­ klaustri. Fornleifauppgröftur hefur verið um árabil á Árbæjarsafni þar sem nemendum í fornleifafræði við Háskóla Íslands býðst að æfa sig við að grafa. „Þessar rannsóknir hafa sýnt að búseta í Árbæ teygir sig mögulega til landnámstímans,“ segir Guðbrandur. Búið var í bænum til ársins 1948 þegar hann fór í eyði. „Um árabil var hann vinsæll áningarstaður á leiðinni til Reykjavíkur því þar var veitingasala. Fólki á ferðinni þótti passlegt að fá sér kaffi og jafnvel gista,“ segir hann í léttum tón. Reykvíkingafélagið stofnað Þegar átthagafélag Reykvíkinga, Reykvíkingafélagið, var stofnað um miðbik síðustu aldar barðist það fyrir varðveislu bæjarins sem hluta af sögu sveitalífsins í Reykjavík sem þá var að breytast í borg í kjölfar seinni heimsstyrjaldar. „Árið 1957 tekur borgin svo við Árbæ, gerir við bæinn og opnar sem safn. Á þeim tíma gengu skipu­ lagshugmyndir mikið út á að gömlu húsin í miðbænum yrðu að víkja fyrir nýjum stórbyggingum og í stað þess að rífa þau öll var ákveðið að varðveita einhver á Árbæjarsafni. Þessum gömlu húsum var þannig bjargað frá eyðileggingu og smám saman þróaðist Árbæjarsafn sem útisafn með Skansinn í Stokkhólmi og f leiri útisöfn í Evrópu að fyrir­ mynd.“ Safnið samanstendur af um 30 byggingum og mannvirkjum en aðspurður segir Guðbrandur það síðasta hafa komið árið 2005. „Húsið stóð við Vesturgötu 66B og átti að rífa það enda höfðu verktakar eign­ ast lóðina til að byggja nýbyggingu. Húsið kom til okkar í mjög slæmu ástandi og enn er verið að vinna í viðgerðum innanhúss. Við flýtum okkur hægt í þeim efnum enda kúnst að gera upp gömul hús þann­ ig að vel sé og vandað.“ Guðbrandur segir það ekki á stefnuskránni að taka við f leiri húsum. „Hús eiga að vera á sínum stað, enda hefur orðið stefnubreyt­ ing í hugsunarhætti gagnvart göml­ um húsum: þau hafa mikið gildi og eru eitthvað sem á að varðveita eins og hægt er.“ Viðamikið rannsóknarstarf Í tilefni afmælisins segir Guð­ brandur ætlunina að vekja athygli á innra starfi safnsins. „Það verður hægt til dæmis að skoða muna­ geymslurnar þar sem viðkvæmir munir eru geymdir við sérstakar aðstæður.“ Rannsóknarstarf safnsins er viðamikið og felst meðal annars í rannsókn þessara muna en einnig er mikið púður lagt í byggðakann­ anir. „Borgin hefur lagt metnað í að stúdera sögur hverfanna svo í kjölfarið sé hægt að taka upplýstar ákvarðanir um þróun þeirra.“ Guð­ brandur segist telja safnið eiga sér sess í hjörtum landsmanna og ekki síst borgarbúa. „Hér hafa börn tæki­ færi til að leika og hlaupa og sjá margt áhugavert og höfum við lagt áherslu á að safnið sé barnvænt. Við erum með sýningu á leikjum og leikföngum barna í gegnum ald­ irnar og svo eru hérna húsdýr, eins og áður fyrr.“ Það er augljóst að safnið á einnig stóran sess í hjarta safnstjórans. „Ég leyfi mér að segja að safnið sé ein­ stakt. Hér gengur þú inn í ákveðna veröld og upplifir fortíðina, nokkurs konar tímahylki.“ Hátíðardagskrá verður í Árbæjarsafni á morgun, sunnudag, frá klukkan 13 til 16. Öll eru velkomin og auðvitað er ókeypis inn í tilefni tímamótanna. n Tímahylki sem á sess í hjörtum landsmanna n Í vikulokin Ólafur Arnarson Guðbrandur Benediktsson safnstjóri við Árbæ, upphafið að 65 ára sögu safnsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Á Árbæjarsafni eru leiðsögu- menn klæddir í tísku for- tíðar sem gefur sterka tilfinningu fyrir andblæ liðinna alda. Veru Mathöll Íslendingar virðast elska mathallir og í Vatnsmýri var í liðinni viku opnuð sú allra nýjasta og ferskasta í þeirri f lóru, Vera mathöll. Þar sem velja má á milli veitingastaðanna Fura, Caliente, Bang Bang, Mikki refur, Natalía, Næra, Stund og PFC. Vera er augljóslega kærkomin við­ bót á svæðið enda þéttsetið á anna­ tímum fyrstu vikuna. Þáttum um Ghislaine Maxwell Þættirnir Hver er Ghislaine Max­ well? sem sýndir voru á RÚV eru aðgengilegir í spilaranum til 9. september. Saga hinnar fordekruðu Ghislaine er þar rakin þannig að hlutverk hennar í markvissri mis­ notkun Jeffreys Epstein á ungum konum skýrist fyrir áhorfandanum. Sláandi frásögn! n Við mælum með BJORK@FRETTABLADID.IS Hús eiga að vera á sínum stað, enda hefur orðið stefnubreyting í hugs- unarhætti gagnvart gömlum húsum: þau hafa mikið gildi og eru eitthvað sem á að varð- veita eins og hægt er. Sífellt aukinn ferðamannafjöldi hér á landi á sínar skuggahliðar og hefur bæði slysum og dauðsföllum erlendra ferðamanna fjölgað. Ferðamenn sem sækja landið heim eru oft í ævintýragjarnari kantinum enda þarf ekki að leita þeirra lengi hér á norðurhjara. Fyrirsagnir um slys og ófarir skjóta reglulega upp kollinum, við bíðum í ofvæni frétta af leit björgunarmanna og fögnum ef vel virðist hafa farið. En svo heldur ferðalangurinn heim og við heyrum ekki meira af afdrifum hans. Fréttablaðið birti þann 17. mars síðastliðinn frétt um bandarískan fjallaskíðamann sem hrapaði ofarlega í fjalllendi á Tröllaskaga. Manninum var giftusam­ lega bjargað af hugrökku björgunarsveitafólki og í fréttinni sagði að maðurinn hefði undirgengist aðgerð á Landspítala, væri kominn í hjarta­ og lungnavél og heilsaðist eftir atvikum þokkalega. Sá maður er Daniel Hund, 22 ára lögfræðinemi sem prýðir forsíðu þessa tölublaðs ásamt eiginkonu sinni Sierru. Þau voru hér á landi í upphafi árs til að fagna tveggja ára brúðkaupsafmæli sínu á draumastaðnum. Sögunni lauk svo sannarlega ekki á Landspítala enda tekst Daniel nú á við gerbreyttar aðstæður, fótalaus í hjólastól og æfir sig að lesa eftir heilaskaða sem hann hlaut. n Framhaldssagan Kjarasamningaviðræður í haust verði enn snúnari en venjulega. Valdahlutföll innan ASÍ hafa snúist og þau öfl sem stóðu að baki Drífu Snædal, og Gylfa Arnbjörns­ syni áður, eru komin í minnihluta. Vilhjálmur Birgisson, Ragnar Þór Ingólfsson og Sólveig Anna Jóns­ dóttir hafa tekið við valdakeflinu. Engum getur dulist að þessi breyting hefur mikil áhrif á kröfu­ gerð verkalýðshreyfingarinnar í komandi kjarasamningum. Mikil áhersla verður lögð á hlutskipti hinna lægst launuðu, auk þess sem krafist verður úrbóta á húsnæðis­ markaði og lækkunar vaxta, en mik­ ill og vaxandi húsnæðiskostnaður er það sem helst ógnar fjárhagslegu öryggi launafólks hér á landi. Fjármálaráðherra segir alls ekki sjálfsagt að ríkið komi á nokkurn hátt að gerð komandi kjarasamn­ inga. Þar skjátlast honum hrapa­ lega, sé honum alvara með orðum sínum. Ekki aðeins er það skrifað í skýin að aðkomu ríkisins sé þörf. Það er meitlað í stein. Ríkisstjórnin ber mesta ábyrgð á því hversu erfiðir kjarasamningar eru fram undan. Vegna hagstjórn­ armistaka hennar og handarbaka­ vinnubragða Seðlabanka Íslands horfir launafólk nú upp á kaupmátt­ inn rýrna um hver mánaðamót og komandi kjaraviðræður kalla á hug­ vitsamlegar lausnir. Ríkisstjórnin hefur með öllu neitað að koma til móts við heimili landsins þegar farsótt og stríðs­ rekstur úti í heimi valda gríðar­ legum verðhækkunum. Þetta er ein ástæða þess að Seðlabankinn hefur hækkað vexti margfalt umfram það sem aðrir seðlabankar hafa gert. Snúnir kjarasamningar kalla á myndarlega aðkomu ríkisins Ríkisstjórnin hefur það í valdi sínu, og ber raunar skylda til, að koma með aðgerðapakka sem stuðlar að raunhæfum og hóf­ sömum kjarasamningum. Lítil og meðalstór fyrirtæki eru launa­ greiðendurnir sem þurfa að greiða þær launahækkanir sem um semst. Þessi fyrirtæki búa við afleita sam­ keppnisstöðu vegna þess himin­ háa vaxtakostnaðar og fjallháa viðskiptakostnaðar sem íslenska krónan skapar þeim. Ríkisstjórnin verður að koma að borðinu. n Ríkis- stjórnin ber mesta ábyrgð á erfiðri stöðu kjaramála. 20 Helgin 13. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 13. ágúst 2022 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.